Úti - 15.12.1928, Page 24
22
ÚTI
sem sýnt var á 2. mynd? — Og hvort brotið er
hættulegra og verra viðfangs? — Og hver er
munurinn á aðgerðinni á hvoru brotinu fyrir sig?
Og hvernig getur lokað beinbrot orðið opið
fyrir handvömm og klaufaskap þeirra, sem með
fara?
Reyndu að semja stutta ritgerð um beinbrot og
meðferð þeirra. —
getur haldið sjer svona upp úr um tíma, meðan
verið er að búa sig til að hjálpa honum. Hin
myndin sýnir aðra aðferð: maðurinn fleygir sjer
á bakið upp á skörina fyrir aftan sig, svo langt
sem hann getur og liggur líkast þvi, sem hann
væri á baksundi.
En hvernig er nú farið að ná honum úr vök-
inni? — ísinn heldur ekki fremur þjer en honum,
og hver ráð ætlar þú þá að hafa? Og hvað getur
þú kastað reipi langt? Hefir þú æft þig í þvl
nógu oft? D. Sch. Th.
Sjera Friðrik Friðriksson
hefir ritað nokkurn hluta æfisögu sinnar. Birtist
hún fyrst í »Óðni«, en var síðan sjerprentuð og
nefnist »Undirhúningsárin«. Allir reykvíkskir
drengir þekkja sjera Friðrik í sjón — og flestir af
reynd. Það er orðinn stór drengjaskari, sem notið
hefir hans andlegu leiðsagnar. Þeir, sem kynnast
vilja og lesa um sanna vináttu, ósjerplægni og
sigur hins góða, ættu að eignast þessa æfisögu.
Allir röskir drengir munu og hafa gaman af, að
lesa um ferðalög skólapilta, á þeim tímum, sem
bók þessi skýrir svo vel frá. »Úti« getur glatt les-
endur sína með þvi, að ekki mun ýkja langt að
bíða framhalds þessarar sögu.
Sennileg saga.
Ferðamaðúr nokkur hafði vilst í frumskóginum.
Alt í einu hayrir hann mikinn hávaða og sjer
risavaxinn fíl koma á móti sjer. Fíllinn nam stað-
ar og lyfti upp einum fæti sínum. Ferðamaðurinn
sá, að stór þyrnir hafði stungist upp í fótinn. Tók
hann þá kjark í sig og dró þyrninn út, en fíllinn
gekk á braut. Nokkrum árum síðar sat þessi sami
maður í almennum sætum i Cirkus nokkrum í
London. Kom þá sami fíllinn og hann hafði sjeð
í skóginum inn á leiksviðið og þektu þeir strax
hvorn annan. Fíllinn þrífur þá manninn með rana
sínum úr hinu ódýra sæti og lyftir honum upp í
eina stúkuna. Þannig þakkaði hann fyrir sig.
7. mynd.
Þú skilur sjálfsagt vel 6. og 7. mynd. — Mað-
ur, sem hefir verið að fara á skautum, hefir dottið
ofan í. Þú sjerð strax, hvaða ráð hann hefir til
þess að halda sjer upp úr. — Aðferðirnar eru 2:
á 6. myndinni breiðir hann út handleggina báða
upp á vakarbarminn fyrir framun sig, en jafn-
framt hefir hann tylt öðrum fætinum upp á skör-
ina fyrir aftan sig. Með þessu móti tekst honum
að dreifa þunganum af líkamanum, svo að hann
Sannir vinir eru sjaldgæfir. Ef þú átt þvi láni
að fagna að eiga góðan vin, þá vertu honum trúr.
Emerson.
S t a k a .
Sakna jeg sumars,
sólar og hlýju.
Veit þó að vorið
vaknar að nýju.
J. O. J.