Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20156 Enn eru slegin met LANDIÐ: Aldrei áður hefur mælst meiri umferð um 16 lykil- teljara á Hringveginum umhverf- is landið og nú í nóvembermán- uði. Í samantekt Vegagerðarinn- ar kemur fram að umferðin jókst um tæp 6% frá því í sama mán- uði í fyrra. Nú lítur út fyrir að umferðin í ár verði um sex pró- sentum meiri en hún var í fyrra, þ.e.a.s. stöðvi veðrið ekki öku- menn í jólamánuðinum. Umferð um vegi á Vesturlandi hefur auk- ist um 8,6% frá áramótum miðað við sömu mánuði í fyrra. Einungis á Austurlandi var umferðaraukn- ing meiri. Þessi aukning á lands- vísu í nóvember varð til þess að enn eitt metið var slegið, en fyrra met var frá 2007. Samtals fóru að jafnaði rúmlega 54 þúsund öku- tæki yfir mælistaðina 16 í mán- uðinum. Umferð í nóvember hefur þá vaxið um 1,8%, að jafn- aði frá árinu 2005 til 2015. Mest jókst umferðin um Austurland eða 12,9% en minnst um Suður- land eða 1,9%. Í tölfræði Vega- gerðarinnar má sjá að umferð- in hefur aukist alla vikudaga en hlutfallslega mest á þriðjudögum eða um 7,6% en minnst á sunnu- dögum eða um 3,8%. Umferðin er að jafnaði mest á föstudögum en minnst á þriðjudögum. Um- ferðin á fimmtudögum er næst meðalumferðinni. –mm Skerðing á kol- munnakvóta LANDIÐ: Sigurður Ingi Jó- hannsson sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að heildarkvóti Ís- lands í kolmunna verði 125.984 tonn. Þetta er veruleg skerðing frá síðasta ári en þá var heildar- kvótinn 203 þúsund tonn. Skerð- ingin nemur 76.974 tonnum eða 38%. Alþjóða hafrannsókna- ráðið hefur ráðlagt að alls verði veidd 776.391 tonn af kolmunna í Norðaustur Atlantshafi á næsta ári. -mþh Sluppu vel frá illviðrinu DALIR: Það var komið nokk- uð fram á mánudagskvöld þeg- ar veðrið fór að rjúka upp í Döl- um. Um níuleytið fór að auka í vind og örlítið rafmagnsflökt minnti á að gott getur verið að eiga vasaljós á vísum stað. Margir virðast hafa verið fyrir- hyggjusamir því fyrr um daginn seldust upp ákveðnar gerðir af rafhlöðum í Samkaup Strax og KM þjónustunni og einnig var nokkuð um að bændur birgðu sig upp af þaksaumi til að geta brugðist við ef plötur færu að fjúka. Það verður aldrei ofsagt að allur sé varinn góður. Heim- akstri var flýtt um klukkustund í Auðarskóla og leikskóladeild skólans lokaði klukkustund fyrr en venjulega. Matvöruversl- unin Samkaup Strax hélt opnu til kl. 18 og eitthvað var um að starfsmenn stofnana væru send- ir heim í fyrra fallinu en marg- ir þeirra þurfa að ferðast lang- ar leiðir til að sækja vinnu sína. Björgunarsveitin Ósk var í við- bragðsstöðu ásamt Slysavarna- deildinni en engin útköll voru vegna veðursins og svo virð- ist sem Dalamenn hafi almennt sloppið vel frá illviðrinu -sm Neitað um bankareikning BORGARBYGGÐ: Einstak- lingar skulu hafa skráð lögheim- ili til að geta stofnað banka- reikninga fyrir sig persónu- lega eða í umboði félagasam- taka. Banki hefur neitað Ágústi S. Beaumont, varaformanni Pí- rata í Borgarbyggð, að opnaður verði bankareikningur fyrir fé- lagið, þar sem hann er ábyrgð- armaður þess. Ástæðan er sögð sú að samkvæmt þjóðskrá er Ágúst skráður sem „óstaðsett- ur í hús“. Aðstæðna sinna vegna dvelur Ágúst í sumarhúsi í Borg- arbyggð og getur af þeim sök- um ekki skráð lögheimili á þeim stað, þar sem slíkt er óheimilt. Bankar almennt eru með regl- ur er snúa að félagasamtökum. Meðal annars þurfa upplýsingar um stjórnarmenn og þar á með- al lögheimilisskráning þeirra að liggja fyrir til að hægt sé að stofna til viðskipta. Ágúst grein- ir frá því á Facebook síðu sinni að hann telji að hér sé verið að brjóta á rétti sínum sem borg- ara. Hann segir að klárlega sé annað hvort Tryggingastofn- un eða bankinn með forræðis- hyggju sem geti ekki staðist lög né Stjórnarskrá; „ég hef ekki sömu réttindi til setu í stjórn- málaflokki og aðrir Íslending- ar,“ skrifar Ágúst. –mm Stekkjastaur í jólasveina- tvímenningi BORGARFJ: Jólasveinatví- menningur Briddsfélags Borg- arfjarðar fer fram föstudaginn 11. desember og hefst klukkan 20. Sama kvöld kemur einmitt fyrsti jólasveinninn til byggða og mun Stekkjastaur heiðra samkomuna með veru sinni. „Eins og venjulega verður dreg- ið saman í pör og menn geta því mætt stakir,“ segir Ingimund- ur Jónsson talsmaður félags- ins, sem hvetur alla sem vilja til að mæta í Logaland með góða skapið. –mm Í síðustu viku kyngdi niður snjó víða um land. Snjódýpt mæld- ist mikil, meðal annars víða um vestanvert landið, eða allt að hálf- ur metri. Hitastigið var þessa daga oft í kringum frostmark- ið en einmitt við þær aðstæður verða til grýlukerti á þakskeggj- um húsa og myndarlegar snjó- hengjur. Þótt þær geti verið fal- legar, eins og meðfylgjandi mynd frá Akranesi ber með sér, þá getur jafnframt verið hættulegt að verða undir ef þungar hengjur og hvöss grýlukerti falla skyndilega til jarð- ar. Þá eru dæmi um að bílar hafi beiglast þegar þungar snjóhengj- ur hafa fallið á þá. Ástæða er því til að hvetja fólk til að hreinsa snjó af húsþökum þegar aðstæður sem þessar koma upp. Þá er einnig æskilegt að snjór sé hreinsaður frá aðkomuleiðum að húsum svo t.d. bréfberar eigi þangað greiða leið og ekki síður þeir sem tæma sorp- ílát frá húsum. mm Ævintýraheimur grýlukerta og snjóhengja Þessi myndarlegu grýlukerti og áföst snjóhengja hafði lekið hægt og rólega niður húsþak við Höfðagrund á Akranesi og magnað um leið upp lit aðventuljósanna. Ljósm. ki. Eitt af vel geymdu leyndarmál- um verslunarbæjarins Borgarness er búðin í Landnámssetri Íslands. Hún var nýverið stækkuð og auk- ið þar úrval af íslensku handverki. Að sögn Áslaugar Þorvaldsdótt- ur verslunarstjóra er býsna mik- il umsetning í þessari litlu verslun og mest ferðafólk sem þar fer um. Þó eru sífellt fleiri íbúar í Borg- arnesi og aðrir gestir að átta sig á að þarna er að finna fjölbreytt úr- val. Lögð er áhersla á handgerða hluti og mest er framleiðslan inn- lend. Talsvert margt handverks- fólk af Vesturlandi er með vörur í búðinni. Þarna leynist því margt spennandi sem gæti passað í vel valinn jólapappír. mm Stærri búð í Landnáms- setrinu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.