Úti - 15.06.1940, Blaðsíða 20
Skdtafélagiö Faxi í L/estmannaeyium
Ef tirfarandi grein
birtist í Vestmanna-
eyjablaðinu „Víði” í
marzmánuði síðastliðn-
um og ér eftir skáta
úr Eyjum, skrifuð í til-
efni af tveggja ára af-
mæli félagsins. —
Drengjablaðinu ,,Úti”
hefir borizt mynd af
foringjum félagsins,
sem birtist hér ásamt
greininni.
Friðrik Haraldsson, Einar Torfason, Leifur Eyjólfsson, Jón Runólfs-
son, Magnús Kristinsson, Þorsteinn Einarsson, Magnús Sigurðsson,
Jón Baldvinsson, Kári Kárason, Kristinn Óskar, Gísli Guðlausss.,
Sigurjón Kristinsson.
þróttakennari var kjörinn foringi þess, og
3 drengir úr gagnfræðaskólanum voru
fengnir til þess að taka að sér flokksfcw3-
ystu.
Páll heitinn Bjarnason skólastjóri og
Friðrik Jesson áttu mikinn þátt í stofnun
félagsins. P. B. gaf t. d. félaginu núverandi
nafn þess.
Þau tvö ár, sem félagið hefir starfaö,
hefir það unnið mikið og gott starf
meðal æsku Vestmannaeyja. — Yfir 30
gönguferðir farnar, margar útilegur í
tjöldum og ein í skála. Margvíslegir skáta-
greiðar hafa verið gerðir fyrir almenu.-
ing. Núverandi formaður félagsins er
Þorsteinn Einarsson kennari, og deildar-
foringi Friðrik Haraldsson, félagar eru 50.
Félagið á hér í Eyjum góðum og áí-
mennum vinsældum að fagna og marga ör-
ugga fylgjendur. Viljum við láta það reyn-
ast ekki að óverðugu. Skáti.
ÚTI
Þ. 22. febr. ’40 varð Skátafélagið Faxi í
Vestmannaeyjum tveggja ára. — I janúar
1938 kom fulltrúi Slysavarnafélags ís-
lands, Jón Oddgeir Jónsson hingað til
Eyja. Hefir hann um mörg ár starfað í
skátafélagsskapnum hér á landi og verið
mjög vakandi yfir vexti hans og viðgangi.
í sambandi við þessa komu Jóns var félag-
ið stofnað.
Nokkrir drengir úr efstu bekkjum
barnaskólans, sem höfðu lesið og heyrt um
gagnsemi skátafélaga, gengu á fund Jóns,
og báðu hann liðsinnis við stofnun félags
hér. Varð hann fúslega við beiðni þeirra
eins og vænta mátti.
Næstu daga voru svo haldnir fundir í
leikfimisal Barnaskólans, og þar kennd og
lærð ýms grundvallaratriði skátafélags-
skaparins.
22. febrúar 1938 var svo félagið stofn-
að með 20 drengjum. Friðrik Jesson í-
18