Skessuhorn


Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 201610 Síðastliðinn miðvikudag var opn- uð samsýning fjögurra nemenda og eins kennara úr Grundaskóla í húsnæði Tónlistarskóla Akraness. Þátttakendur eru Logi Breiðfjörð Franklínsson, Gróa Dagmar Gunn- arsdóttir, Ronja Rut Hjartardóttir, Sjöfn Sólveig Sigurbjörnsdóttir og Borghildur Jósúadóttir. Að sögn Borghildar hafa þátt- takendur verið í verkefnum styrkt- um af Uppbyggingarsjóði Vest- urlands og myndirnar eru frá síð- ustu sýningunni okkar sem nefnd- ist; „Þar sem maður hittir mann“ og var á Vökudögum í haust. Sýn- ingin verður opin út maí á opnun- artíma Tónlistarskólans. Meðfylgjandi eru nokkrir sýn- enda við verk sín. -fréttatilkynning Boðið upp á samtal í Tónlistarskólanum á Akranesi SK ES SU H O R N 2 01 6 Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar: Leikskólinn Teigasel Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri. Vinnuskóli Akraness Sumarvinna 17 ára unglinga (f. 1999). Stjórnsýslu- og fjármálasvið Sumarstarf í bókhalds- og launadeild. Nánari upplýsingar um ofangreind störf og önnur laus störf er að finna á www.akranes.is Laus störf hjá Akraneskaupstað Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 6 1234. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. maí kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfst• æðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn 7. maí kl. 10.30 Frjálsir • með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 9. maí kl. 20.00 Björt• framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 9. maí kl. 20.00 S• amfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 7. maí kl. 11.00 Bæjarstjórnarfundur Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is BORGARBRAUT 16, 350 GRUNDARFIRÐI SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501 Grundarfjarðarbær Starfsmaður áhaldahúss og Grundarfjarðarhafnar Laust er til umsóknar starf í áhaldahúsi Grundarfjarðarbæjar auk hafnarvörslu við Grundarfjarðarhöfn. Um fullt starf er að ræða. Starfið er fjölbreytt, en starfsmaður mun vinna með verkstjóra áhaldahúss, umsjónarmanni fasteigna og hafnarstjóra eftir þörfum hverju sinni. Helstu verkefni eru öll almenn störf áhaldahúss og umsjónarmanns fasteigna. Hafnarstarfið felst í vigtun sjávarfangs, móttöku og þjónustu skipa og öðru sem til fellur við rekstur hafnarinnar. Starfsmaður hefur aðstöðu í áhaldahúsi og starfar náið með forstöðumönnum stofnana. Hæfniskröfur: Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og útsjónarsemi Geta til að vinna sjálfstætt og takast á við fjölbreytt verkefni Menntun sem nýtist í starfi, iðnmenntun er kostur Rík þjónustulund, áhugi og metnaður Hæfni í mannlegum samskiptum Góð enskukunnátta er kostur Leitað er að jákvæðum, úrræðagóðum og laghentum einstaklingi sem hefur ánægju af mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness. Umsóknarfrestur er til 10. maí 2016. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is Nánari upplýsingar um starfið veita Valgeir Magnússon, verkstjóri áhaldahúss, í síma 691 4343, Gunnar Jóhann Elísson, umsjónarmaður fasteigna, í síma 863-6619 og Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri, í síma 438-6705. SK ES SU H O R N 2 01 5 Hestamannafélagið Glaður hélt sitt árlega íþróttamót laugardag- inn 30. apríl á reiðvellinum í Búð- ardal í fínu veðri. Þátttakan var ekki eins góð og síðustu ár en skráning- ar voru 53. Dómarar voru Ketill Björnsson, Björgvin Emilsson og Hrönn Kjartansdóttir. „Við Glaðs- menn viljum þakka öllu starfs- fólki fyrir vel unnin störf, góðum gestum sem sóttu okkur heim og heimamönnum fyrir að mæta bæði til keppni og til að horfa á mótið. Næsta mót félagsins er Hestaþing Glaðs sem verður haldið 18.-19. júní,“ segir í tilkynningu. Helstu úrslit: Tölt T3 A úrslit: Guðmundur Margeir Skúlason, Gangskör frá Hallkelsstaðahlíð, 6,22 Styrmir Sæmundsson, Þórdís frá Hvammsvík, 5,89 Hlynur Þór Hjaltason, Jaðar frá Hamraendum, 5,61. Ungmennaflokkur A úrslit: Svandís Lilja Stefánsdóttir, Arnar frá Skipanesi, 5,17 Hrönn Jónsdóttir, Seifur frá Mikla- garði, 4,44. Unglingaflokkur A úrslit: Laufey Fríða Þórarinsdóttir, Skutla frá Hvítadal, 6,00. Barnaflokkur Tölt T7: Arndís Ólafsdóttir, Álfadís frá Magnússkógum, 4,67 Aron Mímir Einrsson, Sleipnir frá Hróðnýjarstöðum, 4,5 Eysteinn Fannar Eyþórsson, Spá frá Spágilsstöðum, 3,42H Katrín Einarsdóttir, Mylla frá Spá- gilsstöðum, 3,42H. Fjórgangur V2 Opinn flokkur úrslit: Styrmir Sæmundsson, Dóri frá Fremri Gufudal, 5,70 Hrefna Rós Lárusdóttir, Jarl frá Reykhólum, 5,50 Svanhvít Gísladóttir, Stirnir frá Leirum, 5,47H Inga Heiða Halldórsdóttir, Næk frá Miklagarði 5,47H. Ungmennaflokkur A úrslit: Svandís Lilja Stefánsdóttir, Arnar frá Skipanesi, 5,23 Hrönn Jónsdóttir, Þorri frá Lind- arholti, 4,70 Elísa Katrín Guðmundsdóttir, Þokki frá Sælingsdal, 2,57. Unglingaflokkur A úrslit: Laufey Fríða Þórarinsdóttir, Skutla frá Hvítadal, 5,57. Barnaflokkur Fjórgangur V5 A úrslit: Arndís Ólafsdóttir, Álfadís frá Magnússkógum, 5,50 Katrín Einarsdóttir, Mylla frá Spá- gilsstöðum, 3,79 Aron Mímir Einarsson, Sleipnir frá Hróðnýjarstöðum, 3,17. Fimmgangur F2 A úrslit: Lárus Ástmar Hannesson, Magni frá Lýsuhóli, 5,88 Hlynur Þór Hjaltason, Fáni frá Breiðabólsstað, 5,38 Guðmundur Margeir Skúlason, Fannar frá Hallkelsstaðahlíð, 5,36. 100 metra flugskeið: Styrmir Sæmundsson, Skjóni frá Stapa, 8,60 Guðmundur Margeir Skúlason, Fannar frá Hallkelsstaðahlíð 9,23 Hlynur Þór Guðmundsson, Fáni frá Breiðabólsstað 9,24. mm/ Ljósm. sm. Íþróttamót Glaðs í Búðardal

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.