Fréttablaðið - 09.10.2019, Page 37

Fréttablaðið - 09.10.2019, Page 37
HEIMSKAUT Gerður Kristný er kunn fyrir hnífskarpt ljóðmál og sam- mannleg umfjöllunarefni. Safn nýrra ljóða sem fer með lesandann um kunnuglegar og framandi slóðir í tíma og rúmi. „Sé litið yfir þungavigtarskáldskap samtímans er Gerður Kristný augljóslega einn allra mikilvægasti höfundurinn.“ N O R D J Y S K E S T I F T S T I D E N D E (um Sálumessu) Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Stefáni Pálssyni finnst gott að gamla herra- þjóðin gleymist ekki alveg í myndasöguút- Stórsókn úr Goðheimum Frændur vorir Danir eru frekir til fjörsins á íslenska myndasögu- markaðnum um þessar mundir þar sem auk Mortensens eru gamlir kunningjar að gera sig breiða á ný. Myndasöguhöfundurinn Pet- er Madsen var með sögur sínar úr Goðheimum á bókasafninu í Kaupmannahöfn forðum þegar Árni Beck Gunnarsson hafði sín fyrstu kynni af Lars Jakobsen og að honum ólöstuðum kannast líklega mun fleiri Íslendingar við Madsen. Bækurnar hans úr sagnabálk- inum kenndum við Goðheima nutu gríðarlegra vinsælda hér á landi á níunda áratugnum og hjá Forlaginu hefur verið ákveðið að þrumuguðinn Þór fái aftur að sveifla Mjölni yfir hausa- mótum þursa, Loka hins lævísa og mannsbarnanna Röskvu og Þjálfa sem eru miðpunktur bókanna. Hólmgangan er níunda bókin í flokknum og kemur nú í fyrsta sinn út á íslensku í þýðingu Bjarna Frímanns Karlssonar. Þá hefur fyrsta bókin, Úlfurinn bundinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar, verið endurút- gefin. Ekki síst í tilefni þess að á föstudaginn verður ný kvik- mynd byggð á sögum Madsens frumsýnd á Íslandi. Kvikmyndin Goðheimar er dönsk en fjöldi Íslendinga kemur að framleiðslunni. Netop Films er meðframleiðandi, Mar- grét Einarsdóttir er búninga- hönnuður, Kristín Júlía sá um hár og förðun og Salóme Gunn- arsdóttir og Lára Jóhanna leika í myndinni sem einnig var að hluta til tekin hér á landi. Rétt eins og í Úlfurinn bund- inn slást víkingabörnin Röskva og Þjálfi í för með Þór og Loka þegar þeir eru á leið heim til Ás- garðs. Þegar Goðheimar eru við það að falla reynir á krakkana sem eru þeirra eina von. – þþ að mjöl og hálshjuggu Jón Arason, en þeir kenndu okkur Íslendingum líka að lesa myndasögur,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur sem auk þess að safna myndasögum af ástríðu er hafsjór af fróðleik um fyrirbærið. „Þá er ég ekki bara að tala um Andrés Önd, heldur kynntumst við fransk/belgíska myndasögu- heiminum í gegnum Dani, þar sem íslensku forlögin nýttu möguleika á að fá samprentaðar bækur.“ Stefán segir að þar fyrir utan hafi Danir sjálfir átt marga góða myndasöguhöfunda í gegnum tíð- ina. „Lars Jakobsen er einn af þeim kunnari í dag. Hans vinsælasta sería eru skrítlur um hóp af hænum á sveitabæ sem birtast vikulega í Familie Journal, sem er auðvit- að lykilrit fyrir alla sem vilja fylgjast með skandinavísku kóngafólki!“ segir Stefán sem var Árna innan handar og las þýðinguna yfir. Klassísk spennusaga „En áhugi Jakobsens á mynda- sögum ristir dýpra. Hann hefur gert sjónvarpsþætti og bækur um sögu þessa listforms og einstaka myndasögu- höfunda. Þetta er því maður sem gjörþekk- ir formið og maður sér það mjög vel í þessum sögum hans um hetjuna Mor tensen sem er mjög „klassísk“ spennusaga um tímaferðalagalöggu,“ segir Stefán og heldur áfram enda kominn á flug: „Að sumu leyti minna sögurnar hans á það þegar bókmenntafræð- ingar setjast niður og semja sjálfir skáldsögur. Og geta þá aldrei stillt sig um að planta alls konar vísunum og eru mjög meðvitaðir um sjálft listformið. En f y rst og f remst er það skemmtilegt að sjá nýlegar erlendar myndasögur koma út í íslenskri þýðingu. Froskur útgáfa hefur sinnt franska málsvæðinu vel, en það er líka gott að gleyma ekki gömlu herraþjóðinni.“ toti@frettabladid.is L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M I Ð V I K U D A G U R 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 0 9 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 F 8 -7 8 A 4 2 3 F 8 -7 7 6 8 2 3 F 8 -7 6 2 C 2 3 F 8 -7 4 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 0 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.