Skessuhorn - 30.12.2015, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 15
Eiríkssonar hjá Lumex. Í sameigin-
legum rýmum og inni á herbergj-
um er hugsað út í smáatriðin. Geita-
skinn eru notuð á stóla og sófa, enda
mörg örnefni tengd geitum á svæð-
inu. Inni á herbergjum eru hreinlæt-
isvörur unnar úr íslensku birki, enda
stendur hótelið í birkiskógi. Í húsinu
er einnig að finna ýmsar aðrar skír-
skotanir í náttúruna og sagnahefð
uppsveita Borgarfjarðar og Vestur-
lands. Fallegur steinveggur geng-
ur í gegnum hótelið sjálft. Hann
er hugsaður sem berggangur í fjalli
og stefnir beint inn í Drangsteina-
brún. Hótelið er skreytt verkum eft-
ir listamanninn Pál Guðmundsson,
frænda Bergþórs, sem einnig býr í
Húsafelli. „Það var strax ákveðið að
Páll myndi skreyta hótelið og list-
in er þannig tengd inn í sögu stað-
arins. Hann gerði hraunmyndir af
sex andlitum sem tengjast sögunni,
þetta eru persónur úr Hellismanna-
sögu og af Fjalla-Eyvindi og Höllu
konu hans. Hann gerði svo afþrykk
af þessum myndum sem prýða öll
herbergi hótelsins. Með listaverkum
Páls kemur sálin í húsið,“ útskýrir
Hrefna. Þá eru einnig verk eftir Pál
við inngang hótelsins og í hleðslu
Unnsteins við neðri hæðina.
Stækka í vetur
Alls eru 36 herbergi á Hótel Húsa-
felli, þar af sex lúxusherbergi. Að
sögn Bergþórs stendur strax til að
byggja við. „Við ætlum að bæta tólf
herbergjum við í vetur. Þetta eru ör-
litlir vaxtaverkir, við náðum ekki að
vera á undan þessum öra vexti og
ætlum þess vegna að stækka við okk-
ur.“ Þá stendur einnig til að byggja
við þjónustumiðstöðina sem stendur
fyrir neðan hótelið. Hjónin hafa leigt
hana síðustu þrjú ár og nú stendur til
að kaupa hana á nýjan leik. „Þar ætl-
um við að reisa afþreyingarmiðstöð
sem verður góð undirstaða við gist-
inguna. Við byrjum á byggingunni
næsta haust en hefjum starfsemina
strax í vor,“ segir Bergþór. Hann seg-
ir mikla möguleika á afþreyingu vera
í nágrenninu. „Hér er sundið, golfið,
hægt að fara í göngu- og hellaferðir
og veiði. Við ætlum að setja upp mið-
stöð til að halda utan um allt þetta
og til að bregðast við fjölgun ferða-
manna. Þetta hjálpar svæðinu mikið
enda er uppbygging víðar í Borgar-
firði. Fólk á þá erindi hingað upp eft-
ir, þetta hjálpast allt að.“
Gott samstarf
við ísgöngin
Mikil umferð af fólki er í Húsafell
allt árið um kring og er hluti þess
sem kemur við á leið í ísgöngin í
Langjökli. Hjónin segjast eiga gott
samstarf við þá sem reka ísgöngin.
„Við njótum góðs af ísgöngunum
og þau af okkur. Það er mjög góð
samvinna á milli okkar og við fór-
um til dæmis í sameiginlega mark-
aðssetningu. Við höfum einnig far-
ið saman á sýningar, til dæmis hjá
West Norden,“ segir Hrefna. Í
Húsafell koma um 70 - 100 manns
í hádegismat daglega í vetur og er
þá um að ræða hópa á leið í ísgöng-
in. „Það á að bæta við fleiri ferð-
um og svo mun Reykjavík Excur-
sions verða með dagsferðir hingað
eftir áramótin,“ segja þau hvergi
bangin. Bergþór og Hrefna segja
ánægjulegt að sjá hversu ánægð-
ir gestir í Húsafelli eru. „Fólk er
ánægðara en við gerðum okk-
ur grein fyrir. Það er gaman að fá
að heyra að fólk sé að upplifa það
sama og við hérna.“
Áframhaldandi
uppbygging
Framundan í Húsafelli er því áfram-
haldandi uppbygging. Auk stækk-
unar á hótelinu, byggingar á af-
þreyingarmiðstöð og nýrri virkjun
segja þau eina hugmynd til viðbót-
ar vera í gerjun. „Planið er að þróa
nýtt svæði sem við eigum skipulagt
hér. Það er hugsað út frá „resort“
hugmyndinni og þar ætlum við að
byggja hús sem verða svo þjónust-
uð frá hótelinu. Þegar það verð-
ur komið á koppinn þá erum við
komin með mjög breiða gistingu
enda geta fjölskyldur og hópar ver-
ið í þessum húsum,“ segir Bergþór.
„Markmiðið er að geta tekið á móti
breiðum hópi fólks,“ bætir Hrefna
við. Þau segja Pál listamann einn-
ig vera að stækka við sig, hinum
megin við veginn, þar sem hann
ætlar að tvöfalda sýningaraðstöðu
sína. „Hér er listin í kringum Palla
og mikill stuðningur að hafa lista-
mann á heimsmælikvarða hér í ná-
grenninu,“ segja þau þakklát. Þrátt
fyrir að vera búin að reisa hótel-
ið segjast þau vera rétt að byrja.
„Maður verður að vera í gírnum,
annars skeður ekki neitt. Við vilj-
um tryggja að hér verði líf og fjör,“
segir Bergþór. „Við erum að reyna
að vera ekki á eftir fjöldanum og
gera hlutina á sómasamlegan hátt.
Lánið leikur við okkur og það er
eins og einhver vaki yfir okkur.
Ætli það sé ekki tengdapabbi og
Snorri. Það var hans draumur að
reisa hótel hér og við kláruðum
það,“ segir Hrefna að endingu.
grþ
Þrettándagleði á
Akranesi 2016
Þrettándagleði, álfadans, flugeldasýning
og Íþróttamaður Akraness
Hin árlega þrettándabrenna verður haldin miðvikudaginn 6. janúar nk. við
Þyrlupallinn á Jaðarsbökkum. Blysför hefst við Þorpið að Þjóðbraut 13
kl. 18:00. Álfar, tröll og jólasveinar munu leiða gönguna að brennunni þar
sem jólin verða kvödd. Að venju er það Björgunarfélag Akraness sem sér
um brennuna og flugeldasýningu sem hefst um kl. 18:30.
Að því loknu býður Íþróttabandalag Akraness gestum í Íþróttamiðstöðina
að Jaðarsbökkum þar sem tilkynnt verður um val á Íþróttamanni Akraness
2015 og boðið uppá veitingar. S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hótel Húsafell er hið glæsilegasta og styður vel við aðra atvinnuuppbyggingu í
landshlutanum.
Unnsteinn Elíasson og Páll Guðmundsson við vegginn sem Unnsteinn hlóð við neðri
hæð hótelsins. Þarna má einnig sjá líparítmyndir Páls af Gretti sterka og Eiríki.
Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga
(UDN) auglýsir starf íþrótta- og tómstundafulltrúa
Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi.
Starfshlutfall er 80% auk fastrar yfirvinnu.
Helstu verkefni:
• Framkvæmdastjórn UDN
• Að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í
skóla, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu
• Umsjón með vinnuskóla og félagsmiðstöð og aðstoð við ungmennaráð Dalabyggðar
• Skipulag og verkefnastjórn í ýmsum málum sem til falla, t.d. forvarnamál, átaksverkefni
og hátíðir
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking á íþrótta- og æskulýðsmálum
• Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum
• Framsýni og metnaður í starfi
• Almenn tölvukunnátta
Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð og hann þarf að hafa
hreint sakavottorð.
Starfsstöð verður á skrifstofu Dalabyggðar.
Umsókn skal senda til: Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN)
Heiðrún Sandra Grettisdóttir
Hofakri
371 Búðardal
Fyrirspurnir má senda á netfangið udn@udn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2016 og æskilegt er að umsækjandi geti
hafið störf sem fyrst.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5