Ferðavenjur Íslendinga - 01.02.1998, Blaðsíða 22
20
Ferðavenjur Islendinga 1996
3. Gagnaöflun og framkvæmd
Aðdragandi
Ferðavenjukönnun Fiagstofu fslands er hluti af samstarfs-
verkefni hagstofa á Evrópska efnahagssvæðinu um söfnun
tölfræðiupplýsinga um ferðamál. Markmiðið með verkefninu
er aukin, bætt og samræmd upplýsingaöflun. Sambærilegar
kannanir hafa verið gerðar í öðrum aðildarlöndum Evrópska
efnahagssvæðisins á árunum 1996-1998.
Spurningalisti
Við gerð spumingalistans var höfð hliðsjón af ýmsum atriðum,
m.a. leiðbeiningum Hagstofu Evrópusambandsins um söfnun
tölfræðiupplýsinga um ferðamál, fyrirmyndum frá nágranna-
löndunum þar sem áður hafa farið fram svipaðar kannanir,
gistináttatalningu Hagstofunnar ásamt fleiru.
Gagnaöflun
Upplýsinga var aflað með símtölum. Allir væntanlegir þátt-
takendur fengu sent bréf þar sem aðdragandi og tilgangur
könnunarinnar var lítskýrður og samvinnu óskað. I framhaldi
af því var reynt að ná sambandi við þá í síma. Aðallega var
hringt á kvöldin og um helgar. Símanúmer fólks í úrtakinu
voru fengin hjá Pósti og síma. Spurningaforritið BLAISE var
notað við könnunina en það auðveldar mjög alla vinnu við
kannanir, bæði framkvæmd og úrvinnslu.
Tímabil
Könnunin náði til ársins 1996 og var gerð í þremur áföngum.
í fyrsta áfanga voru kannaðar ferðir á tímabilinu janúar-maí.
Sú könnun fór fram í lok júní. í öðrum áfanga fór fram
könnun á ferðalögum í mánuðunum apríl-ágúst. Könnunin
var framkvæmd í september. í þriðja lagi var í janúar 1997
spurst fyrir um ferðalög tímabilið júlí-desember. Ekki var
talið ráðlegt að hafa tímabilin lengri til að fólk ætti auðvelt
með að rifja upp ferðirnar. Tímabilin voru látin skarast til
þess að hægt væri að búa til bæði ársfjórðungs- og
ársþriðjungstölur. Hagstofa Evrópusambandsins óskar eftir
ársfjórðungstölum en í þessu riti eru birtar ársþriðjungstölur.
Hér heima þykir hentugra að nota ársþriðjunga svo ekki séu
skilin í sundur helstu ferðamannatímabilin svo sem páskar (í
mars og apríl) og sumarið (í júní og júlí).
Yfirlit 20. Heimtur í ferðavenjukönnunum 1996
Summary 20. Response in the tourism pattern surveys 1996
Alls Total 1. könnun 1. survey 2. könnun 2. survey 3. könnun 3. survey
Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall
Number % Number % Number % Number %
Úrtak Sample 4.924 100,0 1.600 100,0 1.681 100,0 1.643 100,0
Látnir Deceased 1 0,0 1 0,1 - - -
Búsettir erlendis Domicile abroad 111 2,3 35 2,2 57 3,4 19 1,2
Hrein úrtaksstærð Net sample size 4.812 97,7 1.564 97,8 1.624 96,6 1.624 98,8
Hreint úrtak Net sample size 4.812 100,0 1.564 100,0 1.624 100,0 1.624 100,0
Svarendur Respondents 4.297 87,3 1.371 85,7 1.479 88,0 1.447 88,1
Neita Refusals 148 3,0 39 2,4 36 2,1 73 4,4
Veikir Sick 32 0,6 12 0,8 12 0,7 8 0,5
Fjarverandi Awayfi-om home 102 2,1 46 2,9 35 2,1 21 1,3
Finnast ekki No contact 233 4,7 96 6.0 62 3,7 75 4,6
Yfirlit 21. Frávikshlutfall og öryggismörk fyrir fjölda einstaklinga 1996
Summary 21. Relative standard error and confidence limits for number of individuals 1996
Metinn fjöldi Estimated number
Frávikshlutfall Relative standard error
Öryggismörk Confidence limits
125.000 2,6 6.400
100.000 3,2 6.300
75.000 4,0 5.900
50.000 5,3 5.200
37.500 6,3 4.600
25.000 7,9 3.900
12.500 11,5 2.800
10.000 12,9 2.500
7.500 15,0 2.200
5.000 18,4 1.800
4.000 20,6 1.600