Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 201518 Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit er 50 ára nú í haust. Fyrsti skólabíl- inn mun hafa rennt þar í hlað fram- an við nýreista skólabygginguna þann 9. nóvember 1965. Skólinn var reistur sem heimavistarskóli í landi bæjarins Leirá og ætlaður börn- um og unglingum búsettum í sveit- unum sunnan Skarðsheiðar. Stað- arvali skólans réði mestu að í ná- grenninu fannst heitt vatn og búið var að koma upp sundlaug. Reynd- ar átti Leirá lengri sögu sem skóla- staður því þar var fyrst reist skóla- hús árið 1878. Var það með fyrstu skólahúsum á landinu. Sá skóli varð þó ekki langlífur og farskólafyrir- komulagið náði yfirhöndinni fram á miðja 20. öld. Bylting með nýju skólahúsi Það var svo ekki fyrr en hrepparn- ir fjórir sem þá voru sunnan Skarðs- heiðar komu sér saman um að ráð- ast í byggingu sameiginlegs skóla upp úr 1960 að skriður komst á byggingu nýs skóla í landi Leirár. Fyrstu árin hét skólinn Leirárskóli en nafninu var síðan breytt í Heið- arskóla. Fleiri skólar risu af mynd- arskap víðar á Vesturlandi um þetta leyti. Laugagerðisskóli í Eyjahreppi (nú Eyja- og Miklaholtshreppi) hóf starfsemi nánast sama dag og Heið- arskóli. Nokkrum árum fyrr hafði Kleppsjárnsreykjaskóli í Reykholts- dal hafið starfsemi sína. Heiðarskóli var í upphafi heima- vistarskóli eins og flestir aðrir barna- og unglingaskólar í sveit- um landsins voru fyrir fimm ára- tugum síðan. Það varði þó ekki nema í sjö ár. Heimavistin var af- lögð 1972 og síðan hafa nemend- ur farið til og frá skóla daglega með skólabílum. Árið 2011 var svo tek- ið í notkun nýtt og glæsilegt skóla- hús. Það stendur skammt frá gamla skólanum sem var seldur. Miklar breytingar og þróun hefur átt sér stað í þá fimm áratugi sem skólinn hefur starfað. „Það var alger bylt- ing að koma í nýja húsnæðið haust- ið 2011. Gamla skólahúsnæðið var alveg orðið úrelt og hentaði ekki til nútíma kennsluhátta. Við vorum meðal annars að kenna í gömlum heimavistarherbergjum með litlum gluggum og vont að lofta út. Húsið var líka orðið lúið,“ segir Sigríður Lára Guðmundsdóttir. Hún hefur starfað við Heiðarskóla síðan 1992 eða í 23 ár. Farsæll skóli í fimmtíu ár Nýja skólahúsið er hannað fyrir um 130 nemenda skóla. „Í dag stunda 93 nemendur nám við Heiðarskóla. Flestir hafa þeir orðið um 120 tals- ins. Þegar ég hóf störf hér 1992 voru þau 110. Þetta rokkar svona til og frá,“ segir Sigríður Lára deildarstjóri. Samhliða því að nýja skólahúsið var tekið í notkun þá var starfsemi grunnskóla og leik- skóla samþætt í Hvalfjarðarsveit. Heiðarskóla og leikskólinn Skýja- borg í Melahverfi urðu að Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Um 25 stöðugildi eru við Heiðarskóla en 36 starfa þar í heildina. Um 40 börn eru nú í leikskólanum og er hann nánast fullsetinn. Þau Sigríður Lára og Jón Rún- ar Hilmarsson skólastjóri samsinna því að rekstur Heiðarskóla hafi gengið vel í þessa fimm áratugi. Það er full ástæða til að fagna þess- um áfanga í sögu Heiðarskóla. „Við ætlum að halda upp á þetta með því sem kalla má opnunarhátíð á af- mælisári mánudaginn 9. nóvem- ber. Á þessari opnunarhátíð verður svo litið um öxl og farið yfir sögu skólans í máli og myndum. Ef ein- hverjir vilja síðan koma hingað og segja eitthvað þá er það velkom- ið. Einn kennari hér gerði könn- un í vor sem leið meðal 13 útskrif- aðra árganga úr skólanum og skoð- aði hvernig þeim hefur vegnað í líf- inu eftir að þeir voru hér. Það eru ánægjulegar niðurstöður úr þeirri könnun sem segir okkur það að skólinn er góður og undirbýr nem- endur sína vel fyrir þá vegferð sem bíður þeirra. Við munum segja frá þessu á hátíðinni. Síðan verða ýms- ir viðburðir og uppákomur nú vet- ur í skólanum tengdir afmælisárinu og þessum merku tímamótum. Við myndum líka vilja heyra frá eldri nemendum, fyrrverandi starfsfólki og fólki sem hefur tengst skólan- um með einhverjum hætti í gegn- um tíðina til að koma að viðburð- um tengdum afmælisfagnaðinum. Þannig fögnum við og höldum upp á þessi tímamót með starfsfólki og börnunum en að sjálfsögðu eru all- ir velkomnir,“ segir Jón Rúnar. Sigríður Lára bætir því að þessa dagana séu kennarar og starfólk að kveikja áhuga meðal krakkanna á þessum tímamótum og segja þeim frá því að skólinn sé nú orðinn hálfrar aldar gamall. „Svo verður eflaust eitthvað gott í matinn, af- mæliskaka og þess háttar.“ Skoða gerð sjónvarpsþáttar Heiðarskóli hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana fyrir nú- tímalega og framsækna kennslu- hætti þar sem nemendur nota meðal annar mikið spjaldtölv- ur við námið. „Það eru breyttir tímar,“ segir Jón Rúnar skólastjóri og brosir í kampinn. „Við ætlum að horfa til þess hve vel við erum tæknivædd. Seinna í vetur verð- ur kannski til sjónvarpsþáttur sem krakkarnir vinna sjálf en ekki gef- ið út hefðbundið afmælisblað eins og oft er gert við svona tímamót. Þannig nýtum við tæknina sem við kunnum. Við erum að byrja á því að fara í gegnum gamlar ljósmynd- ir og myndbandsefni frá skólastarf- inu sem er til hér hjá okkur í skól- anum og ætlum okkur að vinna úr þessu. Það er til þónokkuð af efni til dæmis á VHS-spólum hérna í bókasafninu. Svo hugsum við okk- ur að taka viðtöl við fyrrverandi nemendur, starfsfólk og foreldra. Það væri spennandi að skapa efni úr öllum þessum efnivið,“ segir Jón Rúnar. Skólastjórinn er ekki í vafa um að Heiðarskóli eigi framtíðina fyr- ir sér. „Ég efast hreinlega ekki um að það væru miklu fleiri börn hér ef ekki væri húsnæðisskortur í Hval- fjarðarsveit. Það hefur verið eftir- sótt að búa í Hvalfjarðarsveit og ásókn meðal fólks að flytja hingað í sveitarfélagið en vantað hefur hús- næði fyrir fjölskyldur sem hafa get- að hugsað sér að setjast hér að.“ mþh Heiðarskóli er hálfrar aldar gamall Gamla og nýja skólahús Heiðarskóla standa nærri hvort öðru skammt suður undan hlíðum Skarðsheiðarfjalla. Gamli skólinn er vinstra megin á myndinni en sá nýi hægra megin. Hugað að hestamennsku. Í baksýn sést gamla skólahúsið sem var reist fyrir hálfri öld. Sigríður Lára Guðmundsdóttir deilarstjóri og Jón Rúnar Hilmarsson skólastjóri í rúmgóðu, björtu og nútímalegu húsnæði Heiðarskóla. Krakkar úr Heiðarskóla að leik. Hópmynd af nemendum. Úr einni af skólastofunum. Hlúð að plöntum. Nemendur á góðri stundu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.