Skessuhorn - 30.12.2015, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 27
Föstudaginn 18. desember gerðu
leikmenn Skallagríms sér ferð suð-
ur í Hveragerði og mættu Hamri í
1. deild karla í körfuknattleik. Fyrri
hálfleikur var jafn og spennandi allt
frá fyrstu mínútu. Liðin skiptust á
að leiða framan af og eftir því sem
nær dró leikhléinu urðu sveiflurnar
minni. Hart mætti hörðu og staðan í
hálfleik var jöfn, 42 stig á hvort lið.
Leikmenn Skallagríms mættu
mjög ákveðnir til síðari hálfleiks og
náðu að slíta sig frá heimamönnum.
Hamarsmenn voru þó ekki af baki
dottnir og minnkuðu muninn í loka-
leikhlutanum. Forystunni náðu þeir
hins vegar ekki aftur og Skallagrímur
vann að lokum fjögurra stiga sigur í
spennandi leik í Hveragerði, 79-83.
Sigtryggur Arnar Björnsson var
aðeins hársbreidd frá þrennu í leikn-
um. Hann skoraði 28 stig, tók tíu frá-
köst og gaf níu stoðsendingar. J.R.
Cadot reif niður 22 fráköst til við-
bótar við 20 stig sín. Þá skoraði Dav-
íð Ásgeirsson 20 stig.
Skallagrímur er í fjórða sæti deild-
arinnar með tólf stig eftir átta leiki,
jafn mörg og Þór frá Akureyri í sæt-
inu fyrir ofan. Næsti leikur Skalla-
gríms fer fram í Borgarnesi föstudag-
inn 8. janúar þegar liðið tekur á móti
Fjölni. kgk
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Markvörðurinn Ásta Vigdís Guðlaugsdótt-
ir hefur samið við Íþróttabandalag Akraness
til eins árs en hún kemur að láni frá Breiða-
bliki. Ásta er 19 ára og á fjölmarga U17 og
U19 landsleiki að baki en hún spilaði með
Augnabliki í 1. deild síðastliðið sumar og þar
áður með ÍA í Pepsideildinni sumarið 2014.
„Ásta er mjög efnilegur og frambærilegur
markvörður sem við bindum miklar vonir við
í baráttu liðsins í Pepsideildinni 2016,“ segir
Haraldur Ingólfsson framkvæmdastjóri KFÍA.
Meðfylgjandi mynd var tekin af Ástu Vigdísi
og Haraldi eftir að samkomulag hafði verið
undirritað. mm
KFÍA styrkir
kvennaliðið
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells í körf-
unni hefur tekið við af Jóni Guðmundssyni
sem þjálfari U18 ára landsliðs stúlkna. Mun
hann fylgja liðinu á NM og EM á næsta ári.
Bylgja Sverrisdóttir verður áfram aðstoðar-
þjálfari liðsins. Liðið kom saman og æfði fyrir
jólin líkt og öll hin yngri landsliðin. Jón Guð-
mundsson, þjálfari U18 ára landsliðs stúlkna,
óskaði óskað eftir að losna undan samningi
sem þjálfari vegna breytinga og anna í vinnu
og varð Körfuknattleikssambandið við þeirri
beiðni. Jón hefur verið með liðið í tvö ár, en
hann gerði liðið að Norðurlandameisturum
U16 stúlkna fyrir tveimur árum.
mm
Ingi Þór tekur við
þjálfun U18
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi
Reykjavíkur og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golf-
lúbbnum Leyni á Akranesi tóku fyrir jólin þátt
í öflugu golfmóti í Marókkó þar sem spilað
var um keppnisrétt í Evrópumótaröð kvenna
á næsta ári. Ólafía Þórunn náði á mótinu að
verða önnur konan í íslenskri golfsögu til að
tryggja sér fullan keppnisrétt á Evrópumóta-
röð kvenna. Hún varð á meðal 30 efstu spil-
ara og fær fullan keppnisrétt á mótaröðinni
á næstu leiktíð. Valdís Þóra Jónsdóttir komst
hins vegar ekki í gegnum niðurskurðinn, náði
sér ekki á strik á mótinu, þrátt fyrir góða byrj-
un. mm
Skin og skúrir hjá
afrekskonum í golfi
Valdís Þóra og Ólafía Þórunn tóku
fyrir jól þátt í úrtökumóti í Marókkó.
Fimmtudaginn 17. desember tók
Snæfell á móti Þór frá Þorlákshöfn
í Domino‘s deild karla í körfuknatt-
leik. Snæfell byrjaði illa og gest-
irnir frá Þorlákshöfn náðu strax
í upphafi góðu forskoti í leikn-
um. Heimamenn tóku aðeins við
sér í öðrum leikhluta og náðu að
saxa á forskotið en leikmenn Þórs
svöruðu um leið og leiddu með 17
stigum í hálfleik, 32-49. Gestirn-
ir héldu sínu striki í síðari hálf-
leik og Snæfell náði ekki að gera
neina atlögu að forystunni. Mun-
urinn hélst nálægt tuttugu stigum
allt til leiksloka og leikmenn Þórs
unnu að lokum nokkuð þægilegan
18 stiga sigur, 82-100.
Sherrod Wright var atkvæða-
mestur heimamanna með 29 stig
og tíu fráköst. Næstur honum
kom Austin Bracey með 22 stig
og sjö stoðsendingar. Aðrir leik-
menn Snæfells náðu sér ekki á strik
í leiknum og má liðið illa við því að
margir eigi slæman dag.
Eftir tapið fyrir jól situr Snæ-
fell enn í tíunda sæti deildarinnar
með átta stig, fjórum stigum betur
en næsta lið fyrir neðan. Fimmtu-
daginn 7. janúar leikur Snæfell næst
þegar Haukar sækja Stykkishólms-
liðið heim.
kgk
Snæfellingar náðu sér
aldrei á strik gegn Þór
Sherrod Wright í mikilli baráttu Ragnar Nathanaelsson undir körfunni. Ljósm. sá.
Skallagrímur sigraði
Hamar í spennuleik
Sigtryggur Arnar Björnsson fór mikinn
í leiknum gegn Hamri og var hárs-
breidd frá þrennunni. Ljósm. jho.
ÍA heimsótti Ármann í 1. deild karla
í körfuknattleik föstudaginn 18.
desember. Leikurinn fór fremur ró-
lega af stað og lítið var skorað fram-
an af fyrsta leikhluta. Skotin fóru
þó að detta fyrir rest og stigaskor-
ið tók góðan kipp í rétta átt. Skaga-
menn höfðu heldur yfirhöndina en
Ármenningar minnkuðu forskot ÍA
í þrjú stig fyrir leikhlé, 41-44.
Skagamenn byrjuðu betur í síðari
hálfleik en heimamenn voru hvergi
af baki dottnir. Liðin voru jöfn að
stigum fyrir lokafjórðunginn og
útlit fyrir spennandi lokamínútur.
Áfram fylgdust liðin að þar til um
miðjan leikhlutann þegar Ármenn-
ingar tóku að síga fram úr. Skaga-
menn máttu að endingu sætta sig
við tap, 89-82.
Sean Tate var atkvæðamestur
Skagamanna í leiknum með 34 stig.
Næstur honum kom Fannar Freyr
Helgason sem skoraði 13 stig.
Ómar Örn Helgason skoraði tíu
og tók sjö fráköst og Áskell Jónsson
skoraði ellefu stig.
ÍA situr í sjötta sæti deildarinn-
ar með átta stig eftir átta leiki, jafn
mörg og Hamar í sætinu fyrir ofan.
Næst mætir liðið Þór frá Akureyri
föstudaginn 8. janúar næstkom-
andi. Leikið verður í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi.
kgk
Skagamenn máttu
sætta sig við tap
Fannar Freyr Helgason og lærisveinar
hans í ÍA máttu sætta sig við tap gegn
Ármanni fyrir jólafríið.
Ljósm. úr safni: jho.
Snæfell sigraði Grindavík í spenn-
andi leik í Domino’s deild kvenna
16. desember þegar liðin mættust í
Hólminum. Þetta var tíundi sigur
Snæfellskvenna í deildinni og kom-
ust þær með honum að hlið Hauka
sem eiga leik til góða. Snæfelling-
ar fóru strax í upphafi vel af stað í
leiknum en Grindvíkingar héngu
þó í þeim framan af. Leikurinn var
hörku spennandi á köflum en Snæ-
fell hafði þó betur í öllum leikhlut-
um. Undir lokin sigu Hólmarar þó
framúr og um miðbik þriðja fjórð-
ungs tóku þær yfirhöndina og lönd-
uðu öruggum 16 stiga sigri þegar
flautan gall, 78-62.
Stigahæstar í liði Snæfells voru
Haiden Denise Palmer sem skor-
aði 33 stig, tók sex fráköst og átti
jafnmargar stoðsendingar, Bryndís
Guðmundsdóttir setti 18 stig og
Sara Diljá Sigurðardóttir 9.
mm
Snæfellskonur
sýndu styrk sinn
Nýliðar Víkings Ólafsvíkur eru
óðum að undirbúa sig fyrir átök-
in í Pepsídeild karla í knattspyrnu
á komandi sumri. Miðjumaðurinn
Egill Jónsson samdi á dögunum
við Víking og mun leika með lið-
inu næstu tvö árin, eða út keppn-
istímabilið 2017. Egill er 24 ára
og var áður samningsbundinn KR.
Hann lék með Víkingi á láni þaðan
síðastliðið sumar þegar Ólafsvík-
urliðið tryggði sér sigur í 1. deild
karla og sæti í úrvalsdeild með
sannfærandi hætti.
Þá hefur miðjumaðurinn Björn
Pálsson framlengt samning sinn
við Víking um eitt ár. Hann gekk
til liðs við liðið árið 2011 og hef-
ur ekki misst af deildarleik á þeim
tíma og leikið alla 88 leiki liðsins í
Íslandsmótinu.
kgk
Egill og Björn semja við Víking
Egill Jónsson í baráttu við leikmann
Þórs Akureyrar í 1. deildinni síðastliðið
sumar. Mynd úr safni.