Úti - 15.06.1940, Page 22
Hvað skal gera ef þú misstígur þig?
Sértu heima við,
þá fáðu bundið um
öklann eins og mynd-
in sýnir, og reyndu
ekkert á fótinn í einn
eða tvo daga.
Komi mikil bólga í ljós, eða ef sársauk-
inn hverfur ekki við hvíldina, þá láttu
sækja lækni. Beztu bindin til þess að
vefja um öklann eru teygjubindi (Ideal-
bindi).
Ef þú er upp til fjalla eða fjarri bæjum,
þá reyndu að hafa einhver ráð til þess að
búa út bindi, sem þú síðan bindur þétt-
ingsfast um öklann, eins og áður getur —
og hlífðu fætinum, sem mest þú mátt.
Farirðu ekki að þessum ráðum, en reyn-
ir áfram á fótinn og trassar að binda um
þig teygjubindi, eða annað bindi, þá máttu
búast við því að eiga lengi í misstiginu og
vera auk þess sífellt að misstíga þig. Þess
ber og að gæta, að við misstig geta liðpok-
arnir rifnað og bein brákast. Ber þá að
fara mjög varlega með fótinn og sækja
lækni.
Þeir, sem iðka skíðastökk og knatt-
spyrnu, ættu að fyrirbyggja tognun og
misstig um ökla og hné, með því að nota
ökla og hnjáhlífar úr teygjuefni.
störf og viðgang sveitarinnar og lögðu
jafnframt til að ýmsar breytingar yrðu
gerðar á reglugerð sveitarinnar í samræmi
við þá reynslu, sem fengist hafði á fyrsta
starfsári hennar.
Á þessu ári eru 5 ár liðin síðan að ísl.
skátar hófu blóðgjafastarfsemi sína. í til-
efni af því skrifaði Pétur Ólafsson blaða-
maður fróðlega grein um þennan þátt
skátablaðsins í Morgunblaðið þ. 9./3. 1940.
Stjórn Blóðgjafasveitar skáta skipa þeir
Leifur Guðmundsson ritari, Þorsteinn
Bergmann gjaldkeri og Jón Oddgeir Jóns-
son formaður.
Eitt af því, sem nóg er til af í landinu.
EITT AF ÞVÍ, sem nóg er til af í landinu — aldrei þessu vant — eru
KARTÖFLUR. Góður og hollur matur, en verður ekki fluttur úr landi,
né seldur fyrir erlendan gjaldeyri. En það er hægt að gera kartöflurnar
að gjaldeyrisverðmæti með því að nota gnótt af þeim á hverju einasta
heimili, sem þarf fyrir fæði að sjá, og spara í þess stað aðkeyptar vörur.
Það er eins mikil menning og manndómur að nota það sem framleitt
er í landinu, á haganlegastan hátt, eins og að vera öruggur og aflasæll
til aðdrátta utan úr heimi.
Það er ekki galli á góðum mat þótt hann sé ódýr. Kartöflurnar eru
hvorutveggja: góður matur og ódýr — og íslenzkur.
ýTI
20