Skessuhorn - 09.12.2015, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 201522
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudög-
um. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti
sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að
póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
77 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku.
Lausnin var: „Vandfenginn er vinur trúr.“ Vinningshafi
er: Magnea K Sigurðardóttir, Holtsbúð 83, 210 Garða-
bæ.
mm
Skýr
Þröng
Óttast
Dafnaði
Gleðst
Galgopi
Rimla-
kassinn
Hafna
Rex
Brakaði
Þurr á
mann-
inn
Væl
Dans
Upphr.
Far
Slá
Vangát
Druslur
Ásaka
Niður-
staða
6
Stillt
Snót
Hnjóð
Samhlj.
Svefn
Ákafur
Mjög
Hnöttur
Nám
Sjó
Böggull
Mál
Kögur
Dráttar-
dýrin
Stallur-
inn
Mýri
Hamast
Dreifa
Dý
Fiskur
Laust
4 1
8 Sómi
Högg
Alltaf
Móta
Fæða
Korn
Drykkur
Húð
50
Læti
Heimt-
ing
Slæm
Tónn
Óreiða
Kunni
Skel
Rugl
Hrekkja-
lóma
Leit
Tvíhlj.
Leðja
Ílát
Niður
Þræta
Stafur
Trjónur
Undir-
lag
Veisla
2 Púl
Vindur
Orka
9
Rangl
Mjúkar
Svelgur
Hljóta
Æfðar
Neyt-
endur
Hró
Fum
Hvíldi
Vafi
Sverta
Hita
Átt
Fljótur
Rasa
Upphr.
Gler-
ungur
Býli
3 Kúgun
Svik
Konan
Á skipi
Dútl
Þófar
Áræðna
7
Kvakar
Málmur
Vein
5
Hlaup
Eins
um G
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Hátíð brautskráðra doktora við
Háskóla Íslands fór fram í fimmta
sinn í síðustu viku, fullveldisdaginn
1. desember, en þá tóku 64 dokt-
orar, sem eiga það sameiginlegt að
hafa brautskráðst frá skólanum á
tímabilinu 1. desember 2014 til 1.
desember 2015, við gullmerki skól-
ans. Doktorarnir koma af öllum
fimm fræðasviðum háskólans. Há-
tíð brautskráðra doktora var fyrst
haldin á aldarafmæli skólans árið
2011. Henni er ætlað að undir-
strika þá áherslu sem skólinn hef-
ur lagt á rannsóknatengt nám á síð-
ustu árum. Doktorsnám við skól-
ann hefur eflst mjög á undanförn-
um áratug, ekki síst með skýrri
stefnumörkun skólans, fyrst fyr-
ir árin 2006-2011 og svo aftur fyr-
ir árin 2011-2016. Á seinna tíma-
bilinu var markið sett á 60–70
brautskráningar úr doktorsnámi
á ári hverju. Annað árið í röð nær
skólinn þessu markmiði en þess má
geta til samanburðar að 32 dokt-
orar brautskráðust árið 2009. Við
þetta má bæta að á yfirstandandi ári
brautskráðist 500. doktorsneminn
frá upphafi frá Háskóla Íslands.
Doktorsnemar leggja mikið af
mörkum til skólans í samstarfi við
leiðbeinendur sína og sést það bæði
í góðum árangri í birtingum vís-
indagreina í alþjóðlegum tíma-
ritum og stöðu Háskóla Íslands á
matslista Times Higher Educa-
tion World Rankings, en skólinn
hefur verið á lista tímaritsins yfir
300 bestu háskóla heims undanfar-
in fimm ár.
Við athöfnina í Hátíðasal Há-
skóla Íslands í dag voru viðstaddir
þeir doktorar, sem vörðu ritgerð-
ir sínar við skólann frá 1. desember
2014 til 1. desember 2015. Þeir eru
64 sem fyrr segir, 29 karlar og 35
konur. Um það bil þriðjungur þessa
hóps er með erlent ríkisfang, frá 14
þjóðlöndum í Evrópu, Norður-
Ameríku, Asíu og Afríku. mm
Á sjöunda tug doktora tók við
gullmerki Háskóla Íslands
Söngparið Krist-
jana Stefánsdóttir
og Svavar Knút-
ur halda jólatón-
leika á Sögulofti
L a n d n á m s s e t -
ursins í Borgar-
nesi fimmtudag-
inn 10. desember
kl. 20:30. Svavar
og Kristjana hafa
síðan 2008 haft
mikla unun af því
að syngja saman
dúetta og kom-
ið fram víða um
landið við gríðar-
góðar undirtektir.
Þau hafa áður látið gamminn geysa
og tekið saman fjölbreytta dag-
skrá dúetta, sem rúmað hefur allt
frá Abba til Dolly Parton með við-
komu hjá Nick Cave og Páli Ísólfs-
syni, auk frumsamdra laga og hinna
ýmsu gleði- og tregabomba. En að
þessu sinni svífur jólaandinn yfir
vötnum og við eigum von á yndis-
lega fallegri jólastemningu á gamla
pakkhúsloftinu.
Kristjana Stefánsdóttir er án
nokkurs efa drottning hins íslenska
djassheims, en hefur þó einnig
sungið hina ólíkustu stíla og komið
víða við, til dæmis í leikhúsinu, þar
sem hún stýrði tónlistinni í Galdra-
karlinum í Oz og brá sér hlutverk
trúðsins Bellu í Dauðasyndunum
sjö, Jesú Litla og nú síðast Sókrates
í Borgarleikhúsinu. Kristjana hef-
ur gefið út fjölda hljómplatna, þar
á meðal blúsplötuna Better days
blues og saman gáfu þau Svavar út
saman plötuna Glæður.
Svavar Knútur hefur undanfar-
in ár notið ört vaxandi velgengni
sem söngvaskáld og tónlistarmað-
ur. Hljómplötur hans, Kvöldaka,
Amma og Ölduslóð hafa allar not-
ið mikilla vinsælda og hlotið prýði-
lega dóma. Svavar Knútur hlaut
verðlaun úr minningarsjóði Önnu
Pálínu Árnadóttur fyrir starf sitt í
þágu eflingar þjóðlagatónlistar á Ís-
landi. Hann hefur einnig gert víð-
reist undanfarið og meðal annars
ferðast með tónlist sína til Ástralíu,
Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada.
Ekki missa af einstakri jólaupplif-
un.
-fréttatilkynning
Jólatónleikar með
Svavari Knúti og Kristjönu
Svínasteik þykir herramannsmatur
hvenær sem er ársins. Í Danmörku
er hægt að fá svínasteik með stökkri
puru nánast hvenær sem er en hér-
lendis tengja margir slíkan mat við
jólin. Á sumum íslenskum heimil-
um er purusteikin höfð í jólamat-
inn, þá sér í lagi hjá þeim sem ekki
eru hrifnir af reyktu kjöti. Hjá öðr-
um á hún sérlega vel við á aðvent-
unni, með góðu meðlæti svo sem
sykurbrúnuðum kartöflum, rauð-
káli, grænum baunum og ef til vill
eplasalati. Hér er uppskrift af hefð-
bundinni purusteik með stökkri
puru. Negullinn gerir alltaf sitt
gagn og gefur smá jólailm í húsið,
ásamt góðu bragði í kjötið.
Svínasteik með puru (fyrir 6)
Innihald:
1,5 svínakjöt, beinlaust en með puru.
Gróft salt
Nýmulinn pipar
12 stk. negulnaglar
6 stk. lárviðarlauf
Grænmeti í soðið, ef gera á sósu.
Aðferð:
Skerið rákir í puruna með jöfnu
millibili, hafið um það bil hálfan
sentímetra á milli. Nuddið síðan
saltinu og piparnum í rákirnar og
stingið negulnöglunum og lárvið-
arlaufunum í. Látið kjötið standa á
grind í ofnskúffunni og setjið einn
lítra af vatni í. Ef nota á soðið í sósu
er gott að setja gróft skorið græn-
meti, svo sem lauk, gulrætur og
sellerí í botninn ásamt 2 - 3 pipar-
kornum að auki.
Steikið kjötið í 1,5 klst. við
180°C og hækkið síðan hitann í
220°C síðustu tíu mínúturnar til að
fá puruna stökka. Mælið kjötið með
kjöthitamæli og þegar hann sýnir
um 72°C, þá er steikin tekin út úr
ofninum. Látið steikina hvíla und-
ir álpappír í 15 - 20 mínútur áður
en hún er skorin, til að halda saf-
anum. Ef steikin fær ekki að hvíla
er hætta á því að kjötið verði þurrt
og seigt. Gott er að gera rjómasósu
úr soðinu.
Purusteik á aðventu eða jólum
Freisting vikunnar