Skessuhorn - 09.12.2015, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20158
Yfirskrift jólatónleika ársins í Snæ-
fellsbæ var „Jólin heima“. Tónleik-
arnir fóru fram í félagsheimilinu
Klifi í Ólafsvík á sunnudagskvöld-
ið. Þar komu fram söngvarar og
tónlistarmenn úr Snæfellsbæ á öll-
um aldri. Hátt í 400 manns sóttu
þessa jólatónleika sem menningar-
nefnd Snæfellsbæjar stóð fyrir og í
framkvæmdarstjórn voru G. Sirrý
Gunnarsdóttir og Olga Gunnars-
dóttir. Kynnir kvöldsins var Guð-
mundur Jensson og jólahljómsveit-
in sá um undirspil. Margir ungir
söngvarar komu í fyrsta sinn fram
opinberlega og stóðu sig vel.
Einn þeirra sem komu fram í
fyrsta sinn á tónleikunum var bæj-
arstjórinn Kristinn Jónasson sem
söng með kirkjukórnum. Krist-
inn var hinn hressasti þegar frétta-
rritari hitti hann eftir tónleikana.
„Það var sérstök stund fyrir mig að
koma fram í fyrsta sinn sem söngv-
ari,“ sagði hann og bætti við bros-
andi: „Já, ég er að syngja þessa
dagana með kirkjukórnum, hvort
sem fólk trúir því eða ekki. Ég veit
að móðir mín verður ánægð þeg-
ar hún fréttir þetta,“ sagði Krist-
inn skellihlæjandi.
Greinilegt var þó að bæjarstjór-
inn var ekki alveg laus við sviðs-
skrekkinn fræga. Hann tók samt
fram að lokum að þessa dag-
ana væri nóg um að vera í menn-
ingarlífinu í Snæfellsbæ. „Það er
leiksýningin Fróðá sem sýnd er í
Frystiklefanum á Rifi og er mögn-
uð. Síðan eru það jólatónleika-
rnir í kvöld, árleg bókakynning
sem verður á á miðvikudaginn og
jólatónleikar Kirkjukórs Ólafsvík-
ur fimmtudaginn 10. desember.
Þetta er nú bara til að nefna sitt-
hvað. Fólki á ekki að leiðast í Snæ-
fellsbæ á aðventunni frekar en aðra
daga ársins. Hér er alltaf nóg um
vera sem er frábært,“ sagði bæjar-
stjórinn syngjandi.
af
Hjól undan
strætisvagni lenti
framan á bíl
KOLLAFJÖRÐUR: Síðast-
liðinn miðvikudagsmorgun
varð það óhapp í Kollafirði,
við Esjurætur, að hjól losnaði
undan strætisvagni sem var á
leið á Akranes. Lausa hjólið
tók fram úr strætisvagninum
og skall framan á horni fólks-
bíls sem var að koma úr gagn-
stæðri átt. Sá bíll er illa farinn
ef ekki ónýtur enda vegur dekk
og felga á annað hundrað kíló
og höggið þungt. Ökumaður
fólksbílsins slapp án meiðsla.
Það er fyrirtækið Hópbílar
sem sér í verktöku um akstur
á þessari leið fyrir Strætó bs.
Að sögn Ágústar Haraldsson-
ar rekstrarstjóra Hópbíla er
þetta í fyrsta skipti sem fyr-
irtækið lendir í að missa hjól
undan vagni frá sér, enda séu
til þess gerðar öryggisklemm-
ur sem eiga að koma í veg fyrir
að rærnar sem halda hjólunum
fari af jafnvel þótt losni upp á
þeim. Ágúst segir að vagninn
hafi strax verið kallaður inn
til ítarlegrar skoðunar. Kvaðst
hann harma óhappið.
–mm
Jóla- og hand-
verksmarkaður
AKRANES: Jóla- og hand-
verksmarkaður verður hald-
inn á Kirkjubraut 40 á Akra-
nesi, í sal FEBAN, sunnudag-
inn 13. desember frá klukkan
12-17. Það er Andrea Björns-
dóttir sem stendur fyrir mark-
aðinum. Þar verða m.a. til sölu
konfektkassar til styrktar leik-
stofu Barnaspítala Hringsins,
jólakort til styrktar krabba-
meinsveikum börnum og
björgunarsveitin verður með
varning til sölu til styrkt-
ar starfi sínu. Auk þess verð-
ur ýmislegt fleira á boðstóln-
um og dagskráratriði. Klukk-
an 13 mun Anna Lára Stein-
dal les upp úr bókinni sinni,
Undir fíkjutré og klukkan 14
syngur Nína vel valin lög og
kynnir nýja geisladiskinn sinn:
„Sungið fyrir svefninn – með
mínu nefi.“ Kaffiveitingar
verða á staðnum.
–fréttatilk.
Spáð að ferða-
menn verði 1307
þúsund
LANDIÐ: Það sem af er
árinu hefur fjölgun ferða-
manna verið um 30% frá fyrra
ári og gera Samtök ferðaþjón-
ustunnar ráð fyrir að heildar-
fjöldi erlendra ferðamanna á
árinu 2015 verði 1.307 þús-
und. Í nýjum tölum um þjón-
ustuviðskipti milli landa kem-
ur fram að á þriðja ársfjórð-
ungi hafi þjónustujöfnuð-
ur við útlönd verið jákvæð-
ur um 90,4 milljarða kr. og
munar þar mest um tekjur í
ferðaþjónustu. SAF gera því
ráð fyrir að gjaldeyristekjur í
ferðaþjónustu haldi áfram að
vaxa á síðasta fjórðungi ársins í
samanburði við fyrra ár. Áætla
samtökin að heildargjaldeyr-
istekjur muni nema um 368
milljörðum kr. í ár. Þar mun-
ar mestu um 316 milljarða kr.
vegna útgjalda erlendra ferða-
manna innanlands ásamt far-
gjaldatekjum í erlendri mynt
til og um Ísland. –mm
Smábátar drjúgir
við skötuselinn
LANDIÐ: Í fyrra veiddust 1.185
tonn af skötusel á Íslandsmiðum.
Smábátar með kvóta drógu alls 534
tonn, eða 45% af heildinni. Skip
með aflamark veiddu svo 505 tonn,
eða um 43%. Skuttogarar veiddu
128 tonn eða 10,8% og krókaafla-
marksbátar voru með restina eða 18
tonn (1,5%). Stærstur hluti skötu-
selsaflans fékkst í net, eða 710 tonn.
Humarvarpan skilaði svo 234 tonn
og um 20% af heild. Netaafli í
skötusel skiptist þannig að smábátar
með aflamark eru með 534 tonn en
stærri skip eru með 176 tonn. Veru-
lega hefur dregið úr sókn í skötu-
selinn. Nægt framboð mun vera á
leigukvóta. Verðið á honum er 240
krónur á kílóið en síðan bætist við
tæplega 30 króna veiðigjald. Hæsta
verð sem fæst fyrir skötusel á mörk-
uðum er um 650 krónur fyrir kíló-
ið. Þetta kemur fram í sjávarútvegs-
blaðinu Fiskifréttum. –mþh
Illa horfir með
loðnuveiðar
LANDIÐ: Mikil óvissa ríkir nú um
loðnuvertíð í vetur. Rannsóknaskip-
ið Árni Friðriksson var sent í loðnu-
mælingarleiðangur í nóvembermán-
uði öðru sinni í haust eftir að fyrsti
leiðangurinn misheppnaðist vegna
illviðra og hafíss norður í Dumbs-
hafi. Þá mældist afar lítið af loðnu.
Seinni leiðangurinn hófst svo 17.
nóvember. Aðstæður til loðnuleit-
ar og mælinga voru enn verri en í
fyrra skiptið og svo fór að leiðang-
urinn var blásinn af og skipið kall-
að inn þar sem veðurútlit var af-
leitt. Engin loðnumæling hefur því
náðst. Íslenski uppsjávarveiðiflotinn
er kvótalaus í loðnu. Útlit er fyrir að
skipin verði bundin verkefnalaus við
bryggju fram í janúar hið minnsta
eða þar til og ef loðna finnst. -mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
28. nóvember - 4. desember
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 5 bátar.
Heildarlöndun: 30.567 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 13.499 kg í
þremur löndunum.
Arnarstapi 5 bátar.
Heildarlöndun: 31.241 kg.
Mestur afli: Særif SH: 10.058 kg í
tveimur löndunum.
Grundarfjörður 6 bátar.
Heildarlöndun: 268.453 kg.
Mestur afli: Steinunn SF: 117.390
kg í tveimur löndunum.
Ólafsvík 14 bátar.
Heildarlöndun: 164.567 kg.
Mestur afli: Kristinn SH: 29.619
kg í fimm löndunum.
Rif 15 bátar.
Heildarlöndun: 390.447 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH: 92.197
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur 6 bátar.
Heildarlöndun: 64.829 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH: 34.008 kg
í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
69.053 kg. 2. desember.
2. Örvar SH – RIF:
68.027 kg. 2. desember.
3. Steinunn SF – GRU:
64.000 kg. 28. nóvember.
4. Rifsnes SH – RIF:
56.232 kg. 30. nóvember.
5. Steinunn SF – GRU:
53.390 kg. 30. nóvember.
mþh
Það er einn hlutur sem stendur mér
og kynbræðrum mínum mjög nærri,
en það er þegar við lútum í gras fyrir
veikindum. Þau geta verið af marg-
víslegum toga; kvef, hiti, beinverkir,
höfuðverkir o.s.fv. Í seinni tíð hefur
þetta ástand fengið viðurnefnið kar-
laflensa (e. man flu) og það er blá-
kaldur raunveruleiki að við strák-
arnir mætum litlum skilningi hjá
hinu kyninu. Þetta er kallaður væll
í okkur og hæðst að ástandi okk-
ar; „engist ég um og styn af áfergju
þegar ég er veik?“ heyrist jafnvel. Ég
gæti haldið áfram en það er engum
greiði gerður með því.
Flensan heimsótti heimilið í síð-
ustu viku og ég varð sá þriðji til að
lúta í gras. Og eins og flestir karl-
menn verða þá varð ég illveikur, tók
sótt eins og orðað er í Íslendinga-
sögunum, þá verð ég ófær um ein-
földustu hluti sem þykja hversdags-
legir og einfaldir í höndum hins full-
fríska manns og lífið verður á all-
an hátt flóknara og kaldara. Sóf-
inn verður dvalarstaðurinn og all-
ar vegalengdir innanhúss sem voru
eitt sinn örfá skref breytast í kíló-
metra. Líkams- og hugarástand mitt
var var líkt og hjá Winston Smith í
yfirheyrslum hugsanalögreglunnar
úr bókinni 1984, tímaskynið hvarf
og þegar hápunkti veikindanna var
náð vissi ég ekki hvort liðnir væru
tveir dagar eða mánuðir. Það skipti
engu máli hvort sem er, eina sem
skipti máli var að halda áfram að
anda og blikka augunum því maður
vill ekki láta þau þorna upp. Matur-
inn bragðaðist skringilega og meira
segja Coca Cola-ið fékk á sig fram-
andi blæ, svona veikindabragð. Þeg-
ar ég hresstist loksins og gat stigið
út fyrir hússins dyr kom þessi undar-
lega tilfinning yfir mig sem allir Ís-
lendingar fá yfir sig þegar þeir koma
frá útlöndum og anda að sér loftinu,
ég var kominn meðal lifenda á ný.
En hver er ástæðan? Hver er
ástæðan fyrir því að krukkuopnar-
inn á heimilinu liggur svona kylli-
flatur þegar veikindi bera að garði?
Svarið fæst í karlmennskunni, það
er víst búið að finna það út að mik-
ið magn af testósteróni getur veikt
ónæmiskerfið á þann hátt að heim-
ilisfaðirinn liggur nær dauða en lífi
fáeina daga á ári hverju og veit ekki
einu sinni hvað hann heitir. Svo að
þar sannast hið fornkveðna að karl-
mennskan drepur mann. Hvað svo
sem er hægt að gera í því er ekki vit-
að, flensan eyrir engum.
Axel Freyr Eiríksson, Borgarfirði.
Jólatónleikarnir
„Jólin heima“ í Snæfellsbæ
Kirkjukórinn ásamt Barna- og skólakór Snæfellsbæjar.
Systkinin Brynjar og Margrét Vilhjálmsbörn sungu dúett við mikinn fögnuð
áheyrenda.
Söngvararnir komu saman og sungu lagið „Hjálpum þeim“ í lokaatriðinu.
PIstill
Af flensu