Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Side 29

Skessuhorn - 04.11.2015, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 29 FYRIR BÖRN TÖLVUR/HLJÓMTÆKI Óska eftir bílamálara /bifreiða- smið Vantar bílamálara og bifreiðasmið til starfa sem fyrst hjá gæðavottuðu, 5 stjörnu verkstæði í Mosfellsbæ. Vegna mikillar vinnu getum við bætt við okkur vandvirkum/stund- vísum starfsmönnum. Einnig getum við tekið verðandi bílamálara/ bifreiðasmiði í starfsnám ef við- komandi hefur farið í BHS skólann. Upplýsingar í síma 697-7685. Mitsubishi L200 Til sölu MMC L200 árg. 2004, sjálf- skiptur, ekinn 208 þús. Ný vél, ný nagladekk á felgum fylgja með. Pallhýsi. Uppl. 692-5525. Krókheysispallur óskast Óska eftir krókheysispalli eða gömlum vörubílspalli fyrir sann- gjarnt verð. Má þarfnast viðhalds eða viðgerða. Uppl. s. 822-7370. Nagladekk 175/70R13 Til sölu Hankook Winter IPike negld vetrardekk, stærð 175/70R13. Allir naglar á sínum stað. Mynstur er um 8mm en er 10mm á nýjum dekkjum. Kosta ný með neglingu 56.000 en fást á 25.000 Uppl. veitir Þór í síma 892-9687. Galooper jeppi til sölu Árgerð 2000, ekinn um 220 þús. km, upphækkaður á 33 tommu dekkjum, dráttarkrókur, skoðaður 2016. Upplýsingar í síma 892-5051. Laust pláss hjá dagmömmu Dagmamma með tvö laus pláss á Varmalandi. Upplýsingar í síma 892-4013. magga.geymonat@gmail. com. Einbýlishús til leigu Til leigu einbýlishús í neðri bænum í Borgarnesi, nánari upplýsingar í netfang elladav@simnet.is. Íbúð til leigu Rúmgóð íbúð á góðum stað í Borg- arnesi til leigu frá byrjun nóvember. Í íbúðinni eru 3 svefnherbergi, stofa og borðstofa. Upplýsingar í síma 895-6568. Ísskápur til sölu Fæst á 15 þús. kr. Upplýsingar í síma 861-7521. Fallegur gamall skenkur Upplýsingar í síma 861-7521. Tveggja sæta amerískur sófi Góðan sófa vantar heimili. Uppl. í síma 861-7521. Hátalarar Til sölu 2 Behringer hátalarar. Þeir eru með innbyggðum magnara, henta vel fyrir trúbadora eða hljóm- sveitir. Fást saman á 75 þúsund. Halli. 821-5283. Akranes - miðvikudagur 4. nóvember Tónlistarskólinn á Akranesi 60 ára. Í tilefni dagsins bjóðum við gestum á stutta tónleika í Tónbergi kl.15-16 og 17. Milli tónleika er boðið upp á kaffi, límonaði og afmælisköku. Kl. 20 í Tónbergi „Þá og nú“. Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans flytja fjölbreytta tónlist. Kaffiveitingar. Verið velkomin að fagna með okkur á þessum tímamótum. Stykkishólmur - fimmtudagur 5. nóvember Tónfundur Hafþórs í sal tónlistarskól- ans kl. 18:45. Nemendur Haffa spila fyrir foreldra, systkini og aðra góða gesti sýnishorn af því æft hefur verið nú í haust. Á tónfundina okkar eru allir hjartanlega velkomnir. Athugið að þetta er breyttur tími frá því áður var auglýst! Akranes - fimmtudagur 5. nóvember Alexandra Chernyshova sópransöng- kona og tónskáld gefur um þessar mundir út sína fyrstu nótnabók fyrir rödd og píanó. Alexandra kynnir bók sína í Bókasafni Akraness kl. 18:30, ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur leikkonu og kennir lagið Vikivaki úr óperunni. Allir velkomnir, frítt inn. Borgarbyggð - fimmtudagur 5. nóvember Fyrsti samlestur Leikdeildar Skalla- gríms á leikritinu Blessað barnalán verður í Lyngbrekku kl. 19. Allir áhugasamir hvattir til að mæta. Stykkishólmur - fimmtudagur 5. nóvember Snæfell mætir Keflavík í úrvalsdeild karla í íþróttamiðstöðinni í Stykkis- hólmi kl. 19:15. Hvalfjarðarsveit - fimmtudagur 5. nóvember Kaffi, kökur og kórsöngur í Miðgarði kl. 20. Kór Saurbæjarprestakalls er fé- lagsskapur fólks sem býr í Hvalfjarðar- sveit eða á önnur tengsl við sveitirnar sunnan Skarðsheiðar. Á efnisskránni eru íslensk dægur- og ættjarðarlög, gömul og ný. Aðgangseyrir kr. 1.500 (enginn posi á staðnum). Akranes - fimmtudagur 5. nóvember Átökin á Norður-Írlandi - Orsök og afleiðingar í Garðakaffi kl. 20. Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, rekur sögu átakanna á Norður-Írlandi í máli og myndum frá upphafi átaka „The Trouble“ til okkar tíma. Félagar úr Þjóðlagasveit Tónlist- arskólans á Akranesi flytja írsk þjóðlög og baráttusöngva frá tímabilinu. Allir velkomnir, frítt inn. Veitingasala. Stykkishólmur - föstudagur 6. nóvember Snæfell mætir Val í úrvalsdeild kvenna í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi kl. 19:15. Akranes - föstudagur 6. nóvember ÍA tekur á móti KFÍ í 1. deild karla. Leikurinn verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu og hefst kl. 19:15. Borgarbyggð - föstudagur 6. nóvember Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Land- námssetrinu Borgarnesi kl. 20. Í tilefni af 10. starfsári Landnámssetursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Borgarbyggð - augardagur 7. nóvember Heilsueflingardagur HVE í Borgarnesi verður haldinn í samvinnu við Lions- klúbb Borgarness og Lions klúbbinn Öglu. Boðið verður upp á blóðsykur- mælingar, blóðþrýstingsmælingar og fyrirlestra um tengt efni frá kl. 11 - 14. Akranes - laugardagur 7. nóvember Námskeið í eldsmíði í Smiðjunni á Safnasvæðinu á Akranesi frá kl. 14-18 á laugardag og kl. 10 - 14 á sunnudag. Bjarni Þór Kristjánsson handverks- kennari kennir en hann hefur helgað sig varðveislu gamals handverks. Þátttakendur eru beðnir um að koma í viðeigandi fatnaði. Nánari upp- lýsingar í síma 869-4748. Skráning í klett@simnet.is. Akranes - laugardagur 7. nóvember Kvennakórin Vox Feminae heldur tvenna örtónleika í Akranesvita, kl. 17 og aftur kl. 18. Lagavalið tengist staðsetningunni og má búast við einstaklega rómantískum efnistökum. Stjórnandi kórsins er Margrét J. Pálmadóttir. Frítt inn. Borgarbyggð - laugardagur 7. nóvember Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Land- námssetrinu Borgarnesi kl. 20. Borgarbyggð - sunnudagur 8. nóvember Barnaguðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 11:15. Góð samvera fyrir alla fjöl- skylduna. Leikir, söngur, fræðsla. Um- sjón hefur sr. Páll Ágúst Ólafsson. Akranes - sunnudagur 8. nóvember Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur þjónar. Sveinn Arnar sér um tónlistina. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra! Borgarbyggð - sunnudagur 8. nóvember Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Land- námssetrinu Borgarnesi kl. 16. Hvalfjarðarsveit - mánudagur 9. nóvember 50 ára starfsafmæli Heiðarskóla. Í tilefni af því ætlum við að gera okkur glaðan dag í skólanum með ýmsu móti. Nú- og fyrrverandi nemendur, starfsfólk og aðrir velunnarar skólans eru velkomnir til að fagna þessum tímamótum með okkur. Afmælis- fagnaðurinn verður frá kl. 13 - 15. Á döfinni Markaðstorg Vesturlands TIL SÖLU BÍLAR / VAGNAR / KERRUR LEIGUMARKAÐUR ATVINNA Í BOÐI Nýfæddir Vestlendingar 23. október. Drengur. Þyngd 3.562 gr. Lengd 49,5 sm. Foreldrar: Sara Björk Þorsteinsdóttir og Hilmar Smári Birgisson, Blönduósi. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir. 29. október. Stúlka. Þyngd 4.015 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Heiðdís Júlíusdóttir og Aron Þór Kristjánsson, Akranesi. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.