Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 17 Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæ- fellsbæjar segist sáttur við ýmislegt sem lesa megi úr breytingatillögum meirihluta fjárlaganefndar Alþing- is. „Ég kýs að vera jákvæður þó ég hefði viljað sjá fjármuni í mörg önn- ur verkefni,“ segir hann. Við fyrstu yfirferð segir bæjarstjórinn að hann staldri einkum við þrennt sem veki athygli hans varðandi atriði sem snúi að Snæfellsnesi. Það eru aukin fram- lög til Fjarskiptasjóðs, hafnarmála og meiri fjármunir til ferðamála. Hafa hug á ljósleiðaravæðingu „Ég sé að framlög til Fjarskiptasjóðs hækka um 200 milljónir króna. Þau verða þannig 500 milljónir á næsta ári,“ segir Kristinn. Þetta sé að hans mati afar jákvætt. „Verkefnið er mjög brýnt því þetta bætir bæði búsetu- skilyrði og eflir samkeppnishæfni byggðanna. Við hér í Snæfellsbæ stefnum á að fara í framkvæmdir á þessu sviði á næsta ári. Þar er ég að tala um lagningu ljósleiðara frá Malarrifi að Stekkjarvöllum vestan við Vegamót í Eyja- og Miklaholts- hreppi. Eins stefnum við að því að koma á ljósleiðara í hinum gamla Fróðárhreppi,“ segir Kristinn. Að hans sögn er aðkoma ríkisins að þessum málum með fjármuni al- ger forsenda þess að hægt sé að fara í þessar ljósleiðaraframkvæmdir. „Í mínum huga þá er þetta forsenda þess að byggðir þróist því ungt fólk sest ekki að nema að vera í góðu sambandi við umheiminn. Ferða- þjónustan nær heldur ekki að vaxa og dafna nema að vera vel tengd í netmálum og öðrum fjarskiptum. Í dag er erfitt er að reka fyrirtæki ef þau eru illa tengd í gegnum netið. Stundum finnst mér fólk ekki átta sig fyllilega á þessu brýna verkefni því það er ekki meðvitað um að það eru ekki allir nú á tímum sem enn búa við það að geta verið í góðu fjar- skiptasambandi gegnum internetið.“ Endurbætur á höfn og ferðamannastöðum Bæjarstjóri Snæfellsbæjar vekur einnig athygli á að aukið fé skuli sett til hafnarmála. Það nemi 400 millj- ónum króna. „Þetta er afar jákvætt og skiptir miklu máli fyrir okkur í Snæfellsbæ. Það blasir við okkur að við þurfum að fara í miklar fram- kvæmdir við stálþil í Rifshöfn. Þau eru orðin mjög léleg. Það verður byrjað á að endurnýja þau á næsta ári. Í heildina eru þetta framkvæmd- ir sem munu kosta um hálfan millj- arð.“ Hið þriðja og síðasta sem vekur gleði hjá bæjarstjóra Snæfellsbæjar er að fjármagn til framkvæmda við ferðamannastaði mun aukast veru- lega við samþykkt breytingartillagna meirihluta fjárlaganefndar við fjár- lög 2016. „Við verðum að taka okkur á til að taka á móti öllum þeim ferða- mönnum sem vilja koma til okkar. Hér í Snæfellsbæ þar sem við höf- um Þjóðgarðinn Snæfellsjökul höf- um við undanfarin þrjú ár gert mik- ið átak í úrbótum á ferðamannastöð- um. Til þess höfum við fengið styrki frá Framkvæmdasjóði ferðamála.“ Ótrúleg aukning milli ára Við viljum gera enn betur næstu árin. Snæfellsbær, Snæfellsnes og Vestur- land allt er ákaflega vinsælt hjá fólki að heimsækja. Til dæmis var aukning í fjölda ferðamanna hjá okkur nú á þessu ári 40% samanborið við 2014. Það er alveg ótrúleg fjölgun á svo stuttum tíma,“ segir Kristinn. Bæjarstjóri Snæfellsbæjar segist nú sjá greinilega að ferðaþjónustan sé að ná því sem þarf til að vera full- ur rekstur á ársgrundvelli. Stöðugt fleiri á Snæfellsnesi starfi eingöngu við ferðaþjónustu á svæðinu. „Tæki- færin er mörg hjá okkur. Það er hins vegar okkar að nýta þau. Sem bet- ur fer er framboð á afþreyingu allt- af að aukast á svæðinu. Þó við höf- um þessa fallegu náttúru þá er mjög mikilvægt að góð afþreying sé einn- ig til staðar og við þurfum að passa upp á það.“ mþh Sáttur við margt í breytingar- tillögum við fjárlög Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Göngustígurinn upp á Saxhól á Snæfellsnesi er meðal endurbóta sem gerðar voru í sumar varðandi aðgengi að ferðamannaperlum á Snæfellsnesi. Kirkjukór Ingjaldshólskirkju stóð að venju fyrir aðventuhá- tíð í kirkjunni á öðrum sunnu- degi í aðventu. Hátíðin hófst á því að séra Óskar Ingi Óskarsson sóknarprestur flutti ávarp. Fékk hann þau Brynjar Óttar Jóhanns- son og Matthildi Ingu Trausta- dóttur til að kveikja á kertunum á aðventukransinum á meðan sung- ið var lagið fallega Kveikjum einu kerti á. Systurnar Anja Huld og Stefanía Klara Jóhannsdæt- ur spiluðu á þverflautu og korn- ett og Hjörtur Sigurðarson spil- aði á harmonikku falleg jólalög. Ásta Dóra Valgeirsdóttir flutti hugvekju og Jóhann Pétursson las jólasögu sem allir nutu að hlýða á, bæði börn og fullorðnir. Kirkju- kórinn söng þrjú lög sem jók enn á hátíðleikann. Í lok hátíðarinn- ar flutti séra Óskar Ingi bæn og lokaorð áður en gestir fóru nið- ur í safnaðarheimili og gæddu sér á smákökum, kaffi og súkkulaði í boði kirkjukórsins. þa Aðventustund á Ingjaldshóli Laust starf hjá Akraneskaupstað Eftirfarandi starf er laust til umsóknar: Starf deildarstjóra í Leikskólanum Teigaseli• Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði Nánari upplýsingar að finna á www.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 5 Tapast hafa tveir ótamdir folar! Í byrjun nóvember 2015 töpuðust tveir fimm vetra folar úr girðingu á Gljúfurá í Borgarfirði. Annar er rauðjarpur (númer IS2010136612) en hinn er dökkjarpur (númer IS2010136611) Upplýsingar um hrossin óskast í síma 868-1995. Þórdís Reynisdóttir SK ES SU H O R N 2 01 5 Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is Útboð Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið: Hitaveita frá Deildartungu Endurnýjun aðveituæðar 2016: Endurnýja skal um 2490 m af 450 mm asbestlögn með DN450 stálpípum einangruðum í 630 mm plastkápu í landi jarðarinnar Miðfossa. Grafa skal upp um 2.490 m af 450 mm asbestlögn einangraðri með steinull, farga henni, jafna lagnastæðið og sá í það. Helstu magntölur eru: Gröftur 7.450 m3 Klapparlosun 100 m3 Hitaveitulögn DN450/630 2.510 m Asbestlögn ø450 fjarlægð 2.480 m Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 8.12.2015 á vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is/UmOR/Utbod. Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV-2015-24 Hitaveita frá Deildartungu - Endurnýjun aðveituæðar í landi Miðfossa útgefin í desember 2015“ Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 22.12.2015 kl. 11:00. VEV-2015-24 05.12.2015

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.