Úti - 15.06.1940, Qupperneq 8
Þú vilt hjálpa,
en KANTU að hjálpa ef slys ber að höndam?
Hefir þú nokkurn tíma hugleitt hve mikil
ábyrgð hvílir á sérhverjum þeim manni,
sem fyrstur kemur að einhverju slysi?
Veiztu, að undir fyrstu handtökunum get-
ur það verið komið, hvort hinn slasaði
heldur lífi og heilsu?
Hvað mundir þú gera, ef þig bæri þar að,
sem maður hefði slasast? Ef þú hefir lært
hjálp í viðlögum, muntu strax veita
manninum rétta bráðabirgðahjálp og láta
síðan læknis. Ef þú hefir ekki lært hjálp
í viðlögum, verður þú ef til vill hræddur
og hleypur frá sjúklingnum (og slíkt hefir
þráfaldlega komið fyrir) af því þú VEIZT
ekki hvað þú átt að gera.
Ef slagæð skerst í
sundur getur sjúk-
lingnum blætt til ólíf-
is á skömmum tíma.
Því ekki að læra að
stöðva blóðrás og
bjarga manninum?
Ef þú lærir hjálp í viðlögum, getur þér
auðnast að bjarga mannslífi.
Menn hafa dáið snögglega ef stað- Hér sérðu unga ferðalanga, sem lært hafa hjálp í viðlög-
ið hefir í þeim kjötbiti. Veiztu, að um, koma til hjálpar ferðamanni, sem hefir fótbrotnað,
það er oft mjög auðvelt að bjarga Kanntu að búa til bráðabirgða um brotinn fót?
slíkum manni?
ÚTI
6