Fréttablaðið - 09.10.2019, Side 33

Fréttablaðið - 09.10.2019, Side 33
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 9. OKTÓBER 2019 Hvað? Ronja ræningjadóttir Hvenær? 18.00 Hvar? Fjölskyldu- og húsdýra- garðurinn Garðurinn býður öllum sem skarta Bleiku slaufunni 2019 frítt í garðinn frá 16.00 til 20.00. Opið verður í dýrahúsum og leik- tækjum. Hvað? Þannig týnist tíminn Hvenær? 20.00 Hvar? Borgarbókasafnið Gerðu- bergi Gestur í sagnakaffi verður Bjart- mar Guðlaugsson. Hvað? Rostungar til forna við Ísland – náttúrusaga og mannvist- fræði Hvenær? 20.00 Hvar? Safnaðarheimili Nes- kirkju Á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða flytja Hilmar J. Malmquist líf- fræðingur og Bjarni F. Ein- arsson, fornleifafræðingur erindi. Hvað? Friðarsúlan tendruð Hvenær? 20.00 Hvar? Við Friðarsúluna í Viðey Friðsæl athöfn. Boðið er upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir fyrir og eftir athöfn. Hvað? Afmæli Johns Lennon Hvenær? 17.45-21.30 Hvar? Viðey Listasafn Reykjavíkur, Borgar- sögusafn Reykjavíkur og fleiri sjá um dagskrána. Hvað? Jazztríóið Hot Eskimos Hvenær? 21.00 Hvar? Björtuloft, 5. hæð í Hörpu Tríóið mun leika eingöngu lög eftir afmælisbörn dagsins. Með- limir þess eru píanóleikarinn Karl Olgeirsson, Jón Rafnsson sem leikur á bassa og trommuleikarinn Kristinn Snær Agnarsson. Miða- verð er kr. 2.500 en 1.500 kr. fyrir nemendur og eldri borgara. Hvað? Kópavogur flokkar Hvenær? 12.15 Hvar? Náttúrufræðistofa Kópa- vogs Erindi um sorphirðu- og endur- vinnslu í Kópavogi. Hvað? Barna- unglingahljóm- sveitin Regnbuen Hvenær? 18.00 Hvar? Hörpuhorn í Hörpu Tónlistin er fjölbreytt og inni- heldur verk eins og Ræðu víkinga, Capriol Suite eftir Peter Warlock, tónlist eftir suðurkóreska tón- skáldið Soon Hee Newbold og verk eftir norska tónskáldið Edward Grieg. Tónleikarnir eru ókeypis og allir velkomnir. Tækni hans var lýtalaus, innlifunin smitandi, segir gagnrýnandi um Okros. TÓNLIST Píanótónleikar Luka Okros lék verk eftir Schu- bert, Rakhmaninoff, Liszt og fleiri. Kaldalón í Hörpu föstudaginn 4. október Í einni myndinni um Tomma og Jenna er sá fyrrnefndi í hlutverki píanóleikara. Hann er í kjólfötum og gengur inn á svið, virðulegur á svipinn. Síðan byrjar hann að spila. Við það vekur hann Jenna, sem hafði sofið vært inni í f lyglinum. Hefst nú mikill slagur þeirra á milli sem fléttast inn í tónlistina, Ungverska rapsódíu nr. 2 eftir Franz Liszt. Það er gríðarlegur fingurbrjótur með alls konar heljarstökkum eftir hljóm- borðinu. Líf legt verkið var á dagskránni hjá Luka Okros píanóleikara, sem hélt tónleika í Kaldalóni í Hörpu á föstudagskvöldið. Engin mús var í f lyglinum, Okros sá um allt fjörið sjálfur. Hann gerði það af einstakri fagmennsku. Tækni hans var lýta- laus, innlifunin smitandi. Þetta var sannkölluð flugeldasýning. Djössuð kadensa Í einleikskonsertum eru gjarnan svokallaðar kadensur, þar sem ein- leikarinn spilar án undirleiks hljóm- sveitarinnar. Rakhmaninoff samdi kadensu fyrir þessa rapsódíu Liszts, þó þar sé engin hljómsveit. Kadens- an byggir á stefjunum í upphaflega verkinu, en er skemmtilega djössuð, með dálítið f lippuðum hljómum sem magnast upp í brjálæðislegan hápunkt. Kadensan er ætluð til leiks rétt fyrir lokin, og Okros spilaði hana hér. Hún skapaði skemmtilegt mót- vægi við tónlistina eftir Liszt, gerði húmorinn í tónlistinni enn meiri. Útkoman var frábær. Tónleikarnir í heild voru einkar ánægjulegir; Okros lék af hreinni snilld. Tónmyndunin var fögur, ýmiss konar tónahlaup runnu áfram án hindrana, skáldskapurinn í leiknum var ávallt hrífandi. Fjögur Impromptu op. 90 eftir Schubert voru full af ljóðrænu og söng, laus við tilgerð. Þetta eru fremur stuttar tónsmíðar, einfaldar í formi, en ein- staklega grípandi, með dásamlegum laglínum. Okros kom tónlistinni fullkomlega til skila, af innblæstri og dýpt. Stórbrotin og glæsileg Ekki síðri voru sex Moments musi- caux op. 16 eftir Rakhmaninoff. Tónmálið er talsvert f lúraðra en hjá Schubert, laglínurnar sjálfar eru oft hægar, en þær eru umvafðar afar hröðum nótum. Okros spilaði verkin af krafti, en líka viðkvæmni þegar við átti. Allar ógnarhröðu tónarunurnar voru leiknar af ótrú- legu fyrirhafnarleysi, píanóleikarinn bókstaflega hristi þær fram úr erm- inni. Heildarmyndin var stórbrotin og glæsileg. Okros var klappaður upp af hrifn- um tónleikagestunum og hann lék þrjú aukalög. Eitt af þeim var Clair de lune eftir Debussy, en titillinn er franska og þýðir tunglskin. Þetta er innhverf tónsmíð, og áhrifin af túlkun píanóleikarans voru undur- samleg. Hann mótaði hljómana af svo miklum fínleika og fegurð að maður sá silfraða birtu tunglsins fyrir sér, hún bókstaflega fyllti sal- inn. Píanóleikari sem skapar slíkan galdur er svo sannarlega innblásinn listamaður. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Framúrskarandi flutningur á flottri tónlist. Kattarkonsert, en engin mús Norski barna-og unglingakórinn Regnbuen er frá Bergen, þar sem oft rignir. Hann syngur í Hörpuhorni í dag og í Háteigskirkju á morgun, fimmtudag. Bjarni er með erindi í Neskirkju. ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA HÖFÐA FRIÐARSETURS The Imagine Forum Madeleine Rees Aya Mohammed Abdullah Mariam Safi Bronagh Hinds Aiko Holvikivi ‘T’ Ortiz Fawzia Koofi Harriet Adong Zinat Pirzadeh Ráðstefnan er haldin í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Á MORGUN, FIMMTUDAGINN 10. OKTÓBER KL. 9-17 Í VERÖLD - HÚSI VIGDÍSAR Komdu og taktu þátt í umræðunni um konur í þágu friðar! Dagblöð 99x170 (2x17) MEIRA AF HREINNI JÓGÚRT Nú fáanleg í 1 kg ölskyldustærð gottimatinn.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 9 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 8 -8 7 7 4 2 3 F 8 -8 6 3 8 2 3 F 8 -8 4 F C 2 3 F 8 -8 3 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.