Skessuhorn - 23.11.2011, Blaðsíða 93
93MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER
Minnum á frábærar jólavörur
Smákökur með ekta íslensku smjöri
Ensk jólakaka
Laufabrauð
Jólabrauð
Hefur búið til jólakort frá unglingsaldri
Sylvía Björgvinsdóttir er sjálflærð
myndlistarkona frá Akranesi.
Þjóðleg málverk hennar af álfum,
huldufólki og öðrum kynjaverum
hafa vakið verðskuldaða athygli,
jólakortin hennar af jólasveinum í
umhverfi Akraness eru sívinsæl og
nýjasta viðbótin, jólakúlurnar, eru
einnig að slá í gegn. Hún hefur
verið með vörur sínar til sölu í
Skagamollinu á Akranesi frá því það
opnaði í apríl á síðasta ári og segir
viðtökurnar framar öllum vonum.
„Ég man ekki eftir mér öðruvísi en
teiknandi og málandi. Ég hef kennt
mér þetta sjálf en stefni á að fara í
skóla á næstunni. Myndlistarskóli
Akureyrar er mjög heillandi en
einnig væri gaman að fara eitthvað
erlendis að læra. Myndlistin er mitt
helsta áhugamál og ástríða í lífinu,“
sagði Sylvía er við settumst niður
með henni í síðustu viku.
Löngu farin að hlusta
á jólalög
Sylvía segist hafa prófað sig
áfram í mörgum ólíkum stílum
en þó séu álfarnir og sveitin alltaf
í uppáhaldi. Í ár kemur önnur
nýjung frá henni en það eru
svokallaðir vegglímmiðar með
íslensku jólasveinunum. „Þeir eru
enn í prentun en ég er mjög spennt
að sjá hvernig þeir koma út. Ég
hef mikið leikið mér með íslensku
jólasveinana og meðal annars
prentað þá á flöskur. Jólasveinarnir
mínir eru mjög dúllulegir en þeir
eru sambland af þeim íslensku
og þessum nýja góðlega. Þetta er
í raun mín hugmynd af íslensku
jólasveinunum. Þá er Grýla einnig
mjög góðleg að sjá á mínum
myndum og hún er löngu hætt að
borða börn,“ segir Sylvía og brosir.
Skagajólakortin hefur hún gert frá
árinu 2004 en frá unglingsaldri
hefur hún búið til jólakort og gefið
vinum og fjölskyldu. „Ég er rosalega
mikið jólabarn og er fyrir löngu
byrjuð að hlusta á jólalögin. Ég þarf
að byrja svo snemma á jólakúlunum
sem ég sel í aðventunni og þá er
gott að setja jólalög á fóninn til þess
að koma sér í jólagírinn.“
Myndlistin að aðalstarfi
Sylvía er fædd og uppalin á
Akranesi en flutti til Mosfellsbæjar
fyrir hálfu ári. Hún á þrjá stráka
á aldrinum þriggja, níu og ellefu
ára ásamt Skagamanninum Inga
Magnúsi Ómarssyni. Myndlistin
hefur verið hennar aðalstarf í tvö
ár. „Það er mismikið að gera hjá
mér yfir árið og langmest þessa
tvo mánuði fyrir jól. Þá er ég
bókstaflega að vinna frá morgni til
kvölds. Mér finnst þetta svo gaman
að ég verð hálf þunglynd ef ég tek
mér frí í tvær vikur yfir sumarið.“
Sylvía hefur ekki haldið
málverkasýningu frá árinu 2006 en
stefnir á að gera það fljótlega á næsta
ári. Áhugasömum er bent á að hægt
er að skoða vörur Sylvíu á vefsíðu
hennar wix.com/cloudberry/
sylvia eða á Fésbókarsíðu hennar
Sylvía myndlist. Þá eru vörur
hennar að sjálfsögðu aðgengilegar
í Skagamollinu að Kirkjubraut 54
á Akranesi.
ákj
Sylvía Björgvinsdóttir fyrir framan myndirnar sínar í Skagamollinu.
Jólakúlurnar hafa verið mjög vinsælar.
Jólakortin með jólasveinunum á Akranesi.