Skessuhorn - 30.12.2015, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 5
LF D
Björgunarfélags Akraness
Kalmansvöllum 2
Opnunartími
Miðvikudaginn 30. des. kl. 10 – 22
Fimmtudaginn 31. des. kl. 10 – 16
Þriðjudaginn 5. jan. kl. 17 – 20
Miðvikudaginn 6. jan. kl. 13 – 20
flugeldar.is
bjorgunarfelag.is
Borgnesingurinn Eygló
Lind fékk rós vikunnar í
Vetrar-Kærleik Blóma-
setursins, Kaffi kyrrðar, í
vikunni fyrir jólin. Rós-
ina fékk hún fyrir hvað
hún er, eins og segir í
tilnefningunni; „Rosa-
lega dugleg. Hún glæð-
ir bæinn lit og lífi fyrir
börn og fullorðna. Hún
er jákvæð og skemmti-
leg, sannkallaður gleði-
gjafi. Svona kona gerir
hvert bæjarfélag betra
og Borgarbyggð er
heppið að eiga hana að.“
mm
Eygló Lind var rósahafi
vikuna fyrir jól
Einar Jóhann Konráðs-
son er rósahafi vikunn-
ar í Vetrar-Kærleiknum
sem Blómasetrið – Kaffi
kyrrð stendur fyrir. Rós-
ina fékk hann fyrir hvað
hann er, eins og segir í
tilnefningunni; „indæll
drengur. Hann er með
einstaka þjónustulund,
fallega framkomu og
leggur sig allan fram í
að aðstoða viðskiptavini
Húsasmiðjunnar í Borg-
arnesi. Hann er kurt-
eis og almennt til fyrir-
myndar.“
mm
Einar Jóhann er
rósahafi vikunnar
Skýr merki eru um að íslenska sum-
argotssíldin sé komin aftur inn fyr-
ir brúna á Kolgrafafirði, en síldar-
göngur í Kolgrafafjörð eru alræmd-
ar eftir að mikið af síld drapst þar
úr súrefnisskorti fyrir um tveimur
árum. „Skyndilega er gríðarlegt líf í
firðinum. Hér eru einir tíu háhyrn-
ingar og fuglalíf hefur glæðst veru-
lega. Súlan er komin, hér eru skarf-
ar og mávar auk þess sem við sjáum
fjóra til fimm erni daglega hér þar
sem þeir gera sig heimakomna á
túnunum hjá okkur. Það var meira
segja svo að við gáfum örnunum
afganga af jólahangikjötinu okk-
ar sem þeir þáðu með bestu lyst,“
segir Bjarni Sigurbjörnsson bóndi á
Eiði við Kolgrafafjörð í samtali við
Skessuhorn síðastliðinn mánudag.
Bjarni segir að þeim á Eiði hafi
verið farið gruna að eitthvað væri
á seyði rétt fyrir jól. „Það er svo
skrítið, maður finnur sérstaka lykt
sem virðist koma af sjónum þeg-
ar hvalirnir eru að veiða síldina. Þá
verður þessi breyting þar sem við
verðum vör við lyktina. Við fórum
við að kíkja út á fjörð og þá sáum
við háhyrningana. Þeir koma hér
inn í fjörðinn, éta sig metta og fara
svo út aftur. Líklega er það vegna
þess að þeim þykir sjórinn of kaldur
hér fyrir innan brú og vilja því vera
frekar fyrir utan þar sem er hlýrra
þar til þeir verða svangir. Þá synda
þeir hingað inn og fá sér að éta.
Þeir koma ekki hingað nema vegna
þess að hér er ríkulegt æti fyrir þá.
Þeir þurfa nú sinn skerf til að verða
mettir.“
Að sögn Bjarna er þó ómögu-
legt að segja til um það hve mik-
il síld er nú í firðinum. Það þurfi
ekki endilega að vera svo mikið en
enginn geti sagt neitt um það. „Þeir
hjá Hafrannsóknastofnun vita ekk-
ert um það, það voru öll mælitæki
tekin burt úr firðinum í fyrra þeg-
ar menn töldu að síldin væri horf-
in á brott. En þetta virðist vera stór-
síld. Mér skilst að hennar hafi verið
saknað fyrr í vetur og hún ekki fund-
ist. Hver veit nema hún sé komin
fram núna. Hér var skotinn skarf-
ur og krufinn. Hann var með stór-
síld í maganum, hún var svo stór að
sporðurinn stóð upp úr fuglinum,“
segir Bjarni. „Maður er nú búinn
að vera rólegur yfir þessari síld síð-
an hún hvarf á brott en nú þegar við
verðum vör við hana á ný þá vakn-
ar ónotatilfinning. Enginn veit hvað
verður ef það gerir nú gott veður
með stillum eins og voru þegar hún
drapst hér um árið.“ mþh
Síldin mætt á nýjan
leik í Kolgrafafjörð
Mikið gengur alla jafnan á þegar síldin gengur í Kolgrafafjörð. Síðast voru veiði-
skip bæði innan og utan brúar auk þess sem vísindamenn stunduðu mælingar
sínar. Ferðamenn nutu hvalaskoðunar og fuglalífs. Allir voru á eftir síldinni.
Ljósm. tfk.
Mynd af síldinni sem kom úr skarfinum
sem veiddist við Eiði í liðinni viku. Hún
var mjög stór og væn.
Ljósm. Bjarni Sigurbjörnsson.