Skessuhorn - 23.06.2015, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015 23
Sunnudaginn 14. júní tók Víkingur
Ólafsvík á móti Fjölni í fyrstu deild
kvenna í knattspyrnu á Ólafsvíkur-
velli. Samira Suleman kom Víkings-
stúlkum yfir strax á fjórðu mínútu
leiksins en gestirnir úr Fjölni jöfnuðu
á 22. mínútu. Samira skoraði svo ann-
að mark sitt á 76. mínútu og tryggði
Víkingsstúlkum sigur með tveimur
mörkum gegn engu í fyrsta heimaleik
sumarsins. Úrslitin þýða að liðið situr
í 6. sæti B riðils fyrstu deildar kvenna
með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Næst lék liðið gegn Hvíta Riddar-
anum í blíðsakaparveðri sunnudaginn
21. júní síðastliðinn, einnig á Ólafs-
víkurvelli. Fram að því hafði Hvíti
Riddarinn tapað öllum fjórum leikj-
um sínum í Íslandsmótinu og sat á
botni riðilsins með neikvæða marka-
tölu upp á heil 29 mörk. Blaðamað-
ur heyrði í Birni Sólmari Valgeirs-
syni, þjálfara Víkings Ólafsvíkur fyr-
ir leikinn gegn Hvíta sem vildi þá ekki
meina að leikurinn væri skyldusigur.
„Þetta er náttúrulega bara þriðja árið
okkar í Íslandsmótinu og við berum
virðingu fyrir öllum mótherjum. En
auðvitað viljum við vinna alla heima-
leiki, sama hverjir mótherjarnir eru,“
sagði Björn í samtali við Skessuhorn.
Víkingsstúlkur yfirspiluðu gestina,
sóttu án afláts og unnu að lokum stór-
sigur á Hvíta riddaranum í blíðskap-
arveðri í Ólafsvík. Samira Suleman
skoraði þrennu, María Rún Eyþórs-
dóttir tvö og þær Linda Eshun og Sig-
rún Gunndís Harðardóttir sitt mark-
ið hvor í 7-0 sigri Víkings. Aðsókn á
leikinn var góð, alls mætti 231 áhorf-
andi og fylgdust með liðinu vinna sinn
stærsta sigur frá upphafi þátttöku þess
í Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu
fyrir þremur árum síðan.
Fyrir þann tíma hafði lið af Snæ-
fellsnesi síðast tekið þátt í mótinu
undir merkjum HSH, laust eftir alda-
mótin síðustu. „Við settum okkur það
markmið þegar við byrjuðum fyr-
ir þremur árum að bæta okkur ár frá
ári, ekki endilega stigalega séð heldur
fótboltalega séð og þá kæmi hitt von-
andi með,“ segir hann og bætir því við
að honum þyki liðið þegar hafa tekið
miklum framförum. „Í fyrra enduð-
um við í fjórða sæti riðilsins með 22
stig og við byggjum á því þetta árið.
Lið Víkings Ólafsvíkur er ungt og
efnilegt og að mestu skipað heima-
mönnum. „Við erum með 19 manna
leikmannahóp, þrjá erlenda leikmenn
og svo vorum við svo heppin að fá
tvo leikmenn frá öðrum liðum sem
vildu koma og spila með okkur í sum-
ar. Þetta eru að megninu til stúlkur
sem eru að klára framhaldsskóla, eru
á síðasta eða næstsíðasta ári. En svo
eru þrjár eldri og reyndari sem tóku
skóna af hillunni fyrir þremur árum
sem hafa hjálpað okkur alveg gríðar-
lega. Þær ætluðu nú allar bara að taka
eitt ár á sínum tíma en þær eru ennþá
hérna,“ segir Björn og hlær við.
Eftir sigurinn á Hvíta riddaran-
um sitja Víkingsstúlkur í þriðja sæti
B riðils með 7 stig eftir fjóra leiki.
Næst mæta þær FH á Kaplakrikavelli
á morgun, miðvikudaginn 24. júní og
hefst sá leikur klukkan 20:00.
kgk
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkingsstúlkur með sigra í
fyrstu tveimur heimaleikjunum
Samira Suleman skorar eitt þriggja marka sinna gegn Hvíta riddaranum síðastliðinn
sunnudag. Ljósm. af.
Leikmenn Víkings Ólafsvíkur tóku
á móti Þór frá Akureyri í fyrstu
deild karla í knattspyrnu á Ólafs-
víkurvelli síðastliðinn sunnudag.
Norðanmenn byrjuðu betur og
fengu dauðafæri strax á 10. mínútu
eftir góða sókn en Christian Libe-
rato bjargaði í horn. Víkingar kom-
ust smám saman inn í leikinn en
það voru Þórsarar höfðu yfirhönd-
ina þar til á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks. Þá fengu heimamenn
vítaspyrnu. Willam Dominguez
da Silva steig á punktinn og skor-
aði örugglega framhjá Sandor Ma-
tus í marki Þórsara. Staðan í hálf-
leik, 1-0.
Víkingar mættu ákveðnir til síð-
ari hálfleiks og sóttu stíft og höfðu
yfirtökin í leiknum þar til á 78. mín-
útu. Þá fengu Þórsarar aukaspyrnu
við miðjuna og löng spyrnan lenti
á kolli Gunnars Örvars Stefánsson-
ar. Hann fleytti boltanum áfram á
Kristinn Þór Björnsson sem vipp-
aði honum laglega yfir Christian
Liberato í marki Víknigs og jafn-
aði metin.
Þegar komið var fram í uppbót-
artíma sóttu heimamenn þungt. Á
95. mínútu bar sókn þeirra árangur.
Tveir varnarmenn Þórs misstu af
fyrirgjöf Arnars Sveins Geirssonar.
Boltinn féll fyrir fætur Alfreðs Más
Hjaltalín sem skoraði og tryggði
Víkingum 2-1 sigur. Sigurinn þýðir
að Víkingar eru í öðru sæti deildar-
innar með 16 stig eftir sjö leiki.
Næst taka Víkingar á móti Grind-
víkingum á Ólafsvíkurvelli laugar-
daginn 27. júní.
kgk
Víkingur Ó. sigraði Þór
Leikmenn Víkings fagna í leikslok. Ljósm. af.
Skagakonur heimsóttu Hauka á
Schenkervöllinn í Hafnarfirði í
fyrstu deild kvenna í knattspyrnu
föstudaginn 19. júní síðastliðinn.
Báðum liðum var spáð toppbaráttu
í A riðli í sumar og því var búist við
hörkuleik. Jafnt var á með liðunum
framan af en hvorugu liðinu tókst
að skapa sér afgerandi marktæki-
færi og því markalaust þegar flaut-
að var til hálfleiks.
Þegar aðeins þrjár mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik komust
heimamenn í Haukum yfir með
marki frá Heiðu Rakel Guðmunds-
dóttur. Skagakonur sóttu eftir þetta
en þrátt fyrir að hafa fengið nokk-
ur ágæt marktækifæri góða bar-
áttu tókst þeim ekki að jafna met-
in. Lokatölur því 1-0, Haukum í vil
og fyrsta tap Skagakvenna í deild-
inni staðreynd.
Úrslitin þýða að Skagakonur eru
sem stendur í fjórða sæti riðils-
ins með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Næsti taka þær á móti sameiginlegu
liði ÍR/BÍ/Bolungarvíkur á Akra-
nesvelli laugardaginn 27. júní og
hefst sá leikur klukkan 14:00.
kgk
Fyrsta tap Skagakvenna í sumar
Strákarnir í fjórða flokki Snæ-
fellsness í fótbolta tóku á móti
jafnöldrum sínum frá Grinda-
vík í blíðskaparveðri á Grundar-
fjarðarvelli sunnudaginn 21. júní.
Þar var hart tekist á og mikið lagt
í leikinn. Gestirnir frá Grinda-
vík komust í 3-0 áður en heima-
menn minnkuðu muninn en það
voru svo gestirnir sem áttu síð-
asta orðið þegar að þeir innsigl-
uðu 4-1 sigur og fóru því með öll
stigin heim.
tfk
Fjórði flokkur fékk
Grindavík í heimsókn
Landsbankahlaupið fór fram í Ólafs-
vík á 17. júní. Hlaupið var í fjórum
aldursskiptum flokkum og tóku um
það bil 90 börn á aldrinum 5 til 16
ára þátt. Að hlaupi loknu fengu allir
óvæntan glaðning frá Landsbankan-
um ásamt verðlaunapening. Einn-
ig fengu þátttakendur gjafabréf upp
á einn ís með dýfu sem hægt var að
innleysa hjá Hraðbúðinni, Grillskál-
anum eða Söluskála OK. Er þetta í
annað skiptið sem Landsbankinn
stendur fyrir hlaupi á 17. júní og
greinilegt að þetta mælist vel fyr-
ir því þátttaka jókst um helming frá
því í fyrra. þa
Hlaupið í Ólafsvík á þjóðhátíðardaginn
Árlegt Faxaflóamót í siglingu segl-
báta með kili var haldið um liðna
helgi. Á laugardag gat fólk á Akra-
nesi notið þess að sjá seglskútur líða
áfram fram og til baka á Krossvík
utan við Langasand. Þetta var enn
eitt kryddið í tilveruna í bænum þar
sem fjöldi manns var á Jaðarsbökk-
um við Langasand vegna Norðuráls-
móts knattspyrnudrengja.
Keppnisbátar hófu keppni með
siglingu síðdegis á föstudag upp á
Akranes. Síðan var keppt bæði laug-
ardag og sunnudag í Faxaflóa. Aðrir
bátar sem ekki voru í keppni sigldu
hins vegar saman upp á Akranes á
laugardeginum. Sameiginleg grill-
veisla skútufólks var svo á bryggj-
unni á Akranesi á laugardagskvöld.
Fyrirhugað er að halda æfingabúð-
ir í skútusiglingum á Akranesi dag-
ana 5. – 11. júlí næstkomandi. Þær
verða á vegum Siglingasambands Ís-
lands í samvinnu við ÍA. mþh
Seglskútur á Faxaflóamóti
glöddu augu viðstaddra
Seglskúturnar sigla um á Krossvík á laugardag.