Skessuhorn - 23.11.2011, Side 87
87MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER
Minnt er á að lög um gistináttaskatt
taka gildi 1. janúar 2012
Gistináttaskattur
Gistináttaskatturinn er 100 kr. á hverja selda gistináttaeiningu,
en gistináttaeining er leiga á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring.
Með gistiaðstöðu er átt við herbergi, húsnæði eða svæði sem leigt
er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, að svefnaðstaða sé
fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt
til skemmri tíma en eins mánaðar.
Lögin taka til þeirra sem selja gistingu, svo sem hótela,
gistiheimila, tjaldsvæða, orlofssjóða stéttarfélaga og ferða-
og útivistarfélaga. Ber þeim að tilkynna um starfsemi sína
til ríkisskattstjóra.
Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni
rsk.is/gistinattaskattur og í síma 442-1000.
Friðarganga á
Þorláksmessu
Rauði krossinn á Akranesi efnir til
Friðargöngu á Þorláksmessu.
Göngufólk safnast saman framan við Ráðhúsið
við Stillholt kl. 18.00. Þaðan verður gengið sem
leið liggur niður Kirkjubraut og endað í bakgarði
Mömmueldhús Bistro þar sem flutt verður stutt
hugvekja og boðið upp á tónlistarflutning.
Bæjarbúar og nágrannar eru hvattir til þess að
slást í hóp göngufólks, eiga kyrrláta stund og sýna
friðarvilja í verki.
slík prýðir stofuborðið heima
hjá þeim Svanhvíti og önnur
skreytir fundaborð á Átthagastofu
Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Þessa
dagana er Þór í frístundum sínum
að vinna að verkefnum sem prýða
eiga nýtt hús björgunarsveitarinnar
Lífsbjargar í Rifi.
Þór hefur líka eignast nýtt
áhugamál eftir að hann fluttist
að Gufuskálum. „Flestir halda
að vinnan sé áhugamálið mitt og
öfugt sem er mikið til í en ferðalög
og fjallgöngur hafa alltaf verið
ofarlega í mínum huga. Hins vegar
eftir að ég fluttist hingað vestur
hefur helladellan náð æ meiri
tökum á mér og við feðgar höfum
farið margar ferðirnar neðanjarðar
á síðustu árum. Við höfum skoðað
marga þekkta hella á svæðinu
og fundið aðra óþekkta, en einn
stærsti kostur við hellamennskuna
er veðurfarið eftir að niður er
komið, oftast logn og blíða en alltaf
eitthvað nýtt að sjá,“ segir Þór
Magnússon á Gufuskálum.
hb
Þetta tuttugu og fjögurra metra langa tré þjónaði áður sem loftnetsmastur en er
notað til að æfa jafnvægi björgunarsveitamanna þar sem það hangir eins og róla.
Göngin undir rústasvæðinu eru nánast eins og völundarhús. Hér sést í op
nokkurra þeirra.
Þór með listaverk úr járni sem hann er að gera og kemur til með að skreyta nýju
björgunarmiðstöðina í Rifi.