Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 201514 Velgengni tæknifyrirtækisins Skag- ans á Akranesi hefur vart farið fram hjá neinum. Skaginn framleiðir ýmsan hátæknibúnað til matvæla- framleiðslu og selur um heim all- an. Jónmundur Ingólfsson iðnað- artæknifræðingur stýrir tæknideild fyrirtækisins sem alls telur níu manns. „Þetta er mjög skemmti- leg vinna og draumastarf tækni- fræðingsins. Ég vinn með teymi fyrirtækisins að vöruhönnun og vöruþróun. Öll hönnun á búnaði Skagans fer fram í þrívíddarforrit- um. Það er alltaf eitthvað nýtt að fást við og staflinn af vöruþróun- arverkefnum er alltaf hár hjá okk- ur,“ segir Jónmundur. Skessuhorn hitti að máli manninn sem fer fyrir tæknideild hjá einu helsta nýsköp- unarfyrirtæki á Vesturlandi. Við tækjabúnað frá unglingsaldri Jónmundur lærði vélvirkjun í Fjöl- brautaskóla Vesturlands og fór að því loknu í iðnaðartæknifræði við Háskóla Reykjavíkur. „Nám- ið tók þrjú og hálft ár og ég lauk því 2008. Með náminu vann ég hjá Skaganum. Þar var ég í ýms- um verkum svo sem smíði, sam- setningu og uppsetningu á tækja- búnaði, einkum til fiskvinnslu. Það var góður skóli.“ Hann seg- ist annars hafa byrjað mjög ungur að vinna. „Þá var ég nokkurs konar aðstoðarmaður við verslunarstörf í Reykjavík þar sem föðuramma mín og -afi voru í verslunarrekstri. Ég byrjaði á að hjálpa til á lagern- um sem smá gutti en um leið og ég fór að ná upp fyrir afgreiðslu- borðið fór ég yfir í afgreiðslustörf- in,“ segir hann og hlær við end- urminninguna. Alvaran hófst hins vegar þegar hann varð 18 ára. „Þá fór ég að vinna við vélvirkjunina og smiðjustörf hjá Skaganum. Þar þekkti ég svo sem vel til. Á ung- lingsárunum var ég oft að þvæl- ast í kringum karlana þar við störf þeirra. Ég hafði áhuga á þessu öllu. Svo fylgdist ég alltaf vel með þeg- ar menn voru að prófa nýjungar. Skaginn hóf starfsemi 1998 en þá var ég 17 ára gamall .“ Verkleg reynsla dýrmæt Það voru reyndar hæg heimatök- in fyrir Jónmund því Skaginn var stofnaður af Ingólfi Árnasyni föður hans. Starfsemin hófst í bílskúrn- um við æskuheimili Jónmundar. Síðar flutti starfsemin sig um set á athafnasvæði Þorgeirs & Ellerts við Bakkatún á Akranesi þar sem menn hafa stundað skipasmíðar og önn- ur járniðnaðarstörf í bráðum heila öld. Þar er Skaginn enn í dag. Jón- mundur segir að það hafi komið sér mjög vel fyrir hann að hafa unnið og lært til vélvirkja áður en hann fór í iðnaðartæknifræðinámið. „Fyrir mig sem í dag starfa við að hanna alls kyns vinnslubúnað þá er mik- il og dýrmæt reynsla fólgin í því að hafa starfað sem almennur vélvirki. Maður lærir mikið á því að með- höndla tækin, sjá hvernig þau virka og starfa saman, og síðan setja tæk- in saman, koma upp heilu samstæð- unum af tækjum og sjá til þess að þetta virki. Í slíkri hönnunarvinnu skiptir mjög miklu að eiga rætur í iðngrein þar sem maður hefur lært þessa hluti og hlotið þjálfun á gólf- inu ef svo má segja. Það er til að mynda afar mikilvægt að allur bún- aður sé sem einfaldastur í samsetn- ingu. Til að öðlast innsýn og skiln- ing á þessum þáttum er mikil hjálp í því fólgin að hafa hlotið verklega reynslu við slíkan búnað.“ Af þessum sökum segir Jón- mundur eitt vanta í dag sem ætti að vera sterkur þáttur í öllu iðnnámi nútímans. „Það er að leyfa nemum að nýta hluta námstímans á vinnu- stöðunum við sína iðngrein. Það skiptir mjög miklu máli að nem- arnir komist í tengsl við atvinnulíf- ið strax á námstímanum.“ Mikil fjölbreytni Rekstur Skagans gengur vel að sögn Jónmundar. „Verkefnin eru næg og fjölbreytt,“ segir hann og telur upp þau helstu nú um stundir. „Við erum að framleiða búnað fyr- ir landvinnslu á bolfiski sem settur verður upp fyrir Polar Sea í Múr- mansk í Norðvestur Rússlandi. Þá er verkefni í Brasilíu þar sem við erum að smíða nokkra lausfrysta. Þetta er hjá BRF sem er einn stærsti kjúklingaframleiðandi í heiminum í dag. Síðan eru það frystar fyrir hörpuskel í Bandaríkjunum. Einn- ig fer tækjabúnaður frá Skaganum í risastóra laxaverksmiðju fyrirtækis- ins Bakkafrost í Færeyjum. Hún er um 18 þúsund fermetrar að gólfleti. Þar erum við með frysta og ákveðn- ar lausnir kringum þá. Fyrirtækið 3X Technology á Ísafirði, sem er í systurfyrirtæki Skagans, framleiðir síðan karafærslubúnað í þessa verk- smiðju. Á síðasta vetri settum við nýjan kælibúnað fyrir fisk um borð í togarann Málmey SK. Þróun þess búnaðar gengur mjög vel. Sam- bærilegur búnaður fer í þrjá nýja ísfisktogara sem HB Grandi er að láta smíða í Tyrklandi. Þar verður einnig kerfi í lestum skipanna sem gerir það að verkum að manns- höndin þarf ekki að koma nálægt. Síðan eru fleiri verkefni í pípunum sem of snemmt er að segja frá að svo stöddu.“ Jónmundur segir tækniþróunar- vinnuna hjá Skaganum á margan hátt mjög gefandi og skemmtilegt starf. „Oft er það þannig að við- skiptavinirnir koma til okkar með verkefni sem þarf að leysa og eru stundum í þeirra huga óleysanleg. Við setjumst þá niður með þeim og leitum réttu lausnarinnar. Það eru margir frjóir starfsmenn innan fyr- irtækisins sem koma að vöruþró- un og Ingólfur faðir minn er þar mjög fyrirferðarmikill. Það fæðast hugmyndir sem mönnum langar til að prófa og þá er ráðist í að fram- kvæma þær. Þetta er teiknað upp og svo smíðað.“ Á skilningsríka konu Starfinu hjá Skaganum fylgja oft ferðalög með tilheyrandi fjarvist- um frá heimilinu. „Þegar um er að ræða stór verkefni eins og þess- ar uppsjávarvinnslur sem við höf- um verið að setja upp í Færeyjum til dæmis þá fylgjum við tæknifræð- ingarnir með teymum uppsetning- armanna. Við erum þeim innan handar á vettvangi þegar búnaðin- um er komið fyrir og vinnslunum er startað. Þetta eru þá oftast þriggja vikna úthöld. Menn eru úti í þrjár vikur, koma heim í viku og fara svo aftur út. En ég á mjög skilningsríka konu. Hún heitir Helga Sjöfn Jó- hannesdóttir og er líka frá Akra- nesi. Við eigum þrjú börn, á fyrsta, öðru og fimmta ári og búum á Akranesi,“ segir Jónmundur. Hann bætir því brosandi við að þessi þol- inmæði konunnar komi sér kannski enn betur þegar hann sinni sport- inu sínu sem sé laxveiði. „Ég er illa haldinn af veiðidellu. Uppáhaldsá- in mín er Miðfjarðará því veiðistað- irnir þar eru svo fjölbreyttir. Ég fór reyndar ekkert þangað í sumar því við eignuðumst þriðja barnið okk- ar á þeim tíma. En það verður sjálf- sagt bætt úr því,“ segir hann að lok- um. mþh Jónmundur Ingólfsson iðnaðartæknifræðingur: „Ég hafði mikinn áhuga á þessu öllu“ Jónmundur Ingólfsson við tölvuna þar sem hönnun á búnaðinum fer fram í fullkomnum þrívíddarforritum. Jónmundur ásamt Ingólfi Árnasyni föður sínum í framleiðslusal Skagans á Akranesi. Eitt af nýjustu verkefnum Skagans var að framleiða vinnslubúnað fyrir snjó- krabba um borð í færeyska skipið Fríðborgu nú í haust. Hér heldur Jónmundur á verðmætum löppum snjókrabbans en þær geyma kjötið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.