Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 20152
Akranes með, þar sem Fjölbrauta-
skóli Vesturlands á Akranesi sá sér
ekki fært að taka þátt. Viðfangs-
efni rannsóknarinnar fólst í því að
kanna hversu stór hluti ferðamanna
var í viðskiptamannahópi verslana
og var ferðamaður skilgreindur sem
íbúi utan sveitarfélagsins. Rann-
sóknin hafði jafnframt það hliðar-
markmið að tengja saman atvinnu-
líf og skóla. Nemendur framhalds-
skóla voru því fengnir til að safna
saman gögnum með þeim hætti að
ræða við viðskiptavini þegar þeir
komu út úr verslunum. Þetta unnu
þeir í samstarfi við kennara sína og
starfsmann SSV. Með þessu fengu
nemendur kynningu á því hvern-
ig félagsvísindamenn starfa og at-
vinnulífið naut starfskrafta nem-
endanna. Lagt var upp með ítarlega
könnun og var því ákveðið að safna
ýmsum áhugaverðum bakgrunns-
upplýsingum um viðskiptavini og
eiga þannig kost á að greina áhrif
ýmissa þátta um kauphegðun neyt-
enda.
Ferðamenn versluðu
flestir í Borgarbyggð
Niðurstöður könnunarinnar benda
til þess að 31% af veltu smávöru-
verslunar í Borgarbyggð hafi verið
vegna ferðamanna. Þá er útlit fyr-
ir að umferð ferðafólks sé mest í
gegnum Borgarnes. Einnig sýndu
niðurstöður að 17% verslunar í
Dalabyggð væri vegna ferðafólks en
8% á Snæfellsnesi. Ferðamenn gátu
verið fólk á ferðalagi vegna vinnu
eða í frítíma sínum, Íslendingar eða
útlendingar. Bent er á að könnun-
in var gerð í febrúarmánuði, þeg-
ar ferðamennska var í lágmarki og
vera kann að hlutfallið innan lands-
hlutans sé annað á háannatíma.
Karlar eyddu minna
Þátttakendur í könnuninni voru
568 talsins og var meðalaldur
þeirra 43 ár. Í niðurstöðum könn-
unarinnar kom meðal annars í
ljós að verslun hvers og eins var
að jafnaði 4.908 kr. í hverri versl-
unarferð á öllum svæðum. Meðal-
verslun í Borgarnesi var 5.407 kr.,
4.059 kr. í Búðardal og 4.372 kr. á
Snæfellsnesi. Niðurstöður leiddu
einnig í ljós að fólk í sambúð ger-
ir innkaup fyrir 37% hærri upp-
hæð í hverri verslunarferð en þeir
sem búa einir og að þeir sem búa
á Íslandi eyða minna í hverri versl-
unarferð en þeir sem búa í öðrum
löndum. Þá var vægur marktæk-
ur munur eftir kyni viðskiptavinar
á því hvað verslað var í hverri ferð
en karlar keyptu fyrir 607 kr. lægri
fjárhæð í hverri ferð. Þá kom fram
að almennt gildir að eldri einstak-
lingar keyptu fyrir hærri upphæðir
en þeir yngri en upp að ákveðnum
aldri þó. Einstaklingar sem voru 49
ára gamlir keyptu að meðaltali fyrir
hæstu fjárhæðir í hverri verslunar-
ferð.
grþ
Skessuhorn minnir á að tvær hátíðir, en þó
af ólíkum toga, verða um helgina í lands-
hlutanum. Hvalfjarðardagar verða haldnir
hátíðlegir um næstu helgi með fjölbreyttri
dagskrá út um alla sveit. Sumarhátíð KB
verður á sínum stað við kaupfélagshúsið við
Egilsgötu á laugardaginn frá klukkan 12-16.
Þá má minna á að vestlenskir þátttakend-
ur verða í hópi fleiri á Matarhátíð í Hörpu
um helgina þar sem þeir sýna og selja vörur.
Þetta og margt fleira er í boði.
Spáð er hægum vindi og björtu veðri í
landshlutanum fram eftir degi í dag, mið-
vikudag. Hvessir og fer að rigna um kvöld-
ið. Hiti á landinu verður 10 til 20 stig, hlýjast
suðvestanlands. Á fimmtudag verður norð-
austan 3 til 10 m/s, en 10-18 norðvestan
til á landinu. Rigning eða súld fyrir norðan
og austan en stöku skúrir á Suður- og Suð-
vesturlandi. Hiti frá 7 stigum við norðvest-
urströndina, upp í 17 stig suðvestanlands.
Á föstudag spáir norðan 8-15 m/s, hvass-
ast norðan- og vestanlands. Rigning á Vest-
fjörðum og Norðurlandi, skúrir austanlands
en bjartviðri á Suðurlandi. Hiti 4 til 12 stig,
kaldast norðvestan til en 12 til 17 stiga hiti
sunnanlands að deginum. Um helgina er
útlit fyrir norðlægar áttir og léttskýjað verð-
ur suðvestanlands.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Borðar þú oft skyndimat?“ 4,79% svarenda
segjast aldrei borða skyndimat. Yfirgnæf-
andi meirihluti þátttakenda, eða 77,93%
borða skyndimat afar sjaldan. „Nokkrum
sinnum í viku“ sögðu 15,43% svarenda en
fæstir borða skyndimat á hverjum degi, eða
1,86% þátttakenda.
Í næstu viku er spurt:
Hver/jir sjá um þvottavélastjórnun á
þínu heimili?
Víkingsmenn í fótboltanum eru að gera
góða hluti þessa dagana og eiga góða
möguleika á að spila upp um deild. Þá eru
Skagastúlkur að koma sterkar inn á síðari
hluta mótsins, hafa skorað 23 mörk í þrem-
ur síðustu leikjum og eru komnar í úrslita-
keppni um laust sæti í úrvalsdeild. Þetta
knáa knattspyrnufólk hlýtur sæmdarheitið
Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Ungur myndlist-
armaður opnar
sýningu
AKRANES: Skagamaðurinn
Þorvaldur Arnar Guðmundsson
mun opna myndlistarsýningu í
Bókasafni Akraness föstudaginn
28. ágúst kl. 14. Sýningin verð-
ur svo opin á opnunartímum
safnsins en henni lýkur 21. sept-
ember. Þorvaldur Arnar hefur
teiknað og málað frá barnsaldri
og verið undir áhrifum frá jap-
anskri teiknimyndahefð en samt
þróað með sér mjög persónu-
legan stíl og farið mikið fram.
Hugmyndir hans að myndefni
hefur hann m.a. sótt í goðafræði
sem hann hefur hrifist af. Hann
útskrifaðist af starfsbraut Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi á þessu ári, varð líka tvítug-
ur á árinu og síðast en ekki síst
komst hann inn í diplómanám
í Myndlistaskóla Reykjavíkur,
einn af tólf nemendum, og hef-
ur þar nám nú í haust. Þetta ár
er því viðburðaríkt í lífi hans og
verður gaman að fylgjast með
honum í framtíðinni. Þorvaldur
Arnar hefur notið hefðbundinn-
ar myndlistarkennslu í Grunda-
skóla og Fjölbrautaskóla Vest-
urlands, auk þess sem hann hef-
ur notið leiðsagnar Hrannar
Eggertsdóttur myndlistarkenn-
ara í nokkur ár.
–fréttatilk.
Söfnuðu fyrir
RKÍ
Þau Berglind Huld, Fannar
Atli og Victoria Þórey á Akra-
nesi héldu tombólu og söfnuðu
6.841 kr. sem þau færðu Rauða
krossinum að gjöf. RKÍ á Akra-
nesi þakkar þeim kærlega fyrir
þeirra framlag.
-fréttatilk.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Opinn íbúafundur um rekstur og skipulag fræðslumála verður haldinn í Ársal Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri miðvikudaginn 2. september nk. kl 20:00
Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Kynning á ákvörðunum sveitarstjórnar um breytingar á rekstri og skipulagi Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyrardeild
3. Umræður og fyrirspurnir
Sveitarstjórn
Íbúafundur
„Ég hef áhyggjur af vaxandi þyrlu-
flugi með ferðamenn um þjóðgarða
og vinsæla áfangastaði ferðamanna
um allt land. Þetta finnst mér hafa
vaxið mikið á yfirstandandi ári,“
segir Jón Jóel Einarsson sem starf-
ar við leiðsögn og ferðaþjónustu
meðal annars á Snæfellsnesi. „Það
á ekki síst við um þjóðgarðinn Snæ-
fellsjökul og hef ég orðið vitni að
lendingum þyrla á Jöklinum, með
ströndinni og bæði á Hellnum og
Arnarstapa.“ Jón Jóel hefur auk
þess heyrt af lendingum við Vatns-
helli. Hann kveðst hafa náð tali af
flugmanninum sem lenti þyrlu í
liðinni viku ofan við Fjöruhúsið á
Hellnum og sagðist sá hafa feng-
ið leyfi fyrir lendindu hjá Fjöru-
húsinu. „Það má vel sjá á myndun-
um hver og hvaða fyrirtæki er hér
á ferðinni. Frekjan finnst mér hafa
náð hámarki núna 20. ágúst þegar
lent var með tvo ferðamenn í kríu-
varpinu við hlið styttunnar af Bárði
Snæfellsás. Þetta finnst mér gal-
ið.“ Jón Jóel biðlar til þjóðgarðs-
ins og Náttúrustofu Vesturlands að
starfsmenn þessara stofnana beiti
sér fyrir því að settar verði reglur
og hömlur á þessa, að hans sögn yf-
irgengilegu truflun og frekju gagn-
vart mönnum og dýrum, a.m.k.
innan þjóðgarðsins.
mm
Hefur áhyggjur af vaxandi þyrluumferð
Þyrlu var lent í kríuvarpinu við styttuna af Bárði Snæfellsás síðastliðinn fimmtu-
dag. Það fannst Jóni Jóel og fleiri íbúum á svæðinu ganga of langt. Ljósm. jje.
Í febrúar á þessu ári stóðu Sam-
tök sveitarfélaga á Vesturlandi fyr-
ir könnun á kauphegðun viðskipta-
vina smávöruverslunar á nokkrum
stöðum á Vesturlandi. Verkefnið var
samstarf SSV, nemenda og starfs-
fólks Menntaskóla Borgarfjarðar og
Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Könn-
unin náði til Borgarness, Búðar-
dals, Stykkishólms, Grundarfjarðar
og Ólafsvíkur. Ekki náðist að hafa
Kauphegðun Vestlendinga könnuð
Frá Nettó í Borgarnesi. Ljósm. úr safni; mm.