Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 25 Akranes - miðvikudagur 9. desember Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið á Akranesi frá kl. 10-17. Allir velkomnir. Blóðgjöf er lífgjöf. Borgarbyggð - miðvikudagur 9. desember Frá klukkan 15 og fram eftir degi ætlum við að koma saman og eiga notalega stund í Geirabakaríi. Steinar Berg kemur og les upp úr nýju bókinni sinni Trunt Trunt og hver veit nema vinir okkar úr fjöllunum kíki á heim- sókn. Við ætlum að leika okkur við að skreyta piparkökur og búa til okkar eigið piparkökuhús. Húsin verða lítil og nett og mun eitt piparkökuhús kosta 1.000 kr. Innifalið í því er allt hráefni sem þarf til að líma saman og skreyta húsin. Tilvalið er því að leyfa hverju barni fyrir sig að skreyta sitt eigið piparkökuhús. Mikilvægt að skrá fjölda húsa svo allir fái hús sem vilja fyrir sig og sína til að njóta. Hægt er að skrá sig á viðburðinn á Facebook síðu Geirabakarís. Borgarbyggð - miðvikudagur 9. desember Jólatónleikar Tónlistarskólans í Loga- landi. Tvennir tónleikar verða, klukkan 18 og kl. 20, þar sem nemendur flytja fjölbreytta tónlist. Allir velkomnir! Stykkishólmur - miðvikudagur 9. desember Tvennir jólatónleikar í sal tónlistar- skólans. Fyrri tónleikarnir eru kl. 18 og þeir síðari kl. 18:45. Nemendur skólans flytja jólalög og fleira fallegt. Fjölbreytt tónlist úr öllum deildum skólans. Öllum velkomið að hlusta og njóta með okkur. Akranes - miðvikudagur 9. desember Útgáfutónleikar í Akraneskirkju kl. 20. Jónína Björg Magnúsdóttir - Nína, heldur útgáfutónleika í tilefni af útgáfu af geisladisknum Sungið fyrir svefninn - með mínu nefi. Aðgangseyrir 1000 kr. Ef einhver vill næla sér í eintak þá verða geisladiskar seldir á staðnum, 3000 kr. diskurinn. Enginn posi. Borgarbyggð - miðvikudagur 9. desember Viðtalstími sveitarstjórnar í félagsheim- ilinu Þinghamri kl. 20. Íbúar eru hvattir til að mæta. Boðið verður upp á kaffi. Borgarbyggð - fimmtudagur 10. desember Jólatónleikar nemenda kl. 17 í Tón- listarskólanum, Borgarbraut 23. Fjöl- breytt tónlist - allir velkomnir! Dalabyggð - fimmtudagur 10. desember Jólatónleikar Breiðfirðingakórsins í Fella- og Hólakirkju kl. 20. Breið- firðingakórinn heldur sína árlegu jólatónleika í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 10. desember kl. 20. Aðgangseyrir við innganginn er 3.000 kr. Upplagt fyrir Dalamenn sem staddir eru á Reykjavíkursvæðinu að slaka á við jólaundirbúninginn og njóta ljúfra jólatóna í notalegu umhverfi. Borgarbyggð - fimmtudagur 10. desember Prjóna-bóka-kaffi í bókhlöðu Snorra- stofu kl. 20. Kvöldstund við hannyrðir, bókaspjall og kaffisopa. Gestir eru hvattir til að hafa með sér hugmyndir og uppskriftir að hannyrðum og hvers konar handverki. Einnig hafa kvöldin reynst góður vettvangur fyrir hvers kyns frásagnir og kynningar á hugðarefnum. Safnið er opið til útlána og allir eru hjartanlega velkomnir. Akranes - fimmtudagur 10. desember Jólagleði kóranna fer fram kl. 20 í Tóbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Fram koma Kvennakórinn Ymur, Grundatangakórinn, Kór Saur- bæjarprestakalls og Karlakórinn Svanir. Stjórnendur eru Sigríður Elliðadóttir, Atli Guðlaugsson, Zsuxanna Budai og Valgerður Jónsdóttir. Forsala aðgöngu- miða er í Bókasafninu á Akranesi. Miðaverð er kr. 2.500 og er frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Stykkishólmur - fimmtudagur 10. desember Söngsveitin Blær verður með tónleika í Stykkishólmskirkju kl. 20. Borgarbyggð - fimmtudagur 10. desember Svavar Knútur & Kristjana Stefáns á Sögulofti í Landnámssetrinu kl. 20:30. Jólatónleikar! Fleiri orð eru óþörf. Borgarbyggð - laugardagur 12. desember Jólatrésala skógræktar ríkisins á Vesturlandi fer fram helgina 12.-13. desember í Selskógi í Skorradal. Opið er frá 11 - 16 báða dagana. Hér gefst fólki tækifæri til að fara út í skóg að velja sitt jólatré sjálft og saga það. Verið velkomin, vonumst til að sjá sem flesta. Borgarbyggð - sunnudagur 13. desember Jólatrjáhögg á vegum Skógræktar- félags Borgarfjarðar í Reykholti kl. 11 - 15. Boðið er upp á að fólk komi í skóg- inn, velji sér tré og höggvi. Félagar í Skógræktarfélagi Borgarfjarðar standa vaktina og aðstoða við val á jólatrjám. Sama verð er fyrir öll tré óháð gerð, 6.500 kr. Kakó, ketilkaffi og piparkökur fyrir gesti skógarins. Borgarbyggð - sunnudagur 13. desember Jólatrjáhögg á vegum og Björgunar- sveitarinnar Heiðars og Skógræktar- félags Borgarfjarðar í Grafarkoti. Boðið er upp á að fólk komi í skóginn, velji sér tré og höggvi. Félagar í Björgunar- sveitinni Heiðari standa vaktina og aðstoða við val á jólatrjám 12. 13. og 20. desember kl. 11-15. Sama verð er fyrir öll tré óháð gerð, 6.500 kr. Boðið verður upp á hressingu fyrir gesti. Akranes - sunnudagur 13. desember Jólatrjáasala Skógræktarfélags Akra- ness í Slögu í Akrafjalli milli kl. 12 - 15. Akranes - sunnudagur 13. desember Jóla- og handverksmarkaður verður haldinn að Kirkjubraut 40, 3. hæð kl. 12 - 17. Gott í gogginn, fallegt handverk, kaffiveitingar og tónlist. Björgunar- sveitin mun koma í heimsókn. Allir velkomnir! Akranes - sunnudagur 13. desember Aðventumarkaður í Safnaskálanum frá kl. 12 - 18. Skráning borða er á garda- kaffi@gmail.com og hjá Söru í síma 774-4201. Dalabyggð - sunnudagur 13. desember Jón og jólasveinarnir á Laugum í Sælingsdal kl. 15. Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli ætlar að heimsækja Byggðasafn Dalamanna og segja frá jólasveinunum í sögustund sunnudaginn 13. desember kl. 15. Öll þekkjum við jólasveina okkar Dala- manna sem Jóhannes úr Kötlum orti um. En nafngreindir jólasveinar og - meyjar eru nokkuð fleiri þegar nánar er skoðað. Þetta er meira en ágætis tilefni til að heimsækja safnið, hlusta á skemmtilegan fróðleik, fá sér kaffisopa og kannski líta eftir vegsummerkjum eftir þá jólasveina sem komnir eru til byggða. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna og frítt fyrir börn yngri en 18 ára í fylgd fullorðinna. Akranes - mánudagur 14. desember Kakó og piparkökur í Tónbergi kl. 17. Rökkurtónar í anddyri skólans og boðið upp á heitt kakó og piparkökur. Stykkishólmur - mánudagur 14. desember Jólatónleikar í sal tónlistarskólans kl. 18. Þessum tónleikum var frestað um viku vegna óveðurs 7. desember. Nemendur skólans flytja jólalög og fleira fallegt. Fjölbreytt tónlist úr öllum deildum skólans. Öllum velkomið að hlusta og njóta með okkur. Stykkishólmur - mánudagur 14. desember Jólatónleikar karlakórsins Kára kl. 20 í Stykkishólmskirkju. Borgarbyggð - þriðjudagur 15. desember Vísindamaður á Sögulofti í Landnáms- setrinu kl. 18. Bræðurnir Ævar Þór og Guðni Benediktssynir lesa úr nýút- komnum bókum sínum. Aðgangur ókeypis. Bækurnar verða til sölu og hægt að fá áritun höfunda. Akranes - þriðjudagur 15. desember Jólatónleikar V í Tónbergi kl. 18. Nemendatónleikar í salnum okkar. Fjölbreytt efnisskrá. Verið velkomin í afslöppum til okkar. Borgarbyggð - þriðjudagur 15. desember Hátíð fer að höndum ein. Hátíðar- og kyrrðarstund í samstarfi Tónlistar- félags Borgarfjarðar, Reykholtskirkju og Vesturlandsprófastsdæmis kl. 20. Andrés Þór Gunnlaugsson, Jón Rafns- son og Karl Olgeirsson leika jólasálma í léttri og hátíðlegri djassútsetningu. Kristín Á. Ólafsdóttir og Guðlaugur Óskarsson flytja ljóð með aðventublæ. Aðgangseyrir kr. 2000. Eldri borgarar kr. 1000. Frítt fyrir félaga Tónlistar- félagsins og börn. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum. Á döfinni Nýfæddir Vestlendingar 30. nóvember. Drengur. Þyngd 3.845 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Fanney Dögg Indriðadóttir og Elvar Logi Friðriksson, Hvammstanga. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 2. desember. Stúlka. Þyngd 4.785 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Linda Dögg Kristjánsdóttir og Admir Jukaij, Akranesi. Ljósmóðir: G. Erna Valentínusdóttir. 4. desember. Drengur. Þyngd 4.345 gr. Lengd 56 sm. Foreldrar: Erla Katrín Kjartansdóttir og Elfar Már Ólafsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. 7. desember. Stúlka. Þyngd 3.395 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar: Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir og Höskuldur Kolbeinsson, Borgarfirði. Ljósmóðir: Elísabet Harles.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.