Skessuhorn - 09.12.2015, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 27
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Þjálfarar yngri landsliða Íslands
hafa valið sína fyrstu æfingahópa
fyrir verkefni komandi sumars.
Leikmennirnir hafa verið boðaðir
til æfinga með sínum landsliðshóp-
um dagana fyrir jól, 19.-21. des-
ember. Nokkrir ungir og efnilegir
körfuknattleiksmenn af Vesturlandi
munu þá hitta æfingafélaga sína og
keppast um landsliðssæti fyrir kom-
andi sumar.
Hrafnhildur Magnúsdóttir úr
Snæfelli og Melkorka Sól Pét-
ursdóttir úr Skallagrími hafa ver-
ið boðaðar til æfinga með U16 ára
hópi stúlkna. Með sama aldurs-
flokki drengja munu æfa þeir Arn-
ar Smári Bjarnason úr Skallagrími
og Aron Ingi Hinriksson úr Snæ-
felli. Sigurður Aron Þorsteins-
son og Brynjar Snær Pálsson sem
báðir leika með Skallagrími munu
æfa með U15 æfingahópi drengja,
sem og Eiríkur Már Sævarsson,
leikmaður Snæfells. Arna Hrönn
Ámundadóttir úr Skallagrími hef-
ur verið valin í U15 hóp stúlkna þar
sem Finnur Jónsson er þjálfari, en
hann þjálfar einnig meistaraflokk
karla hjá Borgarnesliðinu.
Áhugasömum er bent á að skipan
æfingahópa yngri landsliða Íslands
má nálgast í heild sinni á vef KKÍ.
kgk
Efnilegir körfuknattleiksmenn
boðaðir til landsliðsæfinga
Arna Hrönn Ámundadóttir (t.v.) ásamt systrum sínum Sigrúnu og Guðrúnu eftir
leik í Lengjubikarnum í haust. Var það fyrsti meistaraflokksleikur Örnu fyrir
Skallagrím, en þá hafði hún ekki náð 14 ára aldri.
Skotfélag Vesturlands var stofnað
10. apríl árið 2012 og er því aðeins
á sínu þriðja starfsári. Engu að síð-
ur eru félagsmenn þegar orðnir um
120 talsins og hefur fjölgað jafnt og
þétt frá stofnun. Félagsmenn hafa á
síðustu þremur árum unnið hörðum
höndum að því að koma sér upp skot-
aðstöðu innanhúss í Brákarey í Borg-
arnesi fyrir bæði loft- og púðurbyssur
og hrundu nýverið af stað söfnun til
að bæta aðstöðuna. „Við erum búin
að byggju upp mjög myndarlega að-
stöðu og erum að reyna að bæta hana
með því að safna fyrir rafrænum skot-
mörkum og slíku,“ segir Þórður Sig-
urðsson formaður SV í samtali við
Skessuhorn. „Þó aðstaðan sé mjög
góð og allt sé löglegt samkvæmt öll-
um alþjóðlegum stöðlum, þá viljum
við geta boðið upp á það besta,“ seg-
ir hann en aðstaða félagsins er engu
að síður með því besta sem þekkist á
landsbyggðinni en mjög fá skotfélög
utan höfuðborgarsvæðisins geta stát-
að af innanhússaðstöðu.
En skotfélagið hefur hvergi að-
stöðu utanhúss og segir Þórður að fé-
lagið hafi undanfarin ár reynt að fá
landi úthlutað hjá Borgarbyggð, líkt
og mörg önnur íþróttafélög. „Það
hefur verið horft til svæðis í landi
Hamars, rétt fyrir ofan Bjarnhóla.
Þar höfum við látið teikna fyrir okkur
þúsund metra riffilbraut og leirdúfu-
völl. En það er ekkert víst með stað-
setninguna enn,“ segir hann.
Nýverið samþykkti formanna-
fundur UMSB ályktun þess efnis að
þrýsta á Borgarbyggð að greiða götu
bæði skotfélagsins og eins mótor-
krossfélagsins. „Við vonumst til þess
að það fari að draga til tíðinda í þess-
um málum áður en langt um líður,“
segir Þórður. „Megnið af fólkinu í
félaginu er að horfa til útisvæðisins.
Það eru um 30-40% okkar félags-
manna sem stunda skotfimina innan-
húss af krafti en restin horfir til þess
að komast út.“
Öryggið fyrir öllu
Æfingar hjá Skotfélagi Vesturlands
eru tvisvar til þrisvar í viku og fara
fram undir eftirliti og leiðsögn skot-
stjóra, enda eitt meginhlutverka
félagsins að kenna ungum sem öldn-
um skyttum örugga og vandaða með-
ferð skotvopna. „Við leggjum mikla
áherslu á öryggi og erum með mjög
strangar öryggisreglur sem allir verða
að fara eftir. Á öllum æfingum er skot-
stjóri sem er ábyrgur fyrir æfingunni
og opnun hússins. Ef nýliðar koma er
það hans hlutverk að passa upp á þá,
kenna þeim og tryggja rétta og góða
meðferð skotvopnanna,“ segir Þórð-
ur „og það er gaman að segja frá því
að slys í þessari íþrótt þekkjast varla
og við viljum halda því þannig,“ bæt-
ir hann við.
Skotfimi á Unglinga-
landsmóti UMFÍ
Skotfélagið hefur haldið fjölda móta á
undanförnum þremur árum frá stofn-
un. „Á hverju tímabili eru tvö lands-
mót á vegum Skotsambands Íslands
og á þau mæta allar bestu skyttur
landsins. Við höfum haldið slík mót
í samstarfi við Skotfélag Akraness.
Fimm brautir eru í púðursalnum hjá
okkur og tíu í loftsalnum, þannig að
við getum haldið býsna stór mót,“
segir hann en bætir því við að aðeins
sé keppt í öðru hvoru í einu.
Í sumar verður Unglingalands-
mót UMFÍ haldið í Borgarnesi og
fyrir tilstuðlan Skotfélags Vestur-
lands verður skotfimi meðal keppn-
isgreina á mótinu, fyrsta sinni í sögu
unglingalandsmótanna. „Það verð-
ur keppt í skotfimi með loftskamm-
byssu og loftriffli og hugsanlega riff-
ilskotfimi, en það fer eftir þátttöku,“
segir Þórður. Aðspurður segir hann
að Skotfélag Vesturlands muni að
sjálfsögðu senda keppendur á ung-
lingalandsmótið og vonast eftir góðri
þátttöku. „Það er mjög öflugt ung-
lingastarf hjá mörgum skotfélögum
á landinu.“
Þó unglingalandsmót sé hér til um-
ræðu er skotfimi auðvitað íþrótt fyr-
ir fólk á öllum aldri. „Krakkar mega
byrja að æfa 15 ára með leyfi frá for-
eldrum. Þeir yngstu sem hafa ver-
ið að mæta á æfingar eru rétt skriðn-
ir yfir 15 ára aldurinn og sá elsti sem
mætir reglulega er kominn yfir átt-
rætt,“ segir hann.
kgk
Flestir í Skotfélagi Vesturlands horfa til útisvæðis
Efnt var til byssusýningar þegar inniaðstaða Skotfélags Vesturlands var opnuð form-
lega fyrir einu og hálfu ári síðan. Erlendur Breiðfjörð, Brynjólfur Guðmundsson og
Þórður Sigurðsson formaður SV virða fyrir sér gripina. Mynd úr safni.
Snæfell tók á móti ÍR í níundu um-
ferð Domino‘s deildar karla í körfu-
knattleik síðastliðinn fimmtudag.
ÍR-ingar byrjuðu betur og var sem
leikmenn Snæfells væru ekki til-
búnir til leiks. Þeir hittu illa og virt-
ust eiga erfitt með að einbeita sér
í vörninni. Á meðan skoruðu gest-
irnir duglega og höfðu ellefu stiga
forskot eftir fyrsta leikhluta, 18-29.
Snæfellingar minnkuðu muninn í
tvö stig með góðum spretti í upp-
hafi annars leikhluta. En leikmenn
ÍR svöruðu og leiddu með tíu stig-
um í leikhléi, 38-48. Heimamenn
í Snæfelli byrjuðu betur í upp-
hafi síðari hálfleiks. Þeir minnk-
uðu muninn snarlega í fimm stig en
þá tóku ÍR-ingar við sér. Gestirn-
ir léku vel bæði í vörn og sókn það
sem eftir lifði leiks og unnu að lok-
um öruggan sigur, 72-96.
Sherrod Wright var stigahæstur
Snæfellinga með 18 stig og fimm
stoðsendingar. Sigurður Þorvalds-
son skoraði16 stig og tók tíu frá-
köst og þá skoraði Stefán Karel
Torfason tíu stig og tók einnig tíu
fráköst.
Snæfell er sem stendur í sjöunda
sæti deildarinnar með átta stig eft-
ir níu leiki. Næst leikur liðið gegn
Stjörnunni í Garðabænum fimmtu-
daginn 10. desember. kgk
Snæfell lá gegn ÍR á heimavelli
Leikmenn Snæfells þurftu að sætta sig við 24 stiga tap gegn ÍR í Hólminum.
Ljósm. eb.
Barna- og ungmennamót Fjölnis
í sundi var haldið helgina 28.-29.
nóvember. Sundfélag Akraness
sendi hóp ungra og efnilegra
sundgarpa á mótið sem stóðu sig
með stakri prýði og fjölmarg-
ir bættu sinn persónulega árangur.
Sóldís Anna Helgadóttir vann til
bronsverðlauna í 50m baksundi og
Ngozi Jóhanna Eze hreppti brons-
ið í 50m skriðsundi. Öllum kepp-
endum tíu ára og yngri voru veitt
sérstök þátttökuverðlaun.
kgk/ Ljósm. SA.
Sundmenn SA
sneru heim
hlaðnir verð-
launum
Ngozi Jóhanna Eze og Sóldís Anna.
Allir keppendur tíu ára og yngri fengu þátttökuverðlaun.