Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 25 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2015 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & smur, Nesvegi 5 Miðvikudaginn 2. september Fimmtudaginn 3. september Föstudaginn 4. september Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 438 – 1385 Allar stærðir ökutækja skoðaðar S K E S S U H O R N 2 01 5 Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 5 - L jó sm . G Ó Messa sunnudaginn 30. ágúst, Höfuðdaginn, kl. 14.00 ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA SÓLVARNARGLER OG HANDRIÐ M ynd: Josefine Unterhauser ispan@ispan.is • ispan.is urinn flautaður af, Víkingsmönn- um og stuðningsmönnum til mik- illar gleði. Gríðarlegur fögnuð- ur braust út og leikmenn sem og stuðningsmenn föðmuðust, þvílík- ur var fögnuðurinn. Ejub þjálfari Víkings var að von- um kampakátur í leikslok og brosti út að eyrum og fagnaði ásamt sín- um mönnum. Einn leikmaður Vík- ings sagði við blaðamann Skessu- horns að leik loknum að stuðn- ingur þeirra sem lögðu undir sig langa ferð til að hvetja liðið áfram hefði verið eins og tólfti maðurinn í liðinu. „Við erum þakklátir fyrir þennan gífurlega stuðning sem við fáum.“ Fagnað eins og þjóðhetjum Stuðningsmönnum Víkingsliðs- ins var mjög létt að leik loknum og mátti jafnvel sjá tár á hvarmi. „Úff, þetta var tæpt en þetta hafð- ist og við erum á toppnum, sjö stig í næsta lið svo þetta lítur æðislega vel út.“ Að leik loknum var haldið til rútu og ekið heim á leið. Stutt stopp var á Blönduósi til þess að taka eldsneyti á farartækið. Svo var stoppað í Staðarskála í góðan tíma og fengið sér kvöldmat. Stuttu seinna komu leikmenn Víkings á staðinn ásamt aðstoðarmönn- um liðsins og var þeim fagnað eins og þjóðhetjum. Leikmenn fengu faðmlög og voru teknir á spjall og lá vel á leikmönnum þótt sumir þeirra hafi haltrað út af meiðslum sem þeir hlutu í þessum hörkuleik, en það spillti ekki gleði þeirra þar sem meiðslin eru ekki alvarleg. „Við verðum búnir að ná okk- ur góðum þegar næsti leikur fer fram,“ sagði Alfreð Már Hjaltalín brosmildur. Næsti leikur Víkings fer fram í Grindarvík þriðjudaginn 1. september. Vinni Víkingur þann leik er liðið komið í efstu deild að ári. Eftir dvölina í Staðarskála var ekki til setunnar boðið og haldið áfram heim á leið undir öruggri bíl- stjórn Guðmundar Þorgrímssonar sem tók að sér að aka rútunni alla þessa leið fram og til baka. „Strák- ar, heyrið þið nú vel,“ sagði Hákon Þorri Hermannsson stuðnings- maður Víkings. „Við fjölmennum til Grindarvíkur er það ekki? Og þú líka,“ sagði Hákon við frétta- ritara Skessuhorns. „Þú verður að mynda sögulegan atburð þegar við Hrvoje Tokic skorar fyrsta mark Víkings strax á annarri mínútu. Fagnað innilega. Egill Jónsson í harðri baráttu. Kristófer Eggertsson fékk óblíðar móttökur í leiknum og hér fær hann gott klapp á kollinn. Emir Dokara var gríðarsterkur í vörn Víkings og gaf að venju ekki tommu eftir. Kenan Turudija er öflugur leikmaður. tryggjum okkur upp.“ Menn tóku vel undir með Hákoni og ætla að fjölmenna á næsta leik Víkings og blaðamaður æltar einnig. Gríðargóð stemning var alla heimleiðina og þrátt fyrir ferða- þreytu voru menn kátir og hress- ir. Vel var tekið undir þegar stuðn- ingsmannalag Víkings var spilað í hljómtækjum rútunnar. Komið var í Borgarnes um klukkan 21 og þeir sem fóru út þar voru kvaddir með klappi og faðmlögum á báða bóga. „Strákar, við sjáumst á næsta leik,“ var hrópað. Óhætt er að segja að þessi ferð hafi verið eins og góð fjölskylduferð. Samheldnin var með einsdæmum og Víkingslið- ið hefur frábæra stuðningsmenn í blíðu og stríðu. Mættu mörg önnur lið vera stolt af því að eiga stuðn- ingsmenn eins og Víkingsliðið hef- ur. af Guðmundur Þorgrímsson spjallar við Ejub. ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Eiríkur J. Ingólfsson ehf. S ke ss uh or n 20 13

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.