Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 15
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Auglýsing um lýsingu deiliskipulags
í Ólafsdal Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fund sínum þann 17. október að auglýsa
lýsingu á nýrri deiliskipulagstillögu skv. 1.mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr: 123/2010.
Lýsing deiliskiplagstillögu felur í sér eftirfarandi:
Ólafsdalur í Gilsfirði er meðal merkustu sögu-, menningar- og minjastaða á Vesturlandi við Breiðafjörð.
Viðfangsefni deiliskipulagsins er endurreisn og verndun bygginga og menningarlandslags í Ólafsdal. Miðað
er við að öll húsin verði í framtíðinni nýtt til þjónustu ferðamanna. Með endurbyggingu og endurgerð hús-
anna í Ólafsdal yrði menningar- og sögutengd ferðaþjónusta við Breiðafjörð styrkt til muna. Könnun verður
gerð á jarðhita í Ólafsdal með það í huga að nýta hann til hitunar á húsunum.
Megin markmið deiliskipulagsins er að stuðla að varðveislu þeirra merku menningarheildar sem felst í
sögu og tilvist Ólafsdals.
Að endurbyggja þau hús og mannvirki sem uppi standa og sem áður stóðu og tengdust rekstri og •
sögu skólans.
Að v• ernda og halda til haga jarðræktarsögu.
Að vernda• nátturlegt gróðurfar og stuðla að uppgræðslu sem hæfir nátturufari og sögu staðarins.
Lýsingin er birt á heimasíðu Dalabyggðar dalir.is, Skessuhorni, Bæjarins Besta og einnig á skrifstofu
Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal. Upplýsingar eru einnig veittar hjá Skipulagsfulltrúa Dala-
byggðar á sama stað. Kynning á lýsingu deiliskipulagstillögu verður í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar
Miðbraut 11 Búðardal þriðjudaginn 15. desember nk. á milli 10.00-14.00. Íbúar og hagsmunaðilar eru
hvattir til að mæta.
Ábendingum við lýsingu skal skila skriflega til skipulags og byggingarfulltrúa Miðbraut 11 Búðardal á
netfangið bogi@dalir.is eigi síðar en 31. desember 2015.
Skipulags og byggingarfulltrúi
Bogi Kristinsson Magnusen
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Endurauglýsing um breytingu á
deiliskipulagi Framness
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi
5. nóvember 2015 að endurauglýsa breytingu á deiliskipulagi
samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin felst í sameiningu lóða 4b og 6 á
Nesvegi í lóð 6. Lóðarmörk lóðar 4 breytist jafnframt á móti lóð 6.
Nýtingarhlutfallið breytist úr 0.90 í 0.95. Mesta leyfilega hæð
mannvirkis verður 16m. Sjá nánari upplýsingar í deiliskipulagstillögu.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar,
www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa,
Borgarbraut 16 á skrifstofutíma kl: 10-14 frá 9. desember 2015
til 21. janúar 2016 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum eða
athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa
Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður,
í síðasta lagi 21. janúar 2016.
Gunnar Sigurgeir Ragnarsson,
Skipulags- og byggingarfulltrúi í Grundarfirði.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Viðskiptavinir athugið !
Vegna starfsdags starfsmanna
föstudaginn 11. desember n.k.
verða allar skrifstofur embættisins
lokaðar þann dag.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Ólafur K. Ólafsson
Skólapúlsinn er „vefkerfi sem veit-
ir skólastjórnendum stöðugan að-
gang að nýjum upplýsingum sem
aflað er mánaðarlega um þætti sem
tengjast virkni og líðan nemenda í
skólanum og um skóla- og bekkj-
aranda,“ eins og segir á heimasíðu
verkefnisins. Þar má einnig nálg-
ast upplýsingar um aðferðafræði
þess. Tæplega 70 skólar víðs veg-
ar á landinu taka þátt í könnuninni
sem lögð er fyrir úrtak nemenda og
foreldra en einnig fyrir alla starfs-
menn skólanna. Í Grunnskólanum
í Borgarnesi verða þrjár kannanir
lagðar fyrir nemendur í vetur. Sú
fyrsta var lögð fyrir í lok september
og var svarhlutfall í henni 97,9%.
Þar var spurt um virkni nemenda
í skólanum, líðan og heilsu og loks
skóla- og bekkjaranda.
Í tilkynningu frá skólanum kem-
ur fram að nemendur Grunnskól-
ans í Borgarnesi hafi mælst yfir
landsmeðaltali í svarflokknum líð-
an og heilsa, en þar er spurt með-
al annars um sjálfsálit, stjórn á eig-
in lífi, vellíðan, hreyfingu og ein-
elti. Auk þess segir í tilkynning-
unni að einelti mælist langt undir
landsmeðaltali og hafi aldrei mælst
jafn lágt. Skólinn mældist einnig
yfir meðaltali þegar spurt var um
skóla- og bekkjaranda, þar sem er
til dæmis spurt um samsömun við
nemendahópinn, samband kennara
og nemenda, aga í tímum og fleira
slíkt.
Það sem betur má fara hjá skól-
anum lítur að virkni nemenda,
þar sem meðal annars er könnuð
ánægju af lestri, þrautseigja í námi,
áhuga á tilteknum námsgreinum
og trú á eigin vinnubrögðum og
námsgetu. Skólinn er þar aðeins
undir landsmeðaltali.
„Við innra mat skólans er not-
ast við „Gæðagreina“ sem er sjálfs-
matsaðferð sem er upprunnin í
Skotlandi. Í vetur verður unn-
ið að endurskoðun og uppbygg-
ingu skólanámskrár, námsmenn-
ingar og kennsluaðferða og fleira.
Fjallað hefur verið um niðurstöður
á starfsmannafundi og verður gert
á næsta fundi skólaráðs en þær eru
jafnframt birtar árlega í sjálfsmats-
skýrslu skólans og ársskýrslu,“ seg-
ir í tilkynningunni.
Á meðfylgjandi línuritum má
sjá breytingar á meðaltali Grunn-
skólans í Borgarnesi milli ára sam-
anborið við þróunina á landsvísu.
Breyting á landsmeðaltali frá skóla-
árinu 2014-15 til þessa árs skýr-
ist einhverju leyti af því að í ár er
landsmeðaltalið vigtað í samræmi
við stærð skóla. Marktektarprófum
var bætt við línurit ársmeðaltala frá
og með árinu 2014.
kgk
Grunnskólinn í Borgarnesi kemur
vel út úr Skólapúlsinum Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi
OLIVER KRISTÓFERSSON
Frá Háteigi, Akranesi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. nóvember
Útför fer fram í Akraneskirkju 15. desember nk. kl. 14:00
Steindór Oliversson Inga Björg Sigurðardóttir
Helga Oliversdóttir Pálmi Pálmason
Kristófer Oliversson Svanfríður Jónsdóttir
Guðlaug Kristófersdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is