Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2015, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 30.12.2015, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 201526 Hvað finnst þér skemmtilegast við gamlársdag? Spurning vikunnar (Spurt í Ólafsvík) Bríet Elvan Sæbjörnsdóttir Mér finnst gaman að skjóta upp flugeldum og horfa á áramóta- brennuna. Kári Steinn Kristinsson Það er æðislega gaman að skjóta upp flugeldum og horfa á brenn- una. Karlotta Önnudóttir Mér finnst gaman að skjóta upp flugeldum og horfa á brennuna. Samúel Jón Samúelsson Auðvitað að sprengja og fara á brennuna. Þröstur Albertsson Borða góðan mat með fjölskyld- unni, fara á brennuna og horfa á flugeldasýninguna hjá björgun- arsveitinni Lífsbjörgu. Sundkonan Inga Elín Cryer frá Akranesi keppti eins og kunn- ugt er á EM-25 í sundi dagana 1.-6. desember sl. í Netanya í Ísra- el. Þar hafnaði hún í 15. sæti í 200 metra flugsundi, stórbætti fjögurra ára gamalt Íslandsmet sitt í grein- inni og varð efst allra keppenda frá Norðurlöndum í greininni. Eins og fram hefur komið þá stefnir Inga Elín á að ná lágmörkum fyrir Ól 2016 í Ríó og dvelur hún nú í æf- ingabúðum milli hátíðanna. Það er stór liður í undirbúningi hennar fyrir Ól 2016. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja Ingu Elínu í kostnaðarsömu æfinga- og keppnishaldi geta haft samband við aðstandendur í síma 663-7720 (silkar@simnet.is) eða 847-0165. mm Dvelur nú í æfingabúðum Eldri borgarar í Borgarbyggð hafa stundað púttæfingar af krafti í haust í góðri aðstöðu í gamla slát- urhúsinu í Brákarey. Þar hafa þeir æft tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14-16 frá því í byrjun október. Allar æfingar enda með 36 holu hring. Til að auka kappið hjá pútturum var efnt til keppninnar „maður mánaðarins“. Hlutu þátttakendur stig eftir röð á hverri æfingu. Hefur það hleypt mörgum kapp í kinn. Guðmund- ur Bachmann og Þórbergur Egils- son hlutu titilinn í október, Ingi- mundur Ingimundarson í nóvem- ber og Þorbergur í desember. Efnt var til Haustmóts þar sem keppt var einu sinni í mánuði. Samanlagt skor gilti. Ásdís B. Geirdal varð efst í kvennaflokki með 194 högg og Anna Ólafsdóttir varð önnur með 198 högg. Efstur í karlaflokki varð Ingimundur Ingimundarson með 177 högg. Í öðru sæti varð Þor- bergur Egilsson með 188 högg og Guðmundur Bachmann þriðji með 189 högg. Áhugi er fyrir því að efna til Vesturlandsmóts í pútti fyrir 60 ára og eldri. Eru allir eldri borgar- ar á Vesturlandi velkomnir á æfing- arnar í Brákarey. ii Eldri borgarar æfa pútt af kappi tvisvar í viku Verðlaunahafar á haustpúttmóti eldri borgara í Borgarbyggð. Nemendur í 7. - 10. bekk í Grunn- skóla Grundarfjarðar unnu sameig- inlega að skemmtilegu þemaverk- efni síðustu daga fyrir jólafrí. Þeir sköpuðu stærðarinnar jólaþorp þar sem hugsað var fyrir hverju smáat- riði. Leir var notaður til að búa til persónur og dýr í þorpinu og pappi, málning og alls kyns smáhlutir voru notaðir til að byggja upp heimili og fyrirtæki. Í þorpinu mátti finna nán- ast alla þá þjónustu sem bæjarfélög vilja í sinni heimabyggð. Sköpuðu nemendur til að mynda sundlaug með heitum pottum, sérstaka sæl- gætisverslun, hesthús, dvalarheim- ili, skóla, bakarí, kirkju, bæjarráðs- hús, eyju með skautasvelli og fleiri einingar. Þá voru tendruð ljós um allt þorpið, götuljós og jólaljós í húsum. Verkefnið tókst í alla staði vel og voru nemendur ánægðir með vinnu sína og sköpun. Með þessu verkefni tókst að samþætta náms- þætti, sköpunargleði og samvinnu. Björgvin Sigurbjörnsson Reistu stærðarinnar jólaþorp Jólaþorpið í heild sinni. Þorpið var fagurlega skreytt. Hugsað fyrir öllu, hér má finna bensínstöð og verslun. Sundlaugin í jólaþorpinu. Síðastliðið haust fór Líkamsræktin í Grundarfirði af stað með átak fyrir hópa fólks sem vildi grenna sig. Það var Þórey Jónsdóttir sem stóð fyr- ir átakinu og hélt utan um árangur þátttakenda. Þetta byrjaði allt með því að fjórar ungar konur komu að máli við Þóreyju með það til hlið- sjónar að hún sæi um að mæla og skrásetja árangur megrunarátaks þeirra. Þetta vatt upp á sig og stækk- aði hópurinn upp í 20 konur sem tóku þátt. Fljótlega var ákveðið að verðlauna þátttakendur fyrir besta árangurinn og þegar yfir lauk höfðu þessar 20 konur misst 112 kg saman- lagt á átta vikum. Strax var ákveðið að halda áfram og fleiri vildu komast að og úr varð að fyrsti hópurinn hélt áfram sínu átaki og annar kvenna- hópur sem samanstóð af 27 konum fór einnig af stað í annað átta vikna námskeið. Einnig var hópur stofn- aður fyrir karlana þannig að saman- lagt voru þetta í kringum 60 manns sem tóku þátt í átakinu. Vegleg uppskeruhátíð var svo haldin fimmtudaginn 17. desemb- er sl. en alls misstu hóparnir 319 kg þann tíma sem átakið stóð yfir. Það jafngildir því að fjórir til fimm meðal Grundfirðingar hafi horfið í kílóum talið. Flestir í þessum hóp- um eru staðráðnir í að halda áfram á þessari braut eftir áramót og fækka kílóum Grundfirðinga. tfk Líkamsræktarátak Grundfirðinga skilar góðum árangri Þær náðu bestum árangri í seinni kvennahópnum. Frá vinstri: Sigurborg Knarran Ólafsdóttir, Helga Ingibjörg Reynisdóttir, Elísabet Kristín Atladóttir, Sigurlaug R. Sævarsdóttir, Dagný Rut Kjartansdóttir, Kristín Lilja Friðriksdóttir og svo Þórey Jónsdóttir. Þær náðu bestum árangri í fyrri kvennahópnum. Frá vinstri: Aldís Ásgeirsdóttir dóttir Þóreyjar, Þórey Jónsdóttir, Berglind Rósa Jósepsdóttir og Ólöf Guðrún Guð- mundsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.