Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 23
www.kronan.is
– óskar eftir
þér!
Atvinnutækifæri
Sótt er um starfið á www.kronan.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2015
Vaktstjóri óskast í Krónuna Akranesi
Um vaktavinnu er að ræða
Starfslýsing:
• Þjónusta við viðskiptavini
• Verkstjórnun og þjálfun starfsfólks
• Ábyrgð og umsjón með fjármunum
• Vinna við undirbúning og fræmkvæmd vikutilboða
• Vera staðgengill verslunarstjóra í fjarveru hans
• Almenn verslunarstörf
Hæfniskröfur:
• Sjálfstæð og skipulögð
vinnubrögð
• Tölvukunnátta til að leysa
dagleg verkefni í Outlook
og Excel
• Góðir samskiptahæfileikar
og þjónustulund
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Nýir ábúendur hafa tekið við rekstri
fjárbúsins á Hesti í Borgarfirði. Það
eru þau Snædís Anna Þórhallsdótt-
ir og Helgi Elí Hálfdánarson bú-
fræðingar frá Hvanneyri. Blaða-
maður Skessuhorns tók sér bíl-
túr upp í Borgarfjörðinn og kíkti í
kaffi á Hesti. Snædís og hundurinn
Lukka tóku vel á móti blaðamanni,
Helgi kom svo að vörmu spori. „Ég
kem frá Akureyri en Helgi ólst upp
á Háhóli á Mýrum. Við kynntumst
á Hvanneyri þegar við byrjuðum
þar í námi árið 2009. Við vorum
þá bæði í BS námi í búvísindum og
útskrifuðumst úr því námi 2012.
Okkur og fleirum úr okkar bekk
þótti vanta eitthvað meira verklegt
í námið svo við ákváðum að bæta
búfræði við okkur og kláruðum það
nám 2013. Samhliða búfræðinám-
inu byrjuðum við í MS námi í bú-
vísindum og Helgi lauk því námi nú
í vor en ég stefni á að klára um jól-
in,“ segir Snædís.
Rekstur fjárbúsins á Hesti var,
ásamt kúabúinu á Hvanneyri, í
höndum Grímshaga ehf. en tek-
in var sú ákvörðun að endurskipu-
leggja rekstur þessara búa. Aug-
lýst var eftir áhugasömu fólki með
menntun í búfræði og reynslu af
búrekstri til að reka búið á Hesti.
Þau Snædís og Helgi voru valin úr
hópi umsækjenda og tóku þau við
búinu 1. júní. „Það hefði vel verið
hægt að finna þægilegri tíma til að
taka við svona búi en þetta er há-
annatími,“ segir Snædís og hlær.
„Það hefur þó allt gengið mjög
vel,“ bætir hún við.
Lukka var fyrsta verk
Aðspurð um hvernig fyrstu mán-
uðirnir hafa verið segjast þau fyrst
og fremst hafa haft nóg að gera en
að jafnframt hafi þetta verið mjög
skemmtilegt. „Fyrsta verk var nátt-
úrulega að fá sér fjárhundinn,“ segir
Snædís og horfir á hana Lukku sem
hoppar um kaffistofuna í von um
að ná einni flugu. „Þegar við tók-
um við voru allar ær bornar svo við
fórum eiginlega bara beint í sumar-
störfin. Við vorum að girða í tvær
vikur í júní og svo kom heyskapur,
en fyrri sláttur gekk mjög vel. Við
fórum líka að reka á fjall, en þar sem
þetta bú er kennslu- og tilrauna-
bú þurfti að vigta öll lömb áður en
þau fóru á fjall, það var hellings
vinna. Einnig höfum við verið að
taka til, þrífa og koma okkur fyr-
ir hér. Fjölskyldur okkar hafa líka
hjálpað mjög mikið og erum við
mjög heppin með fólkið í kringum
okkur,“ segir Helgi og bætir því við
að þau séu afar þakklát allri þeirri
aðstoð sem fjölskyldur þeirra hafa
veitt þeim. „Foreldrar hennar Snæ-
dísar búa á Akureyri en mamma
hennar hefur örugglega verið hér
samanlagt í mánuð að hjálpa okkur
og pabbi hennar í svona þrjár vik-
ur allavega. Svo hafa bara allir ver-
ið tilbúnir að hjálpa, pabbi að keyra
rúllur, mamma eldaði stórveislur í
mannskapinn og systkini og frænd-
fólk hafa komið og hjálpað til við
ýmislegt,“ bætir Helgi við. „Já,
mamma stökk nú bara á veggina og
fór að þrífa og pússa,“ segir Snæ-
dís og brosir og bætir því við að þau
hafi mjög gott bakland.
„Við höfum einhverjar hugmynd-
ir um breytingar á búinu en það eru
bara hugmyndir sem ég geri ráð fyr-
ir að eigi eftir að þróast og breytast.
Það er mjög erfitt að sjá út hvern-
ig við viljum hafa hlutina þegar féð
er enn úti. Fyrsta árið fer væntan-
lega bara í að koma okkur fyrir og
læra á allt, maður er nú enn að læra
á allt á nýjum stað,“ segir Helgi og
hlær. „Það er fullt af möguleikum
fyrir hendi hér og sjálfri þykir mér
spennandi að opna fjárhúsin fyrir
almenningi, þá til að gefa fólki kost
á að koma og sjá hvernig er á svona
sauðfjárbúi. Einnig langar mig að
prófa að selja beint frá býli,“ segir
Snædís. Þau segjast samt vera búin
að taka ákvörðun um eina breyt-
ingu og það er að fækka fénu og
hafa svona um 680-700 ær, allavega
til að byrja með.
Upplagt tækifæri
Aðspurð hvort það hafi alltaf staðið
til hjá þeim að fara út í búskap segja
þau það alltaf hafa komið til greina.
„Við gerðum kannski ekki ráð fyr-
ir því að hefja búskap núna en það
hefur alltaf komið til greina. Okk-
ur langaði jafnvel að flytja að Há-
hóli og koma eitthvað að búskapn-
um þar. Við hefðum þó alltaf þurft
að vinna úti líka og það er ekki mik-
ið um laus störf sem tengjast okkar
menntun hér í þessum landshluta.
Við vorum bara að ljúka námi
og rétt farin að hugsa hvað kæmi
næst. Þegar við sáum svo auglýst
hér þótti okkur þetta upplagt fyr-
ir okkur, alveg frábært tækifæri.
Við getum vonandi verið hér í ein-
hvern tíma og svo er aldrei að vita,
kannski flytjum við að Háhóli einn
daginn,“ segir Snædís.
Skólastarfið að
fara af stað
Nú er sumarið að líða undir lok
og stefna þau Snædís og Helgi á
að hefja seinni slátt í þessari viku.
„Háarsprettan er misjöfn en von-
andi næst hún af góðum gæðum,“
segir Helgi. Skólastarfið á Hvann-
eyri fer að detta í gang á næstu dög-
um og þá verður einnig mikið að
gera á Hesti. Þangað koma nem-
endur í verklega kennslu. „Nú fer
sauðfjárskóli RML að byrja og þá
koma nemendur hingað í kennslu
um lambadóma. Við rekum þá inn
lömb fyrir þau. Nýnemar frá Land-
búnaðarháskólanum kíkja líka hing-
að fljótlega og svo fer kennsla að
hefjast. Námið hefur verið endur-
skipulagt og það verður aukið vægi
á verklegan hluta og því örugg-
lega meira að gera hér líka,“ segir
Helgi. „Smalamennskur byrja svo
15. september og svo þarf að velja
ásetning og flokka sláturlömbin.
Öll lömb eru vigtuð og bakvöðvi
þeirra ómmældur og nemendur frá
Hvanneyri munu væntanlega koma
og taka einhvern þátt í því. Það er
því eitt og annað framundan,“ segir
Helgi að lokum.
arg
Helgi og Snædís ásamt hundinum Lukku með fallegt útsýni frá bæjarstæðinu í baksýn.
Nýir ábúendur á Hesti í Borgarfirði