Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Side 11

Skessuhorn - 09.12.2015, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 11 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is SK ES SU H O R N 2 01 5 verður að Sólbakka 2, við húsnæði Frumherja og ARGO 17 - 21 17 - 21 17 - 20 SK ES SU H O R N 2 01 5 Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis gerir tillögu um 50 milljóna króna framlagi til Háskólans á Bifröst í tillögugerð sinni fyrir aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins. Þar var gert ráð fyrir 325 milljóna króna fram- lagi sem mun hækka í 375 milljón- ir króna samkvæmt tillögu meiri- hluta nefndarinnar. „Þessi hækk- un á framlagi ríkisins til Háskólans á Bifröst skiptir mjög miklu máli fyrir skólann. Í fjárlagafrumvarp- inu var ekki tekið tillit til fjölgunar nemenda við skólann en nú hefur meirihluti fjárlaganefndar brugðist við athugasemdum frá skólanum og ákveðið að koma til móts við hann,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Stjórn Háskólans á Bifröst hefur afgreitt fjárhagsáætlun fyrir kom- andi ár þar sem miðað er við að skólinn komist úr taprekstri í smá- vægilegan hagnað. „Tillaga meiri- hluta fjárlaganefndar styður við þau áform. Helstu lánadrottnar Háskólans á Bifröst, Arion banki og Byggðastofnun endurfjármögn- uðu skólann á árinu og stóðu vel við bakið á honum til þess að kom- ast yfir þá fjárhagserfiðleika sem tímabundin fækkun nemenda hafði skapað.“ Um 630 nemendur hófu nám við Háskólann á Bifröst sl. haust og horfur eru á að góður hópur nýrra nemenda innritist í skólann á vor- önn 2016 en jafnan koma langflest- ir nemendur inn í skólann á haus- tönn. „Því má reikna með að nem- endum fjölgi áfram við Háskólann á Bifröst og að skólinn haldi áfram að styrkjast á árinu 2016.“ mm Háskólinn á Bifröst fær við- bótarframlag á fjárlögum

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.