Skessuhorn - 04.05.2016, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 20164
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Afreksfólkið okkar
Það er ekki ofsögum sagt að Vesturland býr vel af afreksfólki í íþróttum.
Orð eins og titlar, sigrar og Íslandsmet er nánast vikulega hægt að lesa
á síðum Skessuhorns. Nú um helgina eignuðumst við Íslandsmeistara í
kraftlyftingum, svo ekki sé minnst á að einn sterkasti maður heims ólst
hér upp og er að gera garðinn frægan úti um allan heim. Fjölmarga aðra
mætti nefna sem alltof langt mál yrði að telja. Nú er staðan sú að lands-
hlutinn á hvorki fleiri né færri en sjö lið í efstu deildum boltaíþrótta; þrjú
í knattspyrnu og fjögur í körfubolta. Ég efast um að hlutfallslega hafi
nokkur fimmtán þúsund manna landshluti náð viðlíka árangri fyrr. Í vik-
unni sem leið tryggði karlalið Skallagríms sér þátttökurétt í efstu deild í
haust og sama höfðu konurnar í Borgarnesi gert nokkru fyrr í vor. Þetta
sama kvöld urðu stúlkurnar í Snæfelli Íslandsmeistarar þriðja árið í röð
og unnu því tvöfalt þetta árið. Geri aðrir betur. Karlalið Snæfells hélt
sér uppi í úrvalsdeild þótt þeir hafi rétt misst af úrslitakeppninni. Þá er
ekki síður á fótboltasviðinu margir af Vesturlandi sem koma munu við
sögu í efstu deildum í sumar. Konurnar í ÍA spila nú í deild þeirra bestu
og hefja keppni í lok næstu viku. Karlalið ÍA spilar nú annað árið í röð
í efstu deild og á vafalaust eftir að gera góða hluti í sumar þótt ákveðin
sjóferð á sunnudaginn hafi farið illa. Loks er karlalið Víkings Ólafsvíkur
í efstu deild og sannaði á sunnudaginn að það var ekki tilviljun að þang-
að er liðið komið.
Löngum hefur verið tekið til orða að það þurfi heilt þorp til að ala
upp barn. Í yfirfærðri merkingu má segja að lítil samfélög úti á landi nái
aldrei þeim árangri að eiga öflug lið í hópíþróttum nema staðið sé þétt á
bakvið íþróttafólkið, einstaklingana. Barna- og unglingastarfið er þarna
mikilvægast og afar brýnt að fólk missi aldrei sjónar á því að hlúa vel að
þeim sem taka þátt. Hvetja til dáða, styðja við bakið á unga fólkinu og
forðast mismunun. Einelti getur vissulega þrifist á þessu sviði sem öðr-
um. Verði þess vart þarf að uppræta slíkt strax. Allir eru nefnilega jafnir
og eiga alltaf að vera. Ég vil bara minna á þetta, því ekki dreg ég fjöður
yfir að ég hafi heyrt af misbresti í þessu sem óþægilegt er að vita af. Lið
er aldrei öflugra en veikasti hlekkurinn og án frumkvæðis einstaklingsins
er ekkert lið. Hlúum því ávallt að unga fólkinu og hvetjum alla til dáða,
ekki bara suma.
En á þessum tímamótum vil ég hrósa fólkinu sem stendur vaktina í
baklandi íþróttafélaga. Margir leggja á sig þrotlausa vinnu og gera slíkt
stuðningsstarf að hugsjón. Verja öllum frítíma sínum til sjálfboðavinnu
til að íþróttfélagið eflist og dafni. Í síðustu viku varð ég vitni af því þeg-
ar áhugafólk um tvö íþróttafélög uppskar ríkulega eftir erfiði og mikla
vinnu. Ég sá reyndar á myndum í sjónvarpi og ljósmyndum úr Hólm-
inum fölskvalausa gleði heimamanna og varð svo persónulega vitni að
gleðinni sem ríkti í Borganesi þegar tekið var á móti körfuboltaliðinu úr
sigurför að sunnan. Fólk réði sér vart af gleði, klappaði á bakið, kyssti fé-
lagana og söng svo undir tók í Englendingavík. Strax var farið að skipu-
leggja hvernig gera þurfti þetta eða hitt til að undirbúa næstu leiktíð og
hvað þyrfti að bæta, breyta og styrkja. Strax og áfanga var náð var horft
til næsta verkefnis. Þessir sigrar efla samfélagslegan anda í hverju byggð-
arlagi og gera það skemmtilegra og betra að búa þar. Skessuhorn í dag er
að hluta helgað þessari jákvæðu stemningu og auk mynda rætt við nokkra
sem hlut eiga að máli.
Ég vil óska Vesturlandi öllu til hamingju með hreint út sagt ótrúleg-
an árangur á sviði íþrótta. Maður trúir því varla að við séum einungis
fimmtán þúsund. Erum við ekki bara aðeins betri en meðaltalið? Jú, svei
mér þá, ég held það bara.
Magnús Magnússon
Leiðari
Opinn kynningarfundur um skipulagslýsingu Sementsreits
Skipulags- og umhverfisráð kynnir skipulagslýsingu Sementsreits á
opnum fundi með íbúum og öðrum hagsmunaðilum á Akranesi.
Fundurinn fer fram að Mánabraut 20 þann 11. maí kl. 18:00.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Heitt á könnunni og
allir velkomnir.
Vélsmiðja Grundarfjarðar ehf. tók til
starfa síðastliðinn mánudag. Smiðj-
an er í húsnæði þar sem Vélsmiðjan
Berg var áður til húsa. Þórður Magn-
ússon er eigandi félagsins en Remigi-
jus Bilevicius mun sjá um daglegan
rekstur smiðjunnar. „Við erum að
ráða til okkar tvo faglærða skipasmiði
frá Póllandi,“ segir Þórður en annar
þeirra er kominn til landsins og hefur
nú þegar tekið til starfa. „Við erum
tilbúnir í verkefni nú þegar og mun-
um bæði sinna viðhaldi sem og vél-
smíði í framtíðinni, bætir hann við.
Vélsmiðja Grundarfjarðar mun einn-
ig starfrækja bílaverkstæði og smur-
þjónustu. „Við verðum með umboð
fyrir Shell vörur hjá okkur og þær eru
á leið til landsins. Það verður komið
í gagnið öðru hvoru megin við næstu
helgi,“ segir Þórður og kveðst bjart-
sýnn á framhaldið. tfk
Hefja vélsmiðjurekstur í nýju fyrirtæki
Remigijus Bilevicius til vinstri en hann mun sjá um daglegan rekstur, Andri skipa-
smiður og Þórður Magnússon.
Umhverfis- og auðlindaráð-
herra hefur undirritað reglugerð
um breytingu á byggingarreglu-
gerð sem hefur það að markmiði
að lækka byggingarkostnað vegna
íbúðarhúsnæðis. Breytingarnar lúta
einna helst að aðkomu, umferðar-
leiðum og innri rýmum mannvirkja
sem og stjórn mannvirkjamála hvað
varðar minniháttar framkvæmdir
sem undanþegnar eru byggingar-
leyfi. Með reglugerðinni eru kröfur
um lágmarksstærðir rýma í íbúðum
felldar brott en í stað þess sett inn
markmið, sem veitir ákveðið frelsi
við útfærslu hönnunar. Breyting-
arnar miða fyrst og fremst að því að
auka sveigjanleika við gerð íbúðar-
húsnæðis. Þannig getur lágmarks-
stærð íbúðar, sem er eitt herbergi,
minnkað verulega. Ef gert er ráð
fyrir að geymsla og þvottaaðstaða
sé í sameign, og ekki gert ráð fyrir
anddyri, getur slík íbúð verið um 20
m3, fyrir utan sameign. Lágmarks-
stærð íbúðar, sem er með einu litlu
svefnherbergi, getur minnkað sam-
svarandi.
Breytingarnar lúta einnig að því
að minniháttar framkvæmdum sem
undanþegnar eru byggingarleyfi
fjölgar og verða þær í stað þess til-
kynningarskyldar. Þá eru gerðar
ákveðnar breytingar varðandi bíla-
stæði fyrir hreyfihamlaða við íbúð-
arhúsnæði, rýmisstærðir í íbúð-
arhúsnæði, sorpgeymslur og loft-
ræsingu íbúða. Gert er ráð fyrir
að reglugerðin taki gildi við birt-
ingu að undanskildum breytingum
er varða minniháttar framkvæmd-
ir sem eru tilkynningarskyldar, en
þær taka gildi 15. júní nk.
mm
Sveigjanleiki aukinn í byggingarreglugerð
Sunnudaginn 8. maí kemur út ann-
að hefti ársritsins Nýs Breiðfirð-
ings. Tímaritið Breiðfirðingur kom
út óslitið frá árunum 1942 til 2009.
Eftir það lagðist útgáfa þess í stutt-
an dvala þar til Breiðfirðingafélag-
ið hafði frumkvæði að því að hefja
útgáfu á nýjan leik í fyrra. Svavar
Gestsson var þá fenginn til að rit-
stýra Nýjum Breiðfirðingi og nú
kemur út annað heftið í ritstjórn
hans. Samverkamaður Svavars er
Haukur Már Haraldsson.
Nýr Breiðfirðingur telur í ár
218 síður. Vesturbyggð er kjarna-
byggðarlag ritsins í ár og hefur
Kristín Einarsdóttir á Seftjörn á
Barðaströnd safnað saman efni um
byggðarlagið. Meðal efnis er einn-
ig fjöldi eyja og hólma á Breiða-
firði, sem hafa löngum verið sagð-
ar óteljandi. Auk þess er í ritinu að
finna umfjöllun Kjartans Ólafsson-
ar um Kristján Guðjónsson, Kitta í
Seli, bónda í Svínaseli í Múlasveit
sem sagður er kveikjan að Bjarti
í Sumarhúsum í Sjálfstæðu fólki
Halldórs Laxness.
Áhugasömum er bent á að kynn-
ing á efni ritsins verður meginefn-
ið í samkomu í Breiðfirðingabúð á
útgáfudegi ritsins, sunnudaginn 8.
maí klukkan 14:30.
kgk
Ársritið Nýr Breiðfirðingur
kemur út öðru sinni
Svavar Gestsson er ritstjóri Nýs
Breiðfirðings.