Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 15
Heiðarskóli 50 ára
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Nordisk biblioteksvecka
Vänskap i Norden
Nordisk biblioteksuge
Venskab i Norden
Nordisk bibliotekuke
Vennskap i Norden
Pohjoismainen kirjastoviikko
Ystävyys Pohjolassa
Norræn bókasafnavika
Vinátta á Norðurlöndum
Norðurlendsk bókasavnsvika
Vinalag í Norðurlondum
Davviriikkalaš girjerájusvahkku
Ustitvuohta Davvin
Nunat Avannarliit atuagaateqarfiisa
sapaatip-akunnerat
Avannaani Ikinngutigiinneq
9/11 – 15/11 2015
www.bibliotek.org
Sa
ra
L
un
db
er
g,
S
ve
ri
ge
9. nóvember, mánudagur kl. 10
Dagrenning með yngstu kynslóðinni Aldís Eiríksdóttir
les úr bókinni Vöffluhjarta eftir Maria Parr. Nemendur
frá Kleppjárnsreykjum og Hnoðrabóli koma í heimsókn
10. nóvember, þriðjudagur kl. 20:30
Fyrirlestrar í héraði „Einn kvenmaður“
– Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur flytur. Vilborg
vinnur nú að þriðju bók sinni um Auði djúpúðgu
og fjallar um reynslu sína af þeim skrifum og því
að miðla fornsögulegu efni til nútímans
Umræður og kaffiveitingar. Aðgangur kr. 500
12. nóvember, fimmtudagur kl. 20
Prjóna-bóka-kaffi með upplestri og norrænu ívafi
Páll S. Brynjarsson les úr Egils sögu og kynnir starf
Norræna félagsins
Norræna bókasafnavikan er verkefni á vegum
Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að
efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir
á Norðurlöndunum og nágrenni
Norræna bókasafnavikan
Frásagnarlist og
sagnaauður í öndvegi
Snorrastofa
í Reykholti
9.–15. nóvember 2015
Vinátta er
þema vikunnar
Páll S. Brynjarsson
Vilborg DavíðsdóttirAldís Eiríksdóttir
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
samþykkti samhljóða á fundi sín-
um þriðjudaginn 27. október ítar-
legar athugasemdir við tillögu að
starfsleyfi fyrir álver Norðuráls
sem felur í sér stækkun álversins.
Verði hún að veruleika mun álverið
á Grundartanga geta framleitt 50
þúsund tonnum meira af áli á árs-
grundvelli. Núgildandi starfsleyfi
sem rennur út 2020 miðast við 300
þúsund tonna ársframleiðslu. At-
hugasemdirnar höfðu áður komið
frá Umhverfis- og skipulagsnefnd
Hvalfjarðarsveitar til afgreiðslu
í sveitarstjórn sem ákvað að gera
þær að sínum og senda áfram til
Umhverfisstofnunar sem fer yfir
umsagnir vegna stækkunaráforma
Norðuráls.
Krefjast minni
flúormengunar
Hvalfjarðarsveitungar telja nauð-
synlegt að herða viðmiðunarmörk
fyrir losun flúors frá álverinu því
þolmörkum sé þegar náð. Í dag má
álverið losa allt að 150 tonn af flú-
or á ári eða hálft kíló á hvert fram-
leitt áltonn. Ef álverið stækkar í
350 þúsund tonn leggur Umhverf-
isstofnun til að þessi mörk verði
færð niður í 0,43 kíló á tonnið.
Þannig yrði heildarlosun á flúor
150,5 tonn miðað við 350 þúsund
tonna álframleiðslu. Sveitarstjór-
nin í Hvalfirði bendir hins vegar á
að losunarmörk flúors hjá Alcoa á
Reyðarfirði séu töluvert lægri. Þar
eru þau 0,35 kíló á tonnið mið-
að við 360 tonna ársframleiðslu.
Hvalfjarðarsveit telur rétt og eðli-
legt að hið sama verði látið gilda á
Grundartanga og kallar jafnframt
eftir skýringum Umhverfisstofn-
unar á þessu ósamræmi milli ál-
veranna í Reyðarfirði og Hvalfirði.
Einnig telur sveitarstjórnin rétt að
Norðuráli verði gert að sýna fram
á það í verki og með mælingum að
hægt sé að reka álverið á Grundar-
tanga innan nýrra og hertra mark-
miða um flúormengun.
Til viðbótar þessum kröfum
bendir sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar á að óeðlilegt sé að Norð-
urál hafi sjálft umsjón með vökt-
un, mælingum og mati á þeim,
ásamt útgáfu á skýrslum sem fjalla
um mengun fyrirtækisins. Löngu
tímabært sé að endurskoða ákvæði
um þetta. Einnig er bent á að ekki
sé gert ráð fyrir árlegum mæling-
um á PAH-efnum sem eru krabba-
meinsvaldandi.
Efast um
trúverðugleika
Sveitastjórnin telur trúverðugleika
sé áfátt vegna umhverfisvöktun-
ar við álverið. Í dag sér Norður-
ál til að mynda sjálft um kynningar
á þessum þáttum. Hvalfjarðarsveit
telur eðlilegt að slíkt sé á hönd-
um Umhverfisstofnunar sem hlut-
lauss opinbers aðila. Sveitarfélagið
óskar eftir því að gerðar verið sí-
mælingar, einkum varðandi flú-
or, og að upplýsingar verði veittar
á rauntíma þannig að fólk fá strax
upplýsingar um mengunarhættu.
Einnig kallar Hvalfjarðarsveit eft-
ir samantekt frá Umhverfisstofn-
un um svokallað þynningarsvæði
í grennd álversins, hvernig það
hafi verið skilgreint á sínum tíma
og hvort raunmælingar síðustu ára
færi stoðir undir þann uppdrátt á
þynningarsvæði sem liggur fyrir í
starfsleyfisdrögum nú.
Hvalfjarðarsveit kallar sömuleið-
is eftir meira gegnsæi þegar kemur
að flúormælingum þannig að ekki
séu aðeins kynnt meðaltöl og þau
sýnd almenningi, heldur séu sýnd
hæstu gildi og tíðni þeirra. Sömu-
leiðis óskar sveitarfélagið eftir því
að flúor sé mælt allt árið en ekki
aðeins á tímabilinu 1. apríl til 30.
september ár hvert.
Loðin viðbragðsáætlun
Í athugasemdum sínum vík-
ur sveitarstjórnin einnig að því
hvernig brugðist skuli við meng-
unaróhöppum. Viðbragðsáætlun
sé óskýr og tímamörk á tilkynn-
ingum um óhöpp þokukennd þar
sem talað sé um að þær skuli gefn-
ar út „eins fljótt og kostur er.“
Hér sé nauðsynlegt að kveða á
um tímamörk. „Mengunaróhöpp
hafa átt sér stað hjá Norðuráli en
verulega hefur skort á upplýsing-
ar til almennings þegar það hefur
gerst,“ segir í sveitarstjórnin í svari
sínu til Umhverfisstofnunar.
Enn er svo bent á að álver-
ið í Reyðafirði þurfi að sæta skil-
greindum kröfum um samþætt-
ar mengunarvarnir og eftirlit sam-
kvæmt tilskipun ESB en sambæri-
leg ákvæði sé ekki að finna í starfs-
leyfi Norðuráls.
Einnig er gagnrýnt að lífrænn
úrgangur frá svo stórum vinnustað
sem Norðuráli skuli ekki notað-
ur í jarðgerð. Sú skoðun er einn-
ig viðruð að ekki sé fjallað um lýs-
ingu og ljósmengun í starfsleyf-
inu. „Mikið hefur borið á kvörtun-
um vegna ljósmengunar frá iðnað-
arsvæðinu á Grundartanga og ljóst
að við því þarf að bregðast.“
Telja starfsleyfi eiga
að gilda of lengi
Gildistími nýs starfsleyfis á að
vera 16 ár. Þetta telur sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar að sé of lang-
ur tími. Í athugasemdum sveit-
arstjórnarinnar er að lokum tek-
ið undir með Faxaflóahöfnum að
komið verði á fót upplýsingamiðl-
un til íbúa í grennd við Grund-
artanga svo þeir geti gert ráð-
stafanir ef hætta er talin á óhag-
stæðri dreifingu flúors svo sem við
óhentug veðurskilyrði. Einnig er
farið fram á að Umhverfisstofnun
komi á fót samráðsvettvangi milli
þeirra sem vinna við að vakta um-
hverfi Grundartanga. Íbúar þurfi
einnig að hafa greiðan aðgang að
grundvallarupplýsingum um stöðu
mála á hverjum tíma. Athugasemd-
ir sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveit-
ar hafa nú verið sendar Umhverf-
isstofnun. Hún fer yfir þær ásamt
öðrum umsögnum sem stofnun-
inni hafa borist vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar Norðuráls. Lesa
má athugasemdirnar í heild sinni
í fundargerð sveitarstjórnar á vef
Hvalfjarðarsveitar.
mþh
Hvalfjarðarsveit gerir mikl-
ar athugasemdir við starfs-
leyfi vegna stækkunar álvers
Álver Norðuráls á Grundartanga.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is