Skessuhorn - 23.11.2011, Blaðsíða 76
Hver erum við og til hvers erum við?
Ísak Harðarson og Helgi Þorgils Friðjónsson leggja saman krafta sína í nýrri barnabók
Örlagasaga drengs frá upphafi síldarævintýrisins
Örlygur Krisfinnsson á Siglufirði segir sögu sem kemur okkur við
Ísak Harðarson.
Örlygur Kristfinnsson á heimaslóðum á Siglufirði. Ljósmynd © Guðný Róbertsdóttir.
Myndskreytingar Örlygs í Sögu úr síldarfirði eru sann-
kölluð listaverk eins og sjá má á þessum dæmum.
Ísak Harðarson hefur verið í fremstu röð ís
lenskra skálda í hartnær þrjá áratugi. Er þess
skemmst að minnast að hann var tilnefndur
fyrir Íslands hönd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2011 fyrir ljóðabók sína,
Renn ur upp um nótt, sem kom út árið 2009.
Nú leitar Ísak á önnur mið, því á þessu
hausti kom út hjá Uppheimum barnabókin
Söngur Guðsfuglsins þar sem Ísak segir, af
sinni alkunnu stílfimi, hrífandi ævintýri sem
á erindi til barna á öllum aldri.
Í litlu hreiðri í fallegu tré í Hljómskálagarð
inum klekjast út ungar, fjórir dúnmjúkir
bræð ur, foreldrum sínum til mikillar gleði.
Eitt fyrsta verkefnið sem ungi í hreiðri þarf
að leysa er að finna nafnið sitt. En áður þarf
hann að svara erfiðri spurningu: Til hvers eru
fuglar? Eldri bræðrunum þremur tekst þetta
en sá yngsti á ekki svar við spurningunni.
Ungarnir vaxa og dafna en líf fjölskyldunnar
er í uppnámi á meðan sá yngsti hefur ekki
fengið nafn. Löng og ströng leitin fær þó loks
óvæntan endi.
Í ritdómi sem Anna Lilja Þórisdóttir skrifaði
nýlega í Morgunblaðið segir hún m.a. um
bókina: „Söngur Guðsfuglsins er flott og fal
lega skrifuð barnabók (líka fyrir fullorðna)
um efni sem okkur öllum er hugleikið; hver
erum við og til hvers erum við?“ Anna Lilja
gefur bókinni fjórar og hálfa stjörnu.
Helgi Þorgils Friðjónsson, einn okkar virt
ustu og þekktustu myndlistarmanna um ára
tuga skeið, myndskreytir bókina.
Örlygur Kristfinnsson hefur ný verið sent
frá sér barnabókina Saga úr síldar firði.
Örlygur, sem er myndlistarmaður og safn
stjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði, vakti
verð skuldaða athygli á síðasta ári með sinni
fyrstu bók, Svipmyndir úr síldarbæ.
Saga úr síldarfirði segir frá Sigga, sem 12 ára
gamall flyst ásamt fjölskyldu sinni til Siglu
fjarðar í upphafi síðustu aldar. Þar bíður ný
fram tíð þeirra sem áður sáu ekki aðra leið út
úr sárri fátækt en að flytja til Vesturheims í
von um betra líf. Tilvera Sigga tekur stakka
skiptum – en það er ekki ein falt að byrja
upp á nýtt á ókunnum stað. Þessi örlagasaga
bygg ir á raunverulegum atburðum.
Örlygur segir í þessari bók sögu sem kemur
okk ur við. Hann segir okkur hvernig síldar
bær varð til – iðandi af lífi með alþjóðlegum
blæ – þar sem silfur hafsins var gjaldmiðillinn
sem greiddi dugmiklu alþúðufólki leið úr
örbirgð til bjargálna og breytti íslensku sam
félagi á undra skömmum tíma.
Höfundur myndskreytir bókina sjálfur með
glæsilegum vatnslitamyndum sem fullkomna
verkið og tendra í frásögninni liti og líf.
Í ritdómi í Morgunblaðinu þann 26. október
sl. hrósar Ingveldur Geirsdóttir bókinni í há
stert og gefur henni fimm stjörnur. Þar segir
m.a.: „ ... afskaplega vel unnin, bæði mynd og
texti ... Falleg og fróðleg alíslensk barna bók.“
BÓKAFRÉTTIR UPPHEIMA 2011 BÓKAFRÉTTIR UPPHEIMA 2011