Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2015, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 30.12.2015, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 17 Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og fullnaðarfrágang byggingar og plans fyrir tengivirki í Grundarfirði í samræmi við útboðs- gögn GRU-01 Verkið felur í sér að klára jarðvinnu og byggja hús úr steypu og stáli yfir stjórnrými, rofabúnað og spenni. Húsið er steypt að undanskildu þaki yfir rofa- og spennarými sem byggt er úr stáli. Húsið verður einangrað að hluta. Rýmin verða sambyggð á einni hæð. Stjórnkerfarými er rúmlega 100 m2, spenna og rofarými eru rúmlega 160 m2 og bílaplan er um 800 m2. Helstu verkliðir eru: Jafna undir sökkla, fylla inn í grunn og fullnaðarfrágangur bílaplans. Steypa sökkla og gólfplötur, veggi og plötu yfir stjórnkerfarými. Reisa þak yfir rofa- og spennasal úr stálvirki og klæða með samlokueiningum. Einangra stjórnbúnaðarhús að utan og klæða. Leggja lagnakerfi fyrir húsið. Fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss. Fullnaðarfrágangur á lóð og plönum. Verkinu skal að fullu lokið 14. október 2016. Útboðsgögn eru afhent rafrænt í útboðskerfi Landsnets. Nánari upplýsingar um hvernig nálgast skal útboðsgögn má finna á www.utbodsvefur.is og www.landsnet.is frá og með þriðjudeginum 22. desember 2015. Tilboð verða opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska kl. 14:00, 25. janúar 2016 hjá Landsneti, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík. Landsnet • Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík • S. 563-9300 • www.landsnet.is TENGIVIRKI GRUNDARFIRÐI BYGGINGARVIRKI ÚTBOÐ GRU-01 SK ES SU H O R N 2 01 5 Bílaréttingar - Bílasprautun Framrúðuskipti - Bílaleiga - Tjónaskoðun SK ES SU H O R N 2 01 5 Þjónustum öll tryggingafélög Endurnýjun umsókna um húsaleigubætur Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 5 Þeir sem fengið hafa húsaleigubætur á árinu 2015 þurfa að endurnýja umsóknir í síðasta lagi 18. janúar 2016. Íbúar eru hvattir til að sækja um í gegnum rafræna íbúagátt á vef Akraneskaupstaðar. Umsækjendum er einnig boðið að taka þátt í könnun um eldvarnir heimilisins. Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is og í síma 433 1000. Föstudaginn 18. desember braut- skráðust 15 nemendur frá Fjöl- brautaskóla Snæfellinga í Grundar- firði. Athöfnin hófst á því að Stór- sveit Snæfellsness flutti lagið Jingle Bell Mambo. Sveitin er skipuð nemendum Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga og er jafnan fengin til þess að koma fram við hátíðleg tæki- færi, enda stolt skólans. Hrafnhild- ur Hallvarðsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, braut- skráði nemendur og flutti ávarp. Í ávarpinu kom skólameistari inn á kennsluhætti skólans og einnig að áfram væri unnið að því innleiðingu nýrra námsleiða. Að lokum óskaði hún nemendum velfarnaðar í fram- tíðinni. Af félagsfræðabraut brautskráð- ust þau Anna Björg Jónsdóttir Stol- zenwald, Ástrós Ýr Guðmunds- dóttir, Benedikt Gunnar Jensson, Elín Ósk Jónasdóttir, Gestheið- ur Guðrún Sveinsdóttir, Guðrún Ösp Knarran Ólafsdóttir, Halldóra Kristín Lárusdóttir, Irma Gunn- þórsdóttir, Linda Kristín Smára- dóttir, Rebekka Rán Karlsdóttir og Weronika Janina Ondycz. Af nátt- úrufræðibraut brautskráðust Andri Viðar Kristmannsson, Arna Mar- grét Hölludóttir, Bjarki Dagur Ol- sen Óskarsson og Kjartan Már Kárason. Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðar- skólameistari afhenti nemendum viðurkenningar fyrir góðan náms- árangur. Sveitarfélögin sem standa að skólanum gáfu viðurkenning- arnar auk Arion banka, Landsbank- ans og Hugvísindadeild Háskóla Ís- lands. Hæstu einkunn á stúdentsprófi með 9,6 í meðaleinkunn hlaut Halldóra Kristín Lárusdóttir, en hún lauk stúdentsprófi á einung- is tveimur og hálfu ári. Hún fékk veglega bókagjöf frá sveitarfélög- unum og peningagjöf frá Lands- bankanum. Halldóra hlut einnig bókagjöf frá Arion banka sem við- urkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði, bókagjöf frá danska sendiráðinu fyrir góðan árang- ur í dönsku, bókagjöf frá sveitar- félögunum fyrir góðan árangur í ís- lensku og bókagjöf frá Hugvísinda- deild Háskóla Íslands fyrir góð- an árangur í tungumálum. Anna Björk Jónsdóttir Stolzenwald hlaut bókagjöf frá sveitarfélögunum sem viðurkenningu fyrir góðan árang- ur í félagsgreinum og ensku. Hún hlaut einnig bókagjöf frá danska sendiráðinu fyrir góðan árangur í dönsku og bókagjöf frá kvenfé- laginu Gleym mér ei í Grundarfirði fyrir góðan árangur í list- og verk- greinum. Andri Viðar Kristmanns- son hlaut viðurkenningu frá Fjöl- brautaskóla Snæfellinga fyrir góð- an árangur í raungreinum og bóka- gjöf frá sveitarfélögunum fyrir góð- an árangur í sögu. Weronika Janina Ondycz hlaut verðlaun frá þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku. Linda Kristín Smáradóttir hlaut verðlaun frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga fyrir góðan árangur í íþróttum og Rebekka Rán Karls- dóttir hlaut verðlaun frá Kvenfé- laginu Gleym mér ei í Grundarfirði fyrir góðan árangur í list- og verk- greinum. Kvenfélagið Gleym mér ei gaf nýstúdentum leiðbeining- ar út í lífið. En þar má meðal ann- ars finna þvottaleiðbeiningar ásamt góðum ráðum við geymslu mat- væla. Erna Guðmundsdóttir flutti kveðjuræðu fyrir hönd kennara og starfsfólks og Fanney Sumarliða- dóttir flutti ræðu fyrir hönd fimm ára stúdenta. Stórsveitin flutti lagið Þorláksmessukvöld þar sem Lena Hulda Felizitas Fleckinger söng. Nýstúdentarnir Andri Viðar Kristmannsson og Ástrós Ýr Guð- mundsdóttir héldu sameiginlega kveðjuræðu fyrir hönd nýstúdenta þar sem þau kvöddu skólann og starfsfólk hans. Þau töluðu um þessi mikilvægu ár sem þau höfðu átt í skólanum og hve hratt þau liðu. Að lokum bauð skólameistari gestum í kaffi og kökur. -fréttatilkynning/ Ljósm. tfk. Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Eins og sagt er frá í frétt hér að ofan var brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga laugardaginn 18. des- ember. Af þeim 15 nemendum sem settu upp stúdentshúfuna var Hall- dóra Kristín Lárusdóttir úr Stykk- ishólmi fremst meðal jafningja. Út- skrifaðist hún af félagsfræðabraut með 9,6 í meðaleinkunn. Ágætisein- kunn Halldóru er ekki síður merki- leg fyrir þær sakir að stúdentspróf- inu lauk hún á aðeins fimm önnum, eða tveimur og hálfu ári. „Ég var búin að taka einn stærðfræðiáfanga og einn enskuáfanga í tíunda bekk og svo tók ég einn áfanga í sum- arskóla síðasta sumar. Ég fékk líka tónlistarnámið metið til eininga, tónfræðina og svona,“ segir Hall- dóra í samtali við Skessuhorn, en hún hefur lokið miðstigi á tromp- et við Tónlistarskóla Stykkishólms. Hún tók sér hins vegar smá pásu frá trompetnáminu nýverið og hóf að læra á píanó. Að sögn Halldóru er FSN verk- efnamiðaður skóli og því mismik- ið að gera frá viku til viku. Komist mikið í verk á skólatíma eina vikuna er minna sem þarf að gera heima. Hún viðurkennir engu að síður að það hafi verið töluverð vinna að út- skrifast á svo skömmum tíma með jafn góða einkunn og raun ber vitni. „Ég kem heim með rútunni milli hálf fimm og fimm þannig að dagurinn er eiginlega búinn. Ég læri yfirleitt í svona þrjá tíma heima en fer í píanótíma seinni part dags einu sinni í viku. Þannig að já, þetta var frekar mikil vinna,“ segir Hall- dóra. „Það þarf líka alltaf allt að vera fullkomið, ég er dálítið þann- ig,“ segir hún en bætir því við að þó hún hafi metnað fyrir því að leggja sig fram, þá hafi það alls ekki verið markmiðið að dúxa. Aðspurð hvað framtíðin ber í skauti sér kveðst Halldóra ekki vera farin að velta fyrir sér háskólanámi enn sem komið er. Hún er hins vegar á leið í Hússtjórnarskólann í Reykjavík. „Ég fer þangað í janúar að læra að prjóna, elda og svoleið- is,“ segir hún og hlær við. „Fleira er ekki ákveðið en mig langar að fara til útlanda og læra tungumál og fleira slíkt,“ segir Halldóra Kristín að lokum. kgk Dúx FSN á leið í Hússtjórnar- skólann í Reykjavík Halldóra Kristín Lárusdóttir, dúxaði við útskrift úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga, með 9,6 í meðaleinkunn. Ljósm. tfk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.