Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.10.2019, Qupperneq 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Þessir ágallar á kerfinu leiða til þess að mál verða aldrei leidd almennilega til lykta og engin niður- staða fæst í þau. Markmiðið er skýrt: Að vinna sameigin- lega að sjálfbærri efnahags- þróun á norður- slóðum, íbúum svæðisins til hagsbóta. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunna@frettabladid.is Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis­ ráðherra Vart líður sá dagur að við fáum ekki nýjar fréttir af þeim miklu umhverfisbreytingum sem eiga sér stað á norðurslóðum vegna hlýnandi lofts- lags. Ljóst er að þær munu hafa víðtæk áhrif á samfélög á svæðinu og á möguleika þeirra til að vaxa og dafna. Samstarf ríkja á norðurslóðum beinir sjónum að mikil- vægi þess að auka þekkingu á umhverfi og samfélögum svæðisins til þess að að auðvelda okkur að bregðast við þessum yfirstandandi og yfirvofandi breytingum. Sjálfbærni er rauður þráður í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Við leggjum ríka áherslu á samspil samfélags, efnahags og umhverfis. Þekkingaruppbygg- ing síðustu ára í þágu sjálfbærra samfélaga á harðbýlum svæðum varpar ljósi á mikilvægi samvinnu milli stjórn- valda, vísindasamfélags og fyrirtækja. Við Íslendingar þekkjum kostina sem felast í slíku samstarfi. Mörg smærri samfélög byggja afkomu sína á uppbyggingu þekkingarfyrirtækja við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og hafa þannig skapað sinn framtíðargrundvöll. Í formennsku Íslands í Norður- skautsráðinu nýtum við reynslu íslenskra fyrirtækja á þessum sviðum og höfum komið af stað samstarfsverk- efnum aðildarríkja, viðskiptalífs og vísindasamfélags. Ný verkefni ráðsins á sviði bláa lífhagkerfisins og endur- nýjanlegrar orku eru til dæmis undir forystu Íslands. Betri aðgangur að auðlindum norðurslóða og aukið ríkjasamstarf leiðir til nýrra viðskiptatækifæra á svæðinu. Sterkir innviðir, ekki síst á sviði samgangna, hafa líka lykilþýðingu en öflugt samband opinberra aðila og einkageirans er forsenda uppbyggingar þeirra. Þess vegna leggur Ísland í formennskutíð sinni áherslu á aukið samstarf ríkja og einkafyrirtækja á norður- slóðum. Til marks um þetta er fyrsti fundur Norðurskauts- ráðsins og Efnahagsráðs norðurslóða sem hefst í Reykja- vík í dag. Þar koma saman fulltrúar aðildarríkjanna átta, frumbyggjasamtaka og fyrirtækja sem starfa á svæðinu. Markmiðið er skýrt: Að vinna sameiginlega að sjálfbærri efnahagsþróun á norðurslóðum, íbúum svæðisins til hagsbóta. Þannig stöndum við sterkari til að tryggja framtíð þessa mikilvæga heimshluta. Saman til sjálfbærni Miðasala fer fram á harpa.is/jolagestir. MIÐASALA ER hafin! Ríkið féll á prófinu, enn eina ferðina, í liðinni viku. Meintu skattsvikamáli heimsfrægrar hljómsveitar var vísað frá dómi, eftir að hafa velkst um í kerfinu í rúmlega 1.300 daga. Mál, sem er eitt af fjölmörgum af sama meiði og hefur orðið til þess að líf ungs og efni- legs fólks er hreinlega sett í biðstöðu á meðan hver stofnunin á fætur annarri finnur því f lest til foráttu, efnir til sífellt nýrra rannsókna, kyrr- setur allar þess eignir, leggur á það tugmilljóna sektir og dregur það að lokum fyrir dómstóla. Mál Sigur Rósar var rannsakað af þremur emb- ættum; ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara. Rannsóknin stóð yfir í 712 daga, eða þar til ákæra var gefin út. Síðan liðu 622 dagar til viðbótar áður en málið komst loks til kasta dómstóla. Á þessum rúmu þremur árum höfðu meðlimir sveitarinnar unað refsingu ríkis- skattstjóra um að greiða rúmlega 70 milljónir króna í sekt en næsta stjórnvaldi fannst það ekki nóg og vildi þá bak við lás og slá. Ítrekað hefur verið bent á að þessi margfalda málsmeðferð er andstæð lögum og gengur í berhögg við Mannréttindasáttmála Evrópu. Þrátt fyrir hvern áfellisdóminn á fætur öðrum þráast íslensk stjórnvöld við að viðurkenna eigin mistök á meðan aðrar þjóðir á borð við Finna, Norðmenn og Svía hafa fyrir löngu breytt fyrir- komulagi sínu á meðferð skattrannsóknarmála með góðum árangri. „Ég hef engan hitt, hvorki verjanda, sækjanda, né dómara, sem telur að þetta sé í lagi,“ sagði Guðjón St. Marteinsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, í þingfestingu sem blaðamaður Fréttablaðsins sat nýverið, þar sem meðferð skattamála var til umræðu. Þessir ágallar á kerfinu leiða til þess að mál verða aldrei leidd almennilega til lykta og engin niðurstaða fæst í þau. Það einfaldlega tekur því ekki að dæma í þeim enda samræmist meðferð þeirra ekki lögum og er vísað frá jafnharðan. Þetta eru ágallar sem ríkinu hefur verið bent á árum saman, hvort sem er af ráðherrum, embættismönnum, dómurum, skattrannsóknar- stjóra eða lögmönnum, og ágallar sem leiða til þess að ríkið brýtur á fólki og þarf síðan að borga því bætur eftir áralanga þrautagöngu þess í gegnum úrelt réttarkerfið. Þeir sem koma að þessum málum verða að vita að þeir eru með lífsgæði fólks í höndum sér. Sá sem bíður niðurstöðu dómstóla milli vonar og ótta þarf oft að líða óþarfar vítiskvalir vegna seinagangs í réttarkerfinu, sem er ólíðandi og oft og tíðum, líkt og raun hefur borið vitni, með öllu óþarft. Þessi tregða við að fylgja dómum Mannrétt- indadómstólsins hefur ekkert upp á sig. Ávinn- ingurinn er enginn og allir tapa. Hættum að gera sömu mistökin aftur og aftur – það borgar sig. Allir tapa Framsókn, flokkur djammara Staða Framsóknar í könnunum undanfarið knýr flokkinn til að leita á ný mið. Sigurður Ingi greindi frá því að Uber gæti verið á leið til landsins. Þetta er bráðsnjallt því að eini hópurinn sem er á móti Uber eru leigubíl- stjórar, og þeir kjósa allir Mið- flokkinn. Þeir sem gleðjast mest eru djammarar, sem hafa um áraraðir mátt bíða klukkutímum saman í leigubílaröðinni, illa klæddir í nístingskulda. Þegar þeir loksins fá bíl þurfa þeir að punga út 6 þúsund kalli til að komast suður í Hafnarfjörð eða 8 þúsund upp í Mosó. Djammarar munu muna eftir Sigurði Inga og Framsókn næst þegar þeir ganga inn í kjörklefann. Fréttir af frímúrurum Nýr stórmeistari Frímúrararegl- unnar var kynntur í gær en það er Kristján Þórðarson augnlæknir. Hann tekur við stöðunni af Vali Valssyni sem hefur setið síðan 2007. Undanfarið hafa Frímúrar- ar leiðrétt þann misskilning sem ríkir um að reglan sé leyndar- klúbbur auðmanna sem stýri samfélaginu með vélabrögðum. Þetta sé karlaklúbbur sem snúist um góðgerðarmál og náungakær- leika. Innsetning Kristjáns mun fara fram í Frímúrarahúsinu við Bríetartún þann 26. október og í kjölfarið verður veislustúka þar sem geit verður fórnað guðinum Baal. kristinnhaukur@frettabladid.is 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 9 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 8 -8 7 7 4 2 3 F 8 -8 6 3 8 2 3 F 8 -8 4 F C 2 3 F 8 -8 3 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.