Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201532
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
TRÉSMIÐJAN AKUR EHF.
Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9
300 Akranesi
Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is
ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Endurbætur og nýsmíði
Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Ég fór yfir Sprengisand á dögun-
um. Nokkru fyrir ofan girðingar í
Bárðardal sá ég þrjár kindur á beit.
Ég stóðst ekki mátið að mynda þær
í þessu gróðurlitla umhverfi. Ætti
þetta land ekki að vera friðað fyrir
beit? Mér þótti þetta nöturleg sýn
og illa farið með þann litla gróður
sem enn er eftir á svæðinu. Ég fór
víða um land í sumar og á allt of
mörgum stöðum var búfé að herja
á land sem vart verður séð að standi
undir beitinni. Meira að segja Akra-
fjallið, bæjarfjall okkar Akurnesinga,
er ansi illa farið vegna beitar. Raun-
ar eru til svæði á landinu þar sem
beita mætti fleira fé en það er önnur
saga, ofbeitin er allt of víða og eitt af
stærstu vandamálum samtímans.
Ofbeit búfjár á síðustu öldum hef-
ur farið illa með gróður á Íslandi,
hvort heldur skóga eða annan gróð-
ur. Að einhverju leyti hefur tekist
að snúa þeirri þróun við, m.a. með
aukinni skógrækt en það gengur allt
of hægt, gróður er víða illa farinn
og land sums staðar örfoka. Brýn-
asta viðfangsefnið í dag er að banna
lausagöngu búfjár og setja reglur um
að bændur (og aðrir eigendur búfjár,
t.d. hobbýbændur) beri ábyrgð á bú-
peningi sínum og beiti honum að-
eins á afgirt svæði. Skógrækt síðustu
áratuga hefur byggst á því að skóg-
ræktarlandið er girt og friðað fyrir
búpeningnum sem nýtur þeirra for-
réttinda í landi voru að geta valsað
um eins og blessuðum skepnunum
sýnist. Það er kominn tími á að girða
skepnurnar af í beitarhólfum en af-
létta umsátrinu um þá litlu skóga
sem tekist hefur að rækta upp.
Mér líst illa á hugmyndir sauð-
fjárbænda um að sauðfjárbúskap-
ur og skógrækt fari saman og að í
lagi sé að beita kindunum á skóg-
lendi. Afar erfitt er að halda rollun-
um frá skógræktinni en þar skemma
þær nýgræðinginn alveg sérstak-
lega. Ennþá erfiðara er að eiga við
eigendur þeirra, sumir þeirra að
minnsta kosti virðast telja það allt
í lagi að beita sauðkindum sínum
á annarra manna land. Ef sauðfé
verður beitt á skógana er voðinn
vís, skógarnir myndu stórskemm-
ast og í sumum tilvikum eyðast og
landið jafnvel enda eins og auðn-
in á Sprengisandi. Það er ekkert að
því að bóndi beiti búpeningi sínum
á eigið skóglendi. En það má alls
ekki gefa bændum veiðileyfi á skóg-
ræktarsvæði landsins sem fólk hef-
ur baslað við að rækta upp undan-
farna áratugi. Það gæti hugsanlega
gengið ef beitt yrði af ábyrgð og
með afar góðri stjórn. Svo er ekki
í dag, lög og reglur gera ráð fyr-
ir forgangi búpeningsins til lands-
ins gæða, mannfólkið mætir af-
gangi og þó enn frekar landið sjálft
sem smám saman blæðir út þegar
það missir gróðurþekjuna. Eigend-
ur búpeningsins bera enga ábyrgð.
Mikilvægast af öllu er því að banna
lausagöngu búfjár.
Tími okkar skógræktarfólks á
Akranesi, sem allt er áhugafólk
sem sinnir skógræktinni af hugsjón
einni, hefur í allt of miklum mæli
farið í að reka rollurnar út úr skóg-
ræktarsvæðum okkar og þess vegna
hafa önnur verk setið á hakanum.
Stígar í Slögu hafa ekki verið hirt-
ir eins og til stóð, ekki borið á bekki
og borð og síðast en ekki síst höfum
við ekki getað gróðursett tré í Slögu
svo nokkru nemi. Það er því mik-
ilvægt að við fáum frið til að rækta
skóginn okkar og skapa fagurt um-
hverfi sem fólk fær notið í friði fyr-
ir ágangi búfjár. Rollurnar geta ver-
ið á sínu beitarlandi sem er margfalt
stærra en það sem mannfólkið fær
náðarsamlegast til afnota.
Jens B. Baldursson
Höf. er formaður Skógræktarfélags
Akraness
- http://www.skog.is/akranes/
Pennagrein
Á sauðfé að eyða skógum landsins?
Hressir smalar. Fullorðið fólk, börn, hundar og einn dróni smöluðu í eitt skiptið í
Slögu.
Kindur á gróðurlitlu landi á Sprengisandsleið.
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Tjónaskoðum fyrir öll tryggingafélög
Borgarness
Bíldahöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is
fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf
BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR
Framleiðum eftir óskum hvers og eins
Mikið úrval efna, áferða og lita
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Vélaviðgerðir • Gírupptektir • Þrif á kælum
Rennismíði • Viðgerðarvinna
Vélaverkstæði Hillarí
Nesvegi 9
340 Stykkishólmi
Símar:
Sigurður 894-6023
Rúnar 694-9323
Smíðum úr stáli, járni og áli
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.isparketlist@parketlist.is
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4