Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201512 „Glöggt er gests augað – Hver er styrkur Hvalfjarðarsveitar og möguleg sóknarfæri,“ er heiti áhugaverðs verkefnis sem nem- endur við Landbúnaðarháskóla Ís- lands hafa unnið um Hvalfjarðar- sveit og verður nú kynnt. Á Hval- fjarðardögum um næstu helgi sýna nemendur við umhverfiskipulags- braut LbhÍ verkefni sem þau unnu í áfanga í landslagsgreiningu þar sem viðfangsefnið var Hvalfjarð- arsveit. „Það eru fleiri tækifæri í Hvalfjarðarsveit en stóriðja. Mark- miðið var að draga fram staðhætti og sérstöðu svæðisins með lands- lagsgreiningu og setja síðan fram framtíðarsviðsmyndir fyrir val- in svæði. Það er gert svo hægt sé að styrkja ímynd sveitarfélagsins út á við, taka vel ígrundaðar ákvarð- anir um framtíðarbyggð svæðisins, varðveita helstu sérkenni og styrkja landslagið,“ segir Helena Gutt- ormsdóttir kennari við umhverf- isskipulagsbraut LbhÍ. Hún segir að allir staðir hafi sína sérstöðu og sinn staðaranda. „Staðarandinn ræður hughrifum þeirra sem þangað koma. Það er því mikilvægt að draga fram og styrkja það jákvæða og sérstæða í staðar- andanum. Efnið sem er sett fram byggist á vettvangsskoðun á svæð- ið, Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveit- ar 2008-2020, frásögnum Arnheið- ar Hjörleifsdóttur, Árbók Ferða- félags Íslands frá árinu 1950 og ýmsum öðrum fræðilegum heim- ildum,“ segir Helena. Ulla Ped- ersen landslagsarkitekt og leið- beindi í hönnunarvinnu. Margar afar áhugaverðar hugmyndir komu fram eins og sjósundsaðstaða við Kísilverksmiðju og sögusetur við Fiskilæk. Sýningin verður opnuð í Ráðhúsinu á sunnudag kl. 13.00 og stendur út vikuna. mm Unnu verkefni um Hvalfjarðar- sveit í landslagsgreiningu Við mögulegt Sögusetur á Fiskilæk í Melasveit. Horft út á fjörðinn. Við Botnsskála. Hópurinn við braggahverfið á Miðsandi. Kaupfélag Borgfirðinga heldur sína árlegu sumarhátíð næstkom- andi laugardag frá klukkan 12 til 16. Þetta er í áttunda skipti sem há- tíðin fer fram og verður hún með svipuðu sniði í ár og undanfarin sumur. „Þetta er hátíð sem við vilj- um halda fyrir okkar viðskiptavini og alla aðra sem vilja kíkja í heim- sókn. Boðið verður upp á ís, pylsur, nammi og gos fyrir gesti og gang- andi. Krýndir verða íslandsmeistar- ar í reiptogi og keppt í hornstaura- kasti þar sem skráð er á staðnum. Gríðarlega öflugur prúttmarkað- ur verður og hvetjum við alla til að mæta góðir í prúttið,“ segir Mar- grét Katrín Guðnadóttir verslunar- stjóri KB í samtali við Skessuhorn. Þá verða ýmis fyrirtæki með kynn- ingu á vörum sínum og þjónustu og jafnvel von á fleiri en síðustu ár. Þar getur fólk smakkað og keypt ýmsan varning á góðu verði. „Þarna verða fyrirtæki á borð við MS, Eðalfisk, N1, Glerborg, Frístundahús og R2 Agró, auk annarra. Húsdýr verða til sýnis og teymt verður undir börn- um á hestum í boði Reiðskóla Guð- rúnar Fjeldsted.“ grþ Sumarhátíð KB verður haldin um næstu helgi í Borgarnesi Frá Sumarhátíð 2014 þar sem börn gátu brugðið sér á bak. Það verður einnig hægt í ár. Sjósund nýtur vaxandi vinsælda hér á landi en það hefur verið stundað í Ólafsvík til margra ára. Nú hef- ur aðstaða til sjósunds verið bætt en Hafnarsjóður Snæfellsbæjar setti á dögunum upp sturtu sem er við grjótgarðinn þar sem geng- ið er niður í fjöruna. Þórður hafn- arvörður stendur við sturtuna, eina sem vantar er úðarinn svo hægt sé að skella sér í kalda sturtu. þa Sturta fyrir sjósundsfólk Eins og fram hefur komið í Skessu- horni verða Hvalfjarðardagar haldnir um næstu helgi. Hátíð- in hefur vaxið að umfangi og fjöl- breytileika og er ýmislegt nýtt á döfinni. Meðal þess má nefna að sunnudaginn 30. ágúst verður Ör- lagasaga Hallgríms og Guðríð- ar eftir Steinunni Jóhannesdóttur flutt í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Höfundur flytur verk sitt og hefst sýningin klukkan 16:30. Staldrað er við mikilvægustu atriði í þroskaferli skáldsins, tengsl þeirra hjóna við háa sem lága á 17. öld, ástir þeirra og átök við yfirvöld, fátækt sem velsæld, börn þeirra og barnamissi, skáldfrægð, sjúkdóm og dauða. Sýningin var frumsýnd á Sögu- lofti Landnámssetursins í Borgar- nesi 2. apríl síðastliðinn við mjög góðar undirtektir og sýnd þar fram á vor. Steinunn var með gesta- leik á Goslokahátíð í Vestmanna- eyjum 4. júlí og í umsögn um sýn- inguna í Eyjafréttum sagði m.a: „Steinunn var ein á sviðinu allan tímann og flutti tölu sína blaða- laust og hiklaust, frásögnina mál- aði hún sterkum litum, hvert smá- atriði þaulhugsað. Hvergi var hik í frásögninni sem leið áfram, flutt af lærðri leikkonu en ekki síður tjáð af ástríðu mikillar þekkingar og ein- lægrar ástar til viðfangsefnisins.” Steinunn Jóhannesdóttir hef- ur um langt árabil fengist við ævi þessara einstæðu persóna sem sett hafa svo sterkan svip á sögu Ís- lendinga á 17. öld, Hallgímur sem eitt af mestu skáldum þjóðarinnar, Guðríður sem konan sem komst af frá Tyrkjaráninu 1627, sterk- ari, víðförulli og lífsseigari en flest- ar konur á hennar tíð. Steinunn lék Guðríði í leikriti Jakobs Jóns- sonar Tyrkja-Guddu í Þjóðleikhús- inu á sínum tíma (1983-84). Hún samdi og leikstýrði Heimi Guðríð- ar, sem sýnt var í kirkjum víða um land á árabilinu 1995-2000. Heim- ildaskáldsagan Reisubók Guðríð- ar Símonardóttur kom út 2001. Heimanfylgja, skáldsaga um upp- vöxt Hallgríms Péturssonar byggð á heimildum um ættfólk hans og samtíð kom út 2010 og barnabók- in Jólin hans Hallgríms 2014. Að auki hefur hún haldið fjölda fyrir- lestra um efnið og birt um það rit- gerðir. „Framkvæmdaraðilar Hvalfjarð- ardaga hvetja allt áhugafólk um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur að nýta sér þetta einstæða tækifæri til þess að hlýða á örlagasögu þeirra í Saurbæ á Hval- fjarðarströnd, á þeim stað sem bestu ljóð og sálmar Hallgríms urðu til. Enginn aðgangseyrir er inn á sýn- inguna og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir,“ segir í tilkynningu. mm Örlagasaga Hallgríms og Guðríðar á Hvalfjarðardögum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.