Skessuhorn - 23.06.2015, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015 13
Gistihúsið Við hafið hefur ver-
ið opnað í Ólafsvík. Það er í eigu
hjónanna Sigurjóns Hilmarsson-
ar og Rutar Einarsdóttur. „Það
að opna gistiheimili hér í Ólafsvík
er hugmynd sem hefur verið að
koma upp hjá okkur annars slagið
í gegnum árin. Líkamsræktarstöð-
in Sólarsport var áður hér til húsa.
Þegar við heyrðum að það átti að
hætta rekstri hennar þá ákváðum
við að slá til, kaupa þetta húsnæði
og breyta því í gistiheimili. Við
fengum húsnæðið afhent 5. janú-
ar síðastliðinn. Síðan hefur mik-
ið gerst. Það fór allt á fullt. Næstu
fjóra mánuði var allt rifið héðan
út og húsnæðið endurnýjað nán-
ast algerlega að innan. Það eina
sem eftir stendur af gömlu líkams-
ræktarstöðinni eru sturturnar. Hér
hafa verið settir upp milliveggir og
búin til herbergi af ýmsum stærð-
um auk þess sem komið hefur ver-
ið upp eldunaraðstöðu og rúm-
góðum borðsal. Það er líka aðstaða
fyrir fólk þar sem það getur þveg-
ið af sér óhrein föt. Við settum
upp þvottavél og þurrkara. Fyrstu
gestirnir sem gistu hér komu svo
2. maí,“ segir Rut Einarsdóttir.
Opið allt árið
Þegar við hittum Rut var hún að
störfum í gistihúsinu ásamt fjórum
dætrum þeirra hjóna, þeim Reg-
ínu, Emilíu, Agnesi Eik og Diljá.
Þær mæðgur munu hjálpast að í
störfum við gistihúsið í sumar. Að-
spurðar sögðu systurnar að þeim
litist vel á að starfa í ferðaþjónust-
unni en þær eru annars allar í skóla
á veturna. „Það voru allir í fjöl-
skyldunni sendir í að pússa glugga,
mála og þrífa. Öll fengu einhver
hlutverk í að undirbúa opnunina,“
sagði móðir þeirra og brosti við.
Rut segir að stefnt sé á að Við
hafið verði opið allt árið um
kring, bæði sumar og vetur. „Það
var töluvert af ferðamönnum hér
í vetur sem leið. Við höfum þeg-
ar fengið bókanir næsta vetur og
alveg fram í maí á næsta ári. Að-
sóknin nú í byrjun sumars lofar
mjög góðu. Segja má að hún fari
fram úr björtustu vonum miðað
við hvað við áttum von á svona í
byrjun. Það tekur alltaf smá tíma
að ná fótfestu á markaðnum, kom-
ast inn á erlendar bókunarsíður svo
sem booking.com og þess háttar.
En nú er það farið að virka.“
Fimmtán herbergi eru í gisti-
húsinu Við hafið. „Það eru þrett-
án herbergi hér á efri hæð húss-
ins og svo tvö á jarðhæð sem eru
með góðu aðgengi og sérbúin fyrir
fatlaða. Af þessum þrettán eru svo
tvö kojuherbergi með plássi fyrir
sex og tíu manns og síðan tvö fjöl-
skylduherbergi sem hafa tvö rúm
og kojur fyrir börnin. Fjölskyldu-
herbergin eru vinsæl og mjög mik-
ið bókuð,“ segir Rut.
Margt sem er
nýstárlegt
Fjölskyldan hefur ekki starfað
við ferðaþjónustu áður. Margt er
nýtt og það er lærdómsríkt að sjá
hvernig erlendir ferðamenn upp-
lifa Ísland. „Ég hafði mjög gaman
af því hér um daginn að ferðamenn
sem voru hér í Snæfellsbæ fengu
að fara hring um eina fiskvinnsl-
una hér og skoða hvað væri verið
að gera í svona fyrirtækjum. Þau
komu svo alveg alsæl hingað með
fisk með sér sem þau höfðu feng-
ið og elduðu hann hér um kvöld-
ið í þessari eldhúsaðstöðu sem við
höfum hér. Þetta voru erlendir
ferðamenn sem aldrei hafa fengið
fisk öðruvísi en keyptan út úr búð
en hérna fengu þau hann beint hjá
fiskvinnslunni. Aðrir ferðamenn
sem voru hér sáu þetta og þótti ís-
lenski fiskurinn svo girnilegur að
þau fóru út í búð og keyptu sér þar
fisk og elduðu.“
Rut segir að það sem komi henni
kannski hvað einna mest á óvart sé
hvað ferðafólkið viti lítið um hvaða
möguleikar eru á að skoða áhuga-
verða staði umhverfis Snæfells-
jökul. „Þau hafa heyrt um Arnar-
stapa og kannski um Vatnshelli.
Stundum koma hingað ferðamenn
sem hafa farið suður fyrir Jökul og
þegar maður byrjar að spyrja þau
hvort þau hafið skoðað þetta eða
hitt þá koma þau alveg af fjöllum
þegar þeim er sagt frá Malarrifi,
Svalþúfu, Öndverðarnesi og fleiri
fallegum stöðum. Það eru jafnvel
dæmi um að fólk bæti við gisti-
nótt og snúi svo við hafi þau tíma,
til að skoða það sem þau misstu af
því þau vissu ekki betur. Við gæt-
um gert betur í kynningarmálun-
um hér á Snæfellsnesi, sérstaklega
til fólks áður en það kemur hingað
á svæðið,“ segir Rut Einarsdóttir.
mþh
Nældu þér í
rafrænt eintak á
www.skessuhorn.is
Upplýsingar um Vesturland á ensku og
íslensku auk fjölda ljósmynda.
Ferðast um Vesturland – Travel West Iceland 2015 er komið út!
Ferðaþjónustufyrirtæki geta nálgast
blöð á Markaðsstofu Vesturlands í
Hyrnutorgi í Borgarnesi
Glæsilegt gistihús opnað í Ólafsvík
Rut Einarsdóttir hótelstýra á gistihúsinu Við hafið í Ólafsvík.
Systurnar Regína, Emilía, Agnes Eik og Diljá Sigurðardætur í afgreiðslunni. Gistihúsið er í þessu húsi í miðri Ólafsvík, rétt ofan við hafnarmynnið.
Fjölskylduherbergin eru vinsæl.
Ferðalangar geta þvegið af sér fatnað
á gistiheimilinu sem er nokkuð sem
margir kunna að meta.