Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Qupperneq 31

Skessuhorn - 04.11.2015, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 31 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA F ÍT O N / S ÍA Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur Körfuknattleiksfélag Akraness Íþróttahúsið við Vesturgötu 1. deild Föstudaginn 6. nóvember kl. 19.15 ÍA - KFÍ Fjölmennum og hvetjum ÍA til sigurs! Íslenska stúlknalandsliðið í blaki, skipað leikmönn- um 17 ára og yngri, nældi í silfurverðlaun á Norður- Evrópumótinu í aldurs- flokknum sem lauk í Ket- tering á Englandi nýverið. Í úrslitaviðureigninni léku íslensku stúlkurnar gegn Finnlandi, en höfðu áður sigrað Finna í undanúrslitum, Færeyinga og Englendinga. Er þetta besti árangur íslensks blakliðs á Norður-Evrópumóti til þessa. Í U17 landsliði Íslands í blaki er stúlka frá Grundarfirði. Hún spilar með mfl. UMFG og heitir Svana Björk Steinarsdóttir. Svana er 16 ára. mm/ Ljósm. tfk. Grundfirðingur í U17 landsliðinu Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akranesi náði nýver- ið lágmarki inn á EM-25 í sundi en mótið fram fer í Ísrael í desember. Inga Elín keppti á Extramóti SH og náði þar lágmark- inu í 400m skriðsundi. Það verður nóg að gera hjá þessari knáu sundkonu því næsta mót er ÍM-25 núna um miðjan nóvember og svo er EM í byrjun desember. Inga Elín vonast til að toppa sína tíma á EM en ÍM-25 mótið verður góður undirbúningur fyrir það. Síðan fer Inga Elín í æfingabúðir erlendis milli jóla og nýárs með af- rekshópi síns félagsliðs sem er Ægir. Þar mun hún keppa á sundmóti í 50m laug og hefst þá form- lega undirbúningur fyrir ÓL 2016, en eins og áður hefur komið fram í Skessuhorni er Inga Elín að setja stefnuna þangað. mm Náði lágmarki á EM í sundi Skagamaðurinn Árni Snær Fjalarsson varð Ís- landsmeistari í brasilísku Jiu Jitsu í flokki 15 til 17 ára + 75 kg síðastliðinn laugardag. Árni Snær sýndi snilldartilþrif á mótinu, sem haldið var á Akureyri. Hann vann allar glímurnar sínar nema eina á uppgjafartaki. Þetta er því annað árið í röð sem Árni Snær tekur Íslandsmeistaratitil heim á Akranes. Árni er 16 ára gamall og á því eitt ár eft- ir í þessum flokki. Árni Snær stundar nám í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi en æfir og keppir fyrir Mjölni. grþ Árni Snær Íslands- meistari í annað sinn Oliwia Huba og Hugrún Stefn- isdóttir héldu tombólu og söfn- uðu 2.227 kr fyrir Rauða krossinn. Rauði krossinn á Akranesi þakkar þeim kærlega fyrir þeirra framlag. fréttatilkynning Héldu tombólu fyrir RKÍ Dagana 12. til 16. október sl. fór fram svokall- að NEVZA mót í blaki í Danmörku. Er þetta Norð- urlandamót U-19 landsliða. Í landsliðinu í blaki U-19 að þessu sinni áttu Snæfellsbæingar full- trúa en hin unga og bráðefnilega blakstúlka Anna Kara Eiríksdóttir var í liðinu. Anna Kara æfir og spilar með UMFG og spilar í Mizunodeild- inni eða úrvalsdeildinni í blaki. Löndin sem tóku þátt á mótinu voru Svíþjóð, Noregur, Færeyj- ar, Danmörk og England ásamt Íslandi. Heppn- aðist ferðin mjög vel, að sögn Önnu Köru, enda hópurinn samhentur og ákveðinn í að gera sitt besta. Gekk liðinu mjög vel þó að sigrarnir yrðu einungis tveir. Endaði íslenska liðið í fimmta sæti á mótinu. Langaði Önnu Köru að lokum að nota tækifærið og þakka þeim fyrirtækjum sem styrktu hana í þessa ferð kærlega fyrir, sagði að svona stuðningur væri ómetanlegur fyrir sig. þa Snæfellskur fulltrúi í U19 í blaki Snæfell tóku á móti Keflavík í Dom- ino‘s deild kvenna í körfuknattleik laugardaginn 31. október síðastliðinn. Íslandsmeistararnir úr Stykkishólmi slitu sig frá gestunum strax um miðj- an fyrsta leikhluta og hleyptu Keflvík- ingum aldrei inn í leikinn aftur. Snæ- fell jók forskot sitt jafnt og þétt og vann að lokum stórsigur, 84-56. Haiden Palmer var atkvæðamest í liði Snæfells. Hún skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Næsti leikur Snæfells fer fram í kvöld, miðvikudaginn 4. nóvember, þegar liðið heimsækir Grindvíkinga. kgk Haiden Palmer fór mikinn í stórsigri Íslandsmeistaranna á Keflavík síðast- liðinn laugardag. Ljósm. sá. Skallagrímur tók á móti Þór frá Ak- ureyri í 1. deild kvenna í körfuknatt- leik síðastliðinn sunnudag. Leikur- inn var jafn framan af en leikmenn Skallagríms náðu heldur undirtök- um leiksins eftir því sem leið á fyrri hálfleik og leiddu með sjö stigum í leikhléi, 52-45. Áfram voru leik- menn Skallagríms sterkari en tókst ekki að slíta sig frá liði Þórs fyrr en um miðjan fjórða leikhluta. Þá tók Borgarnesliðið vænan lokasprett sem skilaði þeim 16 stiga sigri, 85-69. Skallagrímur samdi mánaðamót- in við Erikku Banks, 22 ára bak- vörð sem lék síðast með Northern Arizona í Bandaríkjunum. Var leik- urinn gegn Þór fyrsti leikur hennar fyrir Borgarnesliðið og skoraði hún í honum 19 stig. Kristrún Sigur- jónsdóttir var hins vegar iðnust við kolann í með 26 stig. Næsti leikur Skallagríms er einn- Endaspretturinn gulltryggði sigur Skallagríms Erikka Banks lék sinn fyrsta leik fyrir Skallagrím í sigrinum gegn Þór þar sem hún skoraði 19 stig. Ljósm. fengin af facebook-síðu Skallagríms. Snæfell vann stórsigur á Keflvíkingum Fyrsta umferð Powerade-bikars karla í körfuknattleik fór fram um helgina. Körfuknattleikslið af Vest- urlandi tóku þátt og áttu misjöfnu gengi að fagna. Aðeins Skallagríms- menn komust áfram úr 32ja liða úr- slitum, en þeir unnu dramatískan sigur á Fjölni í Borgarnesi, 96-93, í leik þar sem J.R. Cadot skoraði 31 stig og tók 19 fráköst. Snæfellingar töpuðu stórt fyr- ir Haukum á heimavelli, 45- 89 og leikmenn ÍA urðu að sætta sig við 14 stiga tap gegn Hamri í Hvera- gerði, 91-77. Grundfirðingar, sem nýverið end- urvöktu meistaraflokk karla, töpuðu heima gegn Breiðabliki, 75-93, í fyrsta bikarleik liðsins í fjölmörg ár. Dregið hefur verið í 16 liða úrslit- um bikarkeppninnar og þar mæta Skallagríms menn Íslandsmeistur- um KR í Vesturbænum. Á sama tíma var dregið í fyrstu umferð Powerade-bikars kvenna þar sem Skallagrímur tekur einnig þátt. Mótherji þeirra verður Breiða- blik og leikið verður í Kópavogin- um. Leikirnir í 16 liða úrslitum bik- arkeppna karla og kvenna fara fram dagana 5.-7. nóvember næstkom- andi. kgk Aðeins Skallagrímur komst áfram í bikarnum Grundfirðingar máttu sætta sig við tap gegn Breiðabliki í fyrsta bikarleik liðsins í fjölmörg ár. Ljósm. tfk. Skallagrímur komst áfram í Powerade- bikarnum með sigri á Fjölni, eitt Vesturlandsliðanna. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson. ig heimaleikur, en laugardaginn 7. nóvember fá stúlkurnar Fjölni í heimsókn. kgk

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.