Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201514
Heiðar Mar Björnsson kvikmynda-
gerðarmaður sem hefur undan-
farin ár verið búsettur í Lond-
on og Crawley á Englandi með-
an Sara Hjördís Blöndal, sambýlis-
kona Heiðars, lagði stund á nám
í leikmynda- og búningahönn-
un í Wimbledon College of Art.
„Sara er einmitt á Edinborgarfesti-
valinu núna með þrjár sýningar,“
sagði Heiðar þegar blaðamaður tók
hús á honum á dögunum. Saman
eiga þau Heiðar og Sara einn son,
Skorra Birni Blöndal Heiðarsson.
Fjölskyldan hefur ákveðið að flytja
heim til Íslands og setjast að á Akra-
nesi. „Ég og strákurinn komum
fyrir þremur vikum síðan og erum
við bara að koma okkur fyrir,“ seg-
ir Heiðar. „Það er algjör snilld að
vera kominn aftur á Skagann. Eng-
land mun auðvitað alltaf eiga stað í
hjarta mínu, þar áttum við frábær
ár. Við fórum út sem kærustupar í
ævintýraleit en komum heim sem
lítil fjölskylda. En þar sem mað-
ur ólst upp við mikið frelsi á Skag-
anum þá var maður alltaf aðeins
að pirra sig á veseninu og tillits-
leysinu í stórborginni, sveitahjart-
að var mun frekara en heimsborg-
aradraumurinn. Nú er bara búið að
taka bjarg af bakinu á mér og ég get
svifið frjáls út um allar trissur,“ seg-
ir Heiðar, léttur í bragði.
„Ég er harðkjarna Skagamaður
en það var samt Sara sem átti hug-
myndina að því að flytja hingað.
Ég þorði einhvern veginn aldrei að
nefna það sjálfur. En ég varð auð-
vitað alsæll þegar hún stakk upp á
því,“ bætir hann við. Síðan Heiðar
kom til landsins hefur hann unnið
hjá BÓB sf. vinnuvélum, fyrirtæki
í eigu föður síns og föðurbróð-
ur. „Ég gat fengið gömlu vinn-
una mína aftur. Það var vel þeg-
ið að geta starfað á Akranesi með-
an við erum að ná áttum og ég sé
mig alveg vinna þar áfram ef þeir
vilja hafa mig. En það gæti breyst
á morgun,“ segir Heiðar en bæt-
ir því við að honum þyki vörubíla-
akstur og sérstaklega gröfuvinna
mjög skemmtileg. „Þetta er líka
fínt til að komast aftur inn í samfé-
lagið og tengjast aftur fólkinu eftir
15 ár annars staðar.“
Kynntust við tökur
á Hæ Gosa
Heiðar nam á sínum tíma leik-
stjórn- og framleiðslu í Kvik-
myndaskólanum, auk þess sem
hann er sjálflærður klippari. „Svo er
ég búinn að taka fullt af handrita-
kúrsum og námskeiðum, þannig
að ég er eiginlega fyrst og fremst
menntaður sem handritshöfund-
ur,“ segir hann.
Heiðar hóf að starfa alfarið á sviði
kvikmyndagerðar árið 2007. Sem
handritshöfundur skapaði hann,
ásamt nokkrum félögum, meðal
annars sjónvarpsþættina Hæ Gosa,
sem sýndir voru við góðan orðstír á
Skjá einum, fyrst árið 2010. Heið-
ar kom að handritagerð og fram-
leiðslu fyrstu tveggja þáttaraðanna
en gekk úr skaftinu þegar Sara hóf
nám í Englandi og þau fluttust út.
Þess má geta að þau kynntust ein-
mitt við tökur á Hæ Gosa norður
á Akureyri, þar sem Sara aðstoðaði
við búninga. „Við spiluðum mik-
ið á mannlega þáttinn í Hæ Gosa.
Skrifuðum til dæmis eiginlega enga
„sketsa“ heldur lögðum áherslu á
að karakterarnir og það sem þeir
væru að gera eða segja væri upp-
spretta grínsins.“
Óstöðugar tekjur en
ánægjuleg vinna
En ef við lítum til baka, hvað varð
þá til þess að hann fór að starfa
að kvikmyndagerð á sínum tíma?
„Þetta byrjaði í Grundaskóla þeg-
ar Flosi Einarsson kennari lét okk-
ur skrifa stuttmyndahandrit. Svo
rétti hann okkur myndavél og
sendi okkur út til að búa mynd-
ina til. Þarna vorum við, ellefu
og tólf ára, með risamyndavél að
skapa eitthvað. Í kjölfarið sóttum
við stíft í að komast í tónmennt til
Flosa og myndirnar urðu betri. Við
lærðum að hugsa í senum og klipp-
ingum og fórum meira að segja að
„mixa“ okkur inn í bíómyndasen-
ur. Við héldum að við værum rosa-
lega klárir gæjar,“ segir Heiðar og
brosir.
„Svo lendir maður bara inni í
hringrásinni, eins og ég held að
flestir sem eru í þessu hafi gert.
Ég tók aldrei ákvörðun um að
verða kvikmyndagerðarmaður og
þetta var ekkert endilega einhver
draumur, þetta gerðist bara.“
Hann mælir þó ekkert endilega
með því að fólk leggi þennan starfs-
vettvang fyrir sig. „Það fer eftir því
hvað þú sættir þig við að þéna í líf-
inu. Ef þú vilt stöðugar tekjur og
launaseðil um hver mánaðamót, þá
nei. Á þeim tíma frá því vinna að
efni er á frumstigi og þar til það
er tilbúið til sýningar er tímakaup-
ið nánast ekkert,“ segir hann. „En
þetta er ógeðslega gaman. Það er
frábært að fá tækifæri til að segja
sögu með því að nota myndmál og
koma því í þannig form að fólk hafi
gaman af að horfa á þá sögu,“ bæt-
ir hann við. „Svo þegar efni er til-
búið heldur það áfram að gefa þér
tekjur, þegar fólk leigir í gegnum
veitur og slíkt. Maður á náttúru-
lega höfundaréttinn af því efni og
fær greitt til helmings á móti veit-
unni. Stöðugleikinn er aftur á móti
enginn.“
Í þessu samhengi leikur blaða-
manni forvitni á vita um skoðanir
Heiðars á höfundarréttarlögum og
ólöglegri dreifingu höfundarétt-
arvarins efnis á internetinu. Hann
kveðst ekki hafa mikinn hug á því
að ræða málin í þaula. Þess í stað
ávarpar hann þá sem sækja höf-
undaréttarvarið efni á persónulegri
nótum. „Ef fólk stelur íslensku efni
á netinu þá getur það ekki kraf-
ist þess að áfram verði hágæðaefni
búið til. Þetta eru tekjur sem fram-
leiðendur verða af.“ Í því sam-
hengi bætir hann því við að veit-
ur sem bjóða fólki upp á að leigja
efni séu nauðsynlegar til að koma
til móts við það sem er í gangi á
netinu. Fólk vilji nota þá tækni til
að sækja efni og því séu veiturn-
ar mikilvægar. „Þær eru meira að
segja sumar byrjaðar að framleiða
efni, sem er alveg frábært. En burt
séð frá því er auðvitað ótrúlegt að
hér á Íslandi, þar sem búa rúmlega
300 þúsund manns, sé framleitt
svona mikið sjónvarpsefni.“
Vinnur að heimilda-
mynd um Skagarokk
Þessa dagana vinnur Heiðar að
heimildamynd um Skagarokk,
tónleika sem haldnir voru á Akra-
nesi fyrir bráðum 23 árum. Jethro
Tull og Black Sabbath, tvær af
stærstu hljómsveitum rokksög-
unnar, voru fluttar til landsins og
léku á sitt hvorum tónleikunum í
íþróttahúsinu á Vesturgötu 25. og
26. september 1992. Fengu þessir
tónleikar nafnið Skagarokk. Heið-
ar leikstýrir myndinni, er handrits-
höfundur og framleiðandi. Aðr-
ir sem að verkefninu koma eru
Björn Þór Björnsson, handritshöf-
undur og framleiðandi og Sigurð-
ur I. Þorvaldsson, hljóðmeistari og
meðframleiðandi. Vinna þeir að
verkefninu hægt og rólega, enda
vinna þeir allir að öðrum hlutum
líka. „Björn Þór bróðir minn byrj-
aði að safna myndböndum, blaða-
greinum og útvarpsviðtölum sem
tengjast þessum tónleikum og var
kominn með fullt af efni sem hann
hafið mikinn áhuga á að gera eitt-
hvað við. Ég fór og skoðaði það hjá
honum og sá að þetta var bara efni
í mynd,“ segir Heiðar. „Björn Þór
er að læra fjölmiðlafræði og kem-
ur oft með skemmtilega vinkla og
hugmyndir sem mér hefði aldrei
dottið í hug. Hann sér þetta með
öðrum augum en ég, sem er mjög
gott.“
Til stendur að hitta þá sem stóðu
að tónleikunum fljótlega og taka
við þá viðtöl. „Það verður farið
yfir hvað mönnum gekk til, hvern-
ig þeir fengu hugmyndina og hvað
þurfti að gera til að þessir tónleikar
yrðu að veruleika. Það var ekkert
grín, þetta voru með metnaðar-
fyllri tónleikum sem haldnir voru
hér á landi á þessum tíma,“ seg-
ir Heiðar. „Það vill reyndar þann-
ig til að maður sem vann við und-
irbúninginn var oft með myndavél
á lofti. Hann tók oft myndbönd,
stutt viðtöl við mennina á bak við
tjöldin og fleira í þeim dúr. Þann-
ig að þetta verkefni var nokkuð vel
dokúmenterað frá byrjun.“
Hann telur að myndin verði
mjög mannleg og að áhorfendur
muni tengja við mennina sem voru
að reyna að gera eitthvað fyrir bæj-
arfélagið sitt. „Þetta verður miklu
meira um fólkið en endilega at-
burðinn sjálfan, þó auðvitað verði
einhverjar klippur frá tónleikun-
um. En aðdragandinn, afleiðing-
arnar og mennirnir sem stóðu að
þessu verða í forgrunni,“ segir
hann.
Áhugasömum er bent á að hægt
er að fylgjast með framgangi verk-
efnisins og leggja því lið á www.
skagarokk.is.
Aðspurður segir hann að önnur
verkefni við kvikmyndagerð ekki
vera á döfinni. „Ekki nema ég fái
eitthvað gott tilboð og það verð-
ur þá að vera algjörlega á mín-
um forsendum. Ég er mjög róleg-
ur með allt slíkt. Skagarokksverk-
efnið er skemmtilegt gæluverkefni
sem heldur mér á tánum. En þang-
að til eitthvað annað gerist ætla ég
að vera áfram á gröfunni hjá BÓB.
Það er mjög gaman,“ segir Heiðar
Mar Björnsson að lokum.
kgk
Heiðar Mar Björnsson er nýkominn heim frá Englandi
Varð alsæll þegar konan stakk upp á því að flytja á Skagann
Heiðar Mar Björnsson kvikmyndagerðarmaður.
Heiðar, Skorri Birnir og Sara Hjördís
við útskrift Söru frá Wimbledon
College of Art. Heiðar og Sara fóru
út til Englands sem par í ævintýraleit
en sneru heim sem lítil fjölskylda
því Skorri Birnir fæddist þar í landi á
meðan dvölinni stóð.
Við tökur á heimildamynd sem Heiðar vinnur að og ber nafnið Hafið lokkar.
Skorri Birnir með pabba sínum í gröfunni.