Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Síða 10

Skessuhorn - 04.11.2015, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 201510 Fjölbrautaskóli Vesturlands Innritun á vorönn 2016 Fjölbrautaskóli Vesturlands Vogabraut 5, 300 Akranesi Sími 433-2500 skrifstofa@fva.is www.fva.is Námsbrautir í boði Stúdentsbrautir – 3 ára brautir Náttúrufræðabraut Félagsfræðabraut Opin stúdentsbraut Listnámssvið Tungumálasvið Viðskipta- og hagfræðisvið Afreksíþróttasvið Iðnnám Húsasmíði Húsgagnasmíði Vélvirkjun Grunndeild bíliðngreina Rafvirkjun Meistaraskóli Brautabrú Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám Dagskóli Innritun fyrir nám í dagskóla á vorönn 2016 fer fram rafrænt á menntagatt.is eða á skrifstofu skólans dagana 1.-30. nóvember. Nám með vinnu og meistaranám Búið er að opna fyrir umsóknir í húsasmíðanám, vélvirkjanám og almennan hluta náms til iðnmeistaraprófs með vinnu fyrir vorönn 2016. Umsóknum skal skila á skrifstofu skólans fyrir 1. desember 2015. Nánari upplýsingar gefa Dröfn Viðarsdóttir, áfangastjóri, drofn@fva.is og Ólafur Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi, olafurharalds@fva.is Heyrnarmælingar Ráðgjöf - Aðstoð Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík • www.hti.is Sími: 581 3855 • Netfang: hti@hti.is BORGARNES 5. nóvember kl 09 – 12 AKRANES 5. nóvember kl 14 – 18 Staðsetning v/heilsugæslustöð SK ES SU H O R N 2 01 5 Orkuveita Reykjavíkur hefur far- ið fram á nauðungarsölur á íbúð- um nemendagarða á Bifröst vegna ógreiddra vatnsreikninga. Alls nema kröfurnar 14,25 milljónum króna og eru vegna skulda 205 íbúða í eigu þriggja félaga. Tilkynningar um nauðungarsölurnar voru birt- ar í Lögbirtingarblaðinu í liðn- um mánuði. „Þetta var einn reikn- ingur frá því í fyrra sem lenti fyrir slysni til hliðar og var ekki borgaður. Hann fór svo inn í innheimtuferli sem var þannig að við fengum ekk- ert að vita fyrr en uppboðsferlið var farið í gang. Við erum að reyna að leysa þetta samhliða því að Íbúðal- ánasjóður er að vinna á fullu í end- urskipulagningu á lánamálum fast- eignafélaganna hér á Bifröst,“ segir Vilhjálmur Egilsson rektor. Vilhjálmur segir að vonir standi til að þessi skuld við Orkuveituna sé mál sem verði leyst samhliða þeirri fjárhagslegu endurskipulagningu sem Íbúðalánasjóður vinnur nú að. „Þessi krafa frá Orkuveitunni kom okkur mjög að óvörum. Það var ekki látið vita að þetta væri ógreitt heldur fór þetta í innheimtuferli og uppboð með tilheyrandi kostnaði sem hækk- ar reikninginn. Þetta eru þrjú íbúða- félög og þau eru misjafnlega vel sett en hafa ekki beint með skólann að gera. Skuldir þeirra eru miklu meiri en þau ráða við. Ég vona að þetta leysist en það er ljóst að þessir pen- ingar til að greiða þessar kröfur eru ekki til á bók. Við erum að fleyta þessu áfram og höfum beðið um fresti um leið og við vonumst til að geta lokið þessari endurskipulagn- ingu með Íbúðalánasjóði tiltölulega hratt,“ segir Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst. mþh/ Ljósm. af Bifröst/Árni Sæ- berg. Íbúðir á Bifröst í uppboðsferli vegna ógreiddra hitaveitureikninga Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð- ar 27. október síðastliðinn voru lögð fram gögn varðandi stofnun sameig- inlegs öldungaráðs Dalabyggðar og Reykhólahrepps í samvinnu við félag eldri borgara. Meðal þess voru drög að erindisbréfi fyrir öldungaráðið. „Þetta ráð er hugsað sem tengiliður milli sveitarstjórnar og eldri borg- ara varðandi mál sem snerta eldra fólk í sveitarfélaginu. Með stofnun þess standa vonir til að þessi tenging verði betri. Öldungaráðið verður þannig sveitarstjórnum til ráðgjafar og sveitarstjórn skal leita umsagnar þess varðandi mál sem snerta eldri borgara,“ segir Eyþór Jón Gíslason formaður Byggðaráðs Dalabyggðar. „Við erum líka með ungmennaráð sem er sambærilegt við öldungaráð- ið,“ segir hann. Í drögum að erindisbréfi öldunga- ráðsins var lagt til að sveitarstjórnir Dalabyggðar og Reykhólahrepps skipi hvor um sig tvo fulltrúa og tvo til vara í öldungaráð. Félag eldri borgara í Dalasýslu og Reykhóla- hreppi skipi tvo fulltrúa og tvo til vara. Kjörgengir eru þeir sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Skipun- artími ráðsins er kjörtímabil sveitar- stjórna. Þetta erindisbréf var sam- þykkt samhljóða. Eyþór Jón Gísla- son og Ingveldur Guðmundsdótt- ir verða fulltrúar Dalabyggðar í öld- ungaráði til loka kjörtímabils. Til vara eru þau Þorkell Cýrusson og Halla S. Steinólfsdóttir. mþh Stofna öldungaráð fyrir Dala- byggð og Reykhólahrepp Búðardalur að hausti. Nú hafa Dalabyggð og Reykhólahreppur stofnað sameigin- legt öldungaráð sem skal verða sveitarstjórnum til ráðgjafar í málefnum eldri borgara. Fimmta árið í röð bauð trygginga- félagið VÍS viðskiptavinum með F plús tryggingu að næla sér í húfu fyrir börnin. „Í upphafi var eftir- spurnin enn meiri en við eigum að venjast og greinilegt að margri biðu eftir húfunum. Hér á Akranesi þurftum við að fá hraðsendingu með fleiri húfum svo fólk færi ekki tóm- hent heim eftir fyrstu vikuna. Húf- urnar njóta mikilla vinsælda og það er mjög ánægjulegt að afhenda þær,“ segir Þorbjörg Magnúsdóttir þjón- ustustjóri VÍS á Vesturlandi. Á tveimur vikum voru 17 þús- und húfur sóttar á skrifstofur VÍS um allt land. „Akurnesingar og nær- sveitungar fengu vel yfir þúsund húfur og annars staðar á Vesturlandi ruku þær líka hratt út þannig að á svæðinu öllu gáfum við um tvö þús- und húfur. Þetta er bæði gefandi og skemmtilegt verkefni. Það er mjög gaman að fá börnin í heimsókn. Að senda þau síðan á braut með skín- andi fallega húfu sem eykur öryggi þeirra í umferðinni er svo jafnvel enn betra.“ -fréttatilkynning Tvö þúsund VÍS húfur á Vesturland Tvíburarnir Guðrún Alda og Atli Freyr Ómarsbörn í Borgarfirði með húfurnar sínar. Frá vinstri: Arna Sigrún Kjartansdóttir, Kristján Freyr Tómasson og Hanna María Guðnadóttir í Grundarfirði eru greinilega í skýjunum með nýju VÍS húfurnar sínar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.