Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Page 6

Skessuhorn - 04.11.2015, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 20156 Verðendur- skoðun lækkar lyfjakostnað LANDIÐ: Nýafstaðin endurskoðun lyfjagreiðslu- nefndar á verði lyfseðils- skyldra lyfja hér á landi leiðir til lækkunar lyfja- verðs sem áætlað er að nemi samtals um 773 millj- ónum króna á ári. Lækkun- in leiðir til lægri útgjalda sjúkratrygginga og lækkar einnig kostnað sjúklinga. Í lyfjalögum er kveðið á um það markmið að lyfjakostn- aði hér á landi skuli hald- ið í lágmarki. Á grundvelli þess er lyfjagreiðslunefnd falið að sjá til þess að lyfja- verð sé að jafnaði sambæri- legt við verð í viðmiðunar- löndum á Evrópska efna- hagssvæðinu, sem eru Dan- mörk, Finnland, Noreg- ur og Svíþjóð, líkt og fram kemur í reglugerð um lyfja- greiðslunefnd. Verðsaman- burðurinn tekur til allra lyfseðilsskyldra lyfja í lyfja- verðskrá, jafnt apótekslyfja og sjúkrahúslyfja, samtals 2.985 vörunúmera. Sam- anburður á apótekslyfjum byggist á meðalverði í við- miðunarlöndunum fjórum en tekur mið af lægsta verði á sjúkrahúslyfjum í sömu löndum. –mm Kynna nýjan Vegvísi í ferða- þjónustu VESTURLAND: Á næstu dögum og vikum munu Ragnheiður Elín Árnadótt- ir iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, Grímur Sæmund- sen formaður SAF og Helga Árnadóttir framkvæmda- stjóri SAF fara um landið og kynna á opnum fundum nýja Vegvísinn, stefnumörk- un í ferðaþjónustu. Á fund- unum munu þau fara yfir helstu atriði nýju ferðamála- stefnunnar og svo taka við opnar umræður og skoðana- skipti. Fundirnir eru öllum opnir og eru aðilar í ferða- þjónustu jafnt sem almennir borgarar hvattir til að mæta. Heitt verður á könnunni og heit súpa á hádegisfund- unum. Á Vesturlandi verða opnir fundir mánudaginn 9. nóvember. Annars vegar í Samkomuhúsinu í Grund- arfirði kl. 12 og hins vegar á Hótel Borgarnesi kl. 16:30. Nánari upplýsingar má finna á www.ferdamalastefna.is. -grþ Sveppur í Orkuveitu- húsinu RVK: Í ljós hafa kom- ið alvarlegar rakaskemmd- ir á höfuðstöðvum Orku- veitu Reykjavíkur við Bæj- arháls 1 í Reykjavík. Unn- ið er að mati á umfangi þeirra,“ segir í tilkynningu frá OR: „Skemmdirnar upp- götvuðust í lok ágúst. Sýni voru tekin og í þeim fund- ust sveppagró. Starfsfólk var þá upplýst og það látið vita af því að sýni yrðu tekin víð- ar til að kanna umfang vand- ans. Jafnframt var hluti starf- seminnar færður til í húsinu. OR fékk til ráðgjafar sér- fræðinga í þessum efnum frá verkfræðistofunni Eflu. Nú er unnið að áætlun um það hvernig viðgerð verður hátt- að. Undirbúningur viðgerð- anna og viðgerðirnar sjálf- ar munu taka nokkuð lang- an tíma og röskun verður á starfsemi í húsinu á með- an. Þegar í stað verður grip- ið til aðgerða til að draga úr hugsanlegum áhrifum á heilsu starfsfólks. Árið 2013 var húsnæðið skoðað með tilliti til sveppagróðurs af þessu tagi. Þá fundust engin gró. Við skoðunina nú kom einnig í ljós að plötur á ytra byrði hússins hafa losnað og því verður farið yfir festingar þeirra allra á næstu vikum,“ segir í tilkynningu frá OR. –mm Nakinn maður AKRANES: Í dagbók lög- reglunnar á Vesturlandi kemur það m.a. fram að til- kynnt var um nakinn karl- mann á gangi á Akranesi. Manninum hlaut að hafa orðið kalt og hefur forðað sér inn í hlýjuna fljótlega, því hann fannst ekki við eft- irgrennslan lögreglu. Kalsa- veður var þegar þetta var og vissulega betra að klæða sig eftir aðstæðum. –mm Kirkjumálasjóður tapaði í síðustu viku fyrir Héraðsdómi Vesturlands máli sem sjóðurinn höfðaði gegn Kára H Jónssyni landeiganda að jörðinni Haga í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi. Í máli sjóðsins gegn Kára hélt kirkjan því fram að öll hlunn- indi að æðarvarpi í Gamlahólma í Hagavatni, tilheyrði kirkjujörð- inni og prestsetrinu að Staðastað og að öðrum en kirkjunni, sem eiganda Staðastaðar, væri óheimilt að nýta þessi hlunnindi. Kári hefur um árabil tekist á við Biskupsstofu um æðardún sem hann tínir á landi sínu, en kirkjan vildi fá viðurkennt að hún ætti rétt á tekjum af fjórum kílóum af dúni á ári hverju með vís- an í lög um ítöku frá 1952. Í nið- urstöðu héraðsdóms segir að ekki liggi fyrir í málinu nein gögn, eins og skattframtöl eða önnur rekstr- argögn, sem renna styrkari stoð- um undir eða sýni fram á að dún- tekja í hólmanum hafi verið stund- uð óslitið og samfleytt frá Staða- stað eftir 8. júlí 1954, þegar fyrr- nefnd lög tóku gildi, þannig að til hefðar gæti hafa stofnast, en kirkj- an hélt því fram að ákveðin hefð á tínslu æðardúns væri komin á, sem gerði það að verkum að kirkj- an ætti hlutdeild í öllum verðmæt- um sem skapast af tínslunni. Þessu hafnaði héraðsdómur. Sjálfur kveðst Kári í samtali við Skessuhorn hafa á sínum tíma boðist til að semja um málið til að koma í veg fyrir dómsmál, en því hafi kirkjan hafnað. Dómsorð voru þau að Kári H Jónsson var sýknað- ur af dómkröfum Kirkjumálasjóðs og getur óáreittur haldið áfram að tína æðardún á landi sínu. Kirkju- málasjóði var gert að greiða 1.200 þúsund krónur í málskostnað. mm Kirkjumálasjóður tapar máli um nýtingu hlunninda Deilan snérist um nýtingu æðardúns í Gamlahólma. Framkvæmdir eru hafnar við að stækka gistihúsið að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi um helm- ing. Fjölgað verður í gistirými um 20 herbergi, stækkað úr 20 í 40 her- bergi. Fyrsta skóflustungan að fram- kvæmdunum var tekin á miðvikudag í síðustu viku. „Já, við erum aðallega að fara að bæta við herbergjum, auka gistirýmið. Þessi 20 nýju herbergi til viðbótar við þau 20 sem eru fyr- ir verða í húsi samtengdu við gisti- húsið sem er fyrir. Nýja byggingin á að verða tilbúin sem fyrst. Ég var að lesa í Skessuhorni að ferðaþjón- ustan sé orðin aðal bransinn svo það er ekki seinna vænna, sagði Keli vert, Þorkell Símonarson í Langa- holti, þegar Skessuhorn náði tali af honum í önnum við að grafa fyrir grunni nýja hússins. „En við áætl- um að ná að ljúka þessu fyrir næsta sumar.“ Herbergin í nýju gistiálmunni verða öll tveggja manna með baði. „Það verða öll nútíma þægindi eins og kröfur eru til í ferðaþjónustunni í dag. „Það er gaman að hugsa til þess að elsti hluti gistihússins hér er frá 1985 eða 30 ára. Það var sér- byggt yfir ferðamenn og ekki mörg- um sem datt það þá í hug í sveitum landsins að reisa gistihús fyrir ferða- menn. Nú 30 árum síðan er þetta hins vegar orðin þörfin, 40 herbergi í Langaholti. Sumir segja reyndar að við hefðum átt að stækka enn meira við okkur í þessum áfanga. Það er búið að vera vitlaust að gera, mik- ill ófriður af ferðamönnum,” seg- ir Keli og hlær dátt. „Sumarið var mjög gott, eins og reyndar síðustu sumur einnig.“ mþh Gistirýmum að Langaholti fjölgað um helming í vetur Grafa tók fyrstu skólfustungun að nýju gistiálmunni að Langaholti miðvikudaginn 28. október.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.