Skessuhorn - 30.12.2015, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 13
Flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar
Brákar, Borgarnesi og Björgunarsveitarinnar Heiðars, Varmalandi
Flugeldasýning, jólasveinar, Theodóra,
Olgeir og eiri leiða söng, heitt súkkulaði,
smákökur og gleði
Þakkir: JGR, Margrét Rósa Einarsdóttir, Jólasveinar,
Geirabakarí, söngvarar og Nettó
Við viljum biðja fólk að koma EKKI með eigin ugelda á svæðið
ÞRETTÁNDAGLEÐI 2016
verður haldin í Englendingavík í Borgarnesi
miðvikudaginn 6. janúar kl. 18:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
LJ
Ó
SM
YN
D
: K
R
IS
TÍ
N
J
Ó
N
SD
Ó
TT
IR
Hlaupahópurinn Flandri í Borgar-
nesi stendur fyrir fræðslufyrirlestri
þriðjudagkvöldið 5. janúar þar sem
Auður H Ingólfsdóttir mun segja
frá hvað varð til þess að hún ákvað,
fyrir fimm árum síðan, þá langt yfir
kjörþyngd og í versta formi lífs síns,
að snúa við blaðinu og gera hlaup
að lífsstíl. Ákvörðunin var tekin rétt
eftir hún hafði (með herkjum) lokið
einnar mílu hlaupi (1,6 km) rétt fyr-
ir fertugsafmælið. Þá hét hún því að
hún yrði í betra formi eftir fimm ár
og fylgdi því loforði eftir með því að
hlaupa fyrsta maraþonið sitt daginn
sem hún varð 45 ára.
Ferðalagið frá mílu til maraþons
var stundum erfitt en alltaf skemmti-
legt. Í fyrirlestrinum ætlar Auður að
segja frá því hvernig hún fór að því
að halda sig við efnið og vinna sig í
átt að stóra markmiðinu með því að
búta það niður í mörg smærri verk-
efni. Hún segir líka frá gleðinni sem
fylgir því að gera hreyfingu að lífs-
stíl, en hlaupin hafa ekki aðeins fært
henni betri heilsu heldur einnig meiri
betri líðan og meiri lífsfyllingu.
Fyrirlesturinn verður haldinn á
Sögulofti Landnámssetursins þriðju-
dagskvöldið 5. janúar 2016 klukkan
20:00. Aðgangur er ókeypis en hægt
verður að kaupa kaffi og meðlæti í
veitingasal Landnámssetursins.
Nýliðanámskeið Flandra
Hlaupahópurinn Flandri stend-
ur fyrir átta vikna nýliðanámskeiði
á tímabilinu 11. janúar – 5. mars
2016. Námskeiðið er hugsað fyrir
þá sem vilja koma sér af stað í hlaup-
um (í fyrsta sinn eða eftir hlé). Æf-
ingar verða þrisvar í viku, kl. 17:30
á mánudögum og fimmtudögum og
kl. 10:00 á laugardögum. Mæting er
í anddyri Íþróttamiðstöðvar Borgar-
ness. Allir eru velkomnir á námskeið-
ið, óháð getustigi. Fylgt verður sér-
stöku nýliðaprógrammi sem verð-
ur sniðið að þörfum og markmiðum
hvers og eins. Skráning í nýliðahóp-
inn fer fram á staðnum á fyrstu æf-
ingunni. Auður H Ingólfsdóttir og
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir munu
halda utan um nýliðahópinn en aðrir
Flandrafélagar verða einnig til halds
og traust.
Athugið að hlaupahópurinn
Flandri er grasrótarhópur. Í því felst
að þar er enginn formlegur þjálfari,
engin æfingagjöld og allir taka þátt á
eigin ábyrgð.
-fréttatilkynning
Frá mílu til maraþons
Framherjinn Garðar Bergmann
Gunnlaugsson hefur framlengt
samning sinn við ÍA og mun leika
með liðinu út keppnistímabil-
ið 2017, en fyrri samningur hefði
runnið út á komandi hausti. Garð-
ar er einn af reyndari leikmönnum
ÍA og hefur undanfarin ár verið
helsti markaskorari liðsins. Á síð-
asta tímabili hreppti hann til að
mynda bronsskóinn þegar hann
skoraði níu mörk í 17 leikjum í
Pepsídeildinni. „Garðar er mik-
ilvægur hlekkur í liðinu og ég er
gríðarlega ánægður með að búið
sé að tryggja krafta hans næstu tvö
árin,“ segir Gunnlaugur Jónsson
þjálfari.
kgk
Garðar Gunnlaugsson framlengir við ÍA
Garðar Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn við ÍA. Með honum á
myndinni eru Magnús Guðmundsson, formaður KFÍA (t.v.) og Jón Þór Hauksson
(t.h.) aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Ljósm. KFÍA.
Undanfarið hafa verið haldnar vinnu-
smiðjur og kynningarviðburðir um
land allt í tengslum við Startup To-
urism, viðskiptahraðal fyrir fólk með
viðskiptahugmyndir á sviði ferða-
þjónustu. Startup Tourism er sam-
starfsverkefni Isavia, Íslandsbanka,
Bláa lónsins og Vodafone, sem fjár-
magna verkefnið, ásamt Klak Inn-
ovit, sem sér um framkvæmd verk-
efnisins, og Íslenska ferðaklasans.
„Markmið verkefnisins er að hjálpa
nýjum fyrirtækjum og fólki með við-
skiptahugmynd að komast á næsta
stig,“ segir Oddur Sturluson verk-
efnastjóri Startup Tourism í samtali
við Skessuhorn. „Þetta er tíu vikna
prógramm sem hefst 1. febrúar þar
sem allt að tíu fyrirtæki fá vinnuað-
stöðu og einkafundi með svokölluð-
um mentorum. Það eru hinir ýmsu
sérfræðingar, fjárfestar og reyndir
frumkvöðlar sem aðstoða þátttakend-
ur við að móta hugmyndina og slípa
hana með endurgjöf og samvinnu.
Þó þátttakendur stýri tíma sínum að
mestu leyti sjálfir þá fá þeir tækifæri
til að fræðast og koma verkefninu á
framfæri, meðal lykilaðila í ferða-
þjónustunni, mögulegum fjárfestum
og fjölmiðlum,“ bætir hann við.
Að sögn Odds munu þátttakend-
ur einnig fá ýmis konar þjálfun og
tækifæri til að fræðast um hluti sem
snúa að því að koma fyrirtæki á lagg-
irnar eða efla sölu og markaðssetn-
ingu. „Markmiðið með verkefninu
er að stytta tímann í þessum svokall-
aða „dauða dal,“ sem er tíminn milli
þess sem fólk fær hugmynd og þar til
það getur byrjað að selja hana og afla
tekna,“ segir Oddur.
Þátttaka í verkefninu er endur-
gjaldslaus, en bakhjarlar verkefnisins
koma ekki til með að fjárfesta í fyrir-
tækjunum, eins og þekkist í sambæri-
legum verkefnum hérlendis. „Það er
ekki boðið upp á stofnfé í þessum
viðskiptahraðli. Hins vegar eru sjóð-
ir, jafnvel sjóðir í eigu bakhjarla fyr-
irtækjanna sem standa að þessu verk-
efni, sem þátttakendur geta sótt um
fjármagn úr. Okkar helsta markmið
er að koma fyrirtækjum vel af stað
þannig að þau séu í betri stöðu en
ella til að sækja um fjármagn og einn-
ig í betri stöðu gagnvart mögulegum
fjárfestum,“ segir Oddur. „Þegar fyr-
irtækin eru komin lengra á veg þá vita
þau betur hvað þau hafa á milli hand-
anna. Við teljum því að það sé farsæl-
asta lausnin í ferðaþjónustugeiranum,
þar sem venjulega líður ekki svo lang-
ur tími frá því hugmynd kviknar og
hægt er að hefja sölu. Okkar hlutverk,
þó ekkert komi í staðinn fyrir frum-
kvæði og sköpunargleði frumkvöðla,
er að hjálpa þeim í gegnum þetta ferli
og auka þannig líkurnar á að fyrir-
tækin lifi af.“
Eins og áður segir hefst verkefnið
1. febrúar næstkomandi og umsókn-
arfrestur til þátttöku í því er til 6.
janúar. Sótt er um á heimasíðu verk-
efnisins, www.startuptourism.is.
kgk
Startup Tourism er nýr
viðskiptahraðall í ferðaþjónustu
Oddur Sturluson, verkefnastjóri
Startup Tourism.
ÁRAMÓTABRENNA
Björgunarsveitin í Snæfellsbæ sér um
Brennan verður hlaðin 27. – 31. desember
Eru allir hvattir til að mæta og hjálpa til við
hleðslu
Nánari upplýsingar veitir Hjálmar Kristjánsson
brennustjóri í síma 892-5301
Á Breiðinni að kvöldi 31. des kl. 20:30
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum
öllum farsældar á árinu 2016 með þökk
fyrir árið sem er að líða
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5