Vinnumarkaður - 01.06.1995, Síða 23

Vinnumarkaður - 01.06.1995, Síða 23
Greinargerð um aðferðir og hugtök 21 Þar sem hver skiptihópur í vinnumarkaðskönnunum er valinn með einfaldri hendingaraðferð þá verða tveir yngstu árgangar endanlegs úrtaks hlutfallslega fámennari en þeir ættu að vera. Þetta stafar af því að þeir sem á árinu áður voru 16 og 17 ára eru nú orðnir árinu eldri. A hverju vori er t.d. hlutfallslegur heildarfjöldi 16 ára árgangsins aðeins fjórðungur af því sem vera ætti þar sem þeir sem áður voru 16 ára hafa nú elst um eitt ár. Skekkjan er helmingi minni fyrir 17 ára árganginn og hverfur frá og með 18. aldursárinu. Þetta getur leitt til ofáætlunar á fjölda fólks á vinnumarkaði þar sem lítil atvinnuþátttaka tveggja yngstu árganganna ætti að öllu jöfnu að hafa áhrif til lækkunar á mati á atvinnuþátttöku heildarinnar. Við þessu hefur verið bmgðist með því að taka sérstakt tillit til 16 og 17 ára árganganna þegar úrtakið er vegið. Frá og með nóvember 1994 var úrtaksaðferð breytt þannig að hlutfallslegur fjöldi tveggja yngstu árganganna yrði í samræmi við stærð þeirra í mannfjöldanum. 2.1.4 Hugtök Aðaliðja. I skýrslunni em þrjár töflur þar sem talnaefnið er flokkað eftir aðaliðju svarenda (töflur 6.58 - 6.61). Við þá flokkunerunotaðaraðrarskilgreiningarávinnuafli.starfandi fólki og atvinnulausum en í öðrunt töflum. Aðaliðja er skilgreind þannig að í vinnuafli teljast aðeins þeir sem vinna að jafnaði 12 klst. eða meira á viku eða eru atvinnulausir skv. skilgreiningu ILO. Námsmenn sem aðeins em að leita sér að hlutavinnu em þó ekki flokkaðir með atvinnulausum. Að öðru leyti em svarendur flokkaðir í samræmi við þá stöðu sem þeir telja sig hafa. Aldur. Við birtingu gagna eftir aldri svarenda er miðað við þann aldur sem svarendur hafa náð 15. dag könnunar- mánaðar. í vorkönnuninni 1993 var miðað við 31. mars það ár. Atvinnugrein. Atvinnustarfsemi þeirra fyrirtækja sem fólk starfar hjá eða starfaði síðast hjá er flokkuð í samræmi við Islenska atvinnugreinaflokkun. ISAT 95, sem byggð er á atvinnugreinaflokkun Evrópusambandsins, NACE (1. endursk.). Atvinnustarfsemierflokkuðmeðfjögurratölustafa atvinnugreinamúmeri. Námugröftur er talin með iðnaði. Heimilishald með launuðu starfsfólki og starfsemi alþjóð- legra stofnana er talin með annarri samfélagsþjónustu, félagastarfsemi, menningarstarfsemi o.fl. Atvinnustétt. Fjórar atvinnustéttir em skilgreindar í vinnumarkaðskönnunum Hagstofunnar: Launþegar, ein- yrkjar, atvinnurekendur og ólaunað skyldulið. I þessari skýrslu er einyrkjum og atvinnurekendum slegið saman í einn hóp, sjálfstætt starfandi. Launþegar eru þeir sem em starfandi og telja sig vera launþega eða eru á undirverktaka- samningi með starfsskyldur launþega. Til launþega teljast einnig þeir sem em atvinnulausir og em að leita sér að vinnu semlaunþegaroghafaekkileitaðeftirleyfum.fjárhagsaðstoð, lóð eða þ.h. í þeim tilgangi að hefja sjálfstæðan rekstur. Atvinnuþátttaka. I vinnumarkaðskönnunum Hag- stofunnar er fylgt skilgreiningum Alþjóðavinnumála- stofnunarinnar (ILO) á grundvallarhugtökum um vinnu- markað en þær eru notaðar á alþjóðavettvangi. Helstu skilgreiningar eru þessar: Atvinna. Hvers konar vinna gegn endurgjaldi í peningum eða fríðu, ólaunuð vinna við fyrirtæki eigin fjölskyldu, ólaunuð vinna við byggingu eigin íbúðarhúsnæðis eða framleiðslu til eigin neyslu. Ennfremur vinna við listsköpun jafnvel þótt viðkomandi hafi ekki tekjur af henni. Olaunuð vinna við heimilishald á eigin heimili telst ekki atvinna í skilningi vinnumarkaðskannana. Atvinnulausir. Fólk telst vera atvinnulaust ef það hefur ekki atvinnu og uppfyllir auk þess eitthvert eftirfarandi skilyrða: 1. Hefur leitað sér vinnu sl. fjórar vikur og er tilbúið að hefj a störf innan tveggj a vikna frá þ ví könnunin er gerð. 2. Hefur fengið starf en ekki hafið vinnu. 3. Bíður eftir að vera kallað til vinnu. 4. Hefur gefist upp á að leita að atvinnu en bjóðist starf er það reiðubúið að hefja vinnu innan tveggja vikna. Námsmenn, þ.m.t. þeir sem leita námssamnings í iðngrein, teljast því aðeins atvinnulausir að þeir hafi leitað að vinnu með námi eða framtíðarstarfi sl. fjórar vikur og eru tilbúnir að hefja störf innan tveggja vikna frá því könnunin var gerð. Starfandi. Fólk telst vera starfandi (hafa atvinnu) ef það hefur unnið eina klukkustund eða lengur í viðmiðunarvikunni eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Fólk í bamsburðarleyfi telst vera fjarverandi frá vinnu hafi það farið í leyfi úr launuðu starfi jafnvel þótt það hafi ekki hug á að hverfa aftur til sama starfs. Utan vinnuafls. Fólk telst vera utan vinnuafls ef það er hvorki í vinnu né fullnægir skilyrðum um að vera atvinnulaust. Vinnuafl samanstendur af starfandi og atvinnulausu fólki. Búseta. Ur þjóðskrá fást upplýsingar um sveitarfélag og póstfang svarenda. Búsetu í vinnumarkaðskönnunum er skipt í a) höfuðborgarsvæði, b) kaupstaði og bæi utan höfuðborgarsvæðis og c) önnur sveitarfélög. Við flokkun búsetu er stuðst við þjóðskrá eða nýjar upplýsingar frá svarendum meðan á könnun stendur. Á höfuðborgarsvæði eru eftirtalin sveitarfélög: Reykjavík, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Bessastaða- hreppur, Garðabær, Kópavogur, Mosfellsbær, Kjalames- hreppur og Kjósarhreppur. Til kaupstaða og bæja teljast eftirtalin sveitarfélög eða þéttbýli: Keflavfk, Grindavík, Sandgerði, Njarðvík, Akranes, Borgames, Stykkishólmur, Olafsvík, Isaíjörður, Bolungar- vík, Blönduós, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Dalvík, Olafsfjörður, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Eski- fjörður, Neskaupstaður, Höfn í Homafirði, Selfoss, Hvera- gerði og Vestmannaeyjar. Til annarra sveitarfélaga teljast sveitarfélög ótalin hér að ofan. Hjúskaparstétt. Nokkuð er um það að hjúskaparstétt svarenda eins og þeir skilgreina hana sjálfir beri ekki saman við þjóðskrá. Ekki er óalgengt að fráskildir eða ekkjur og ekklar segist vera ógiftir þegar þeir em spurðir um hjúskapar- stöðu. Nokkuð er um að fólk í óvígðri sambúð telji sig vera gift. Væm svör um hjúskaparstétt greinilega röng, miðað við þjóðskrámpplýsingar, vora þau leiðrétt. Lítil vinna. Ef svarandi vann minna en 40 klst. í viðmiðunarvikunni og jafnframt minna en hann gerir að jafnaði vegna verkefnaskorts, vinnudeilu eða atvinnuleysis hlutaúr vikunni en var jafnframt að leita sér að annarri vinnu eða aukastarfi telst hann vera vinnulítill. Ef svarandi er í hlutastarfi en vill vera í fullu starfi og heildarvinnutími hans
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146

x

Vinnumarkaður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.