Ferðavenjur Íslendinga - 01.02.1998, Blaðsíða 19
Ferðavenjur Islendinga 1996
17
Yfirlit 15. Utanferðir eftir farartæki og aldri ferðamanna 1996
Summary 15. Outbound trips by means of transport and age oftourists 1996
Alls Total < 16 ára <16 years 16-24 ára 16-24 years 25^44 ára 25-44 years 45-64 ára 45-64 years 65-74 ára 65-74 years
Fjöldi ferða Number of trips Hlutfallstölur Percent 157.100 15.800 18.700 62.800 50.600 9.200
AIIs Total % 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Flugvél Aircraft 98,6 98,1 97,8 98,1 99,3 100,0
Skip/Ferja Ship/Ferry 1,2* 1,9* 2 2* 1,4* 0,7*
Einkabíll Private car 0,2* - 0,5* -
Mynd 8. Utanferðir og gistinætur á hótelum og gistiheimiium eftir aldri ferðamanna 1996
< 16 ára 16-24ára 25-44 ára 45-64 ára 65-74 ára
<16years 16—24years 25-44 years 45-64 years 65-74 years
heimilum er ævinlega nokkru lægra en hlutfall ferða í yngri
aldurshópunum en hækkar með hærri aldri, samanber mynd
8. Á eftir hótelum og gistiheimilum var algengast að gista hjá
ættingjum eða vinum eða í 21 % tilvika, og á þetta sérstaklega
við um börn og yngra fólk en síður þá sem eldri eru.
Gistinætur hjá ættingjum og vinum voru hins vegar
hlutfallslega mun fleiri en ferðirtil þeirraþví hlutfall gistinátta
var 33% hjá ættingjum og vinum en hlutfall ferða 21%.
Ferðamenn dvöldu því að jafnaði lengur í hverri ferð þegar
gist var hjá ættingjum eða vinum en ef gist var á hóteli eða
gistiheimili.
Ekki kemur á óvart að í 99% ferða til útlanda ferðaðist fólk
lengstu vegalengdina með flugvél. í undantekningartilfellum
voru önnur farartæki notuð: skip, ferjur eða einkabílar.
Einkabíll gat verið aðalfarartæki þegar ferðast var lengri
vegalengd með bíl en sem nam ferðinni með skipi eða flugvél
frá landinu.
f könnuninni var spurt hvort fólk hefði notið aðstoðar
ferðaskrifstofu við skipulagningu ferðar. Um helmingur leitaði
til ferðaskrifstofu og er munur eftir aldri ekki ýkja mikill. Þó
má sjá að yngra fólk leitaði sfður til ferðaskrifstofa en eldra.
Erindi fólks á ferðaskrifstofur var aðallega vegna svokallaðra
pakkaferða, en 64% af þeim ferðum sem skipulagðar voru
með hjálp ferðaskrifstofa voru pakkaferðir.
Tilgangur ferða
I könnuninni var ferðum skipt í skemmtiferðir og viðskipta-
ferðir. Til skemmtiferða teljast ferðir þar sem skemmtun, frí
eða atþreying er aðalmarkmiðið, þ.m.t. íþróttaferðir,
heimsóknir til ættingja og vina og menningarferðir.
Aðalástæða ferðarinnar ræður hvort hún telst sem skemmti-
eða viðskiptaferð. Osjaldan gerir fólk viðskipta- og atvinnu-
ferðir jafnframt að skemmtiferðum en ef ferðin hefði ekki
orðið að veruleika nema vegna atvinnu- og viðskiptaerinda
telst ferðin viðskiptaferð.
I yfirliti 17 er sýnt hvernig ferðir skiptast eftir erindi.
Erindi barna er ekki hægt að flokka í skemmti- eða viðskipta-
og atvinnuferðir og koma þær því ekki fyrir í yfirlitinu.
Stærstur hluti ferða voru skemmtiferðir, eða 79% innan-
landsferða og 63% ferða til útlanda. Hæsta hlutfall viðskipta-
og atvinnuferða var hjá fólki 25-64 ára eða 11-12% ferða
innanlands og 33-36% utanferða.