Skessuhorn


Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 201612 Borgarbyggð hefur gert samn- ing sem meðal annars kveður á um gatnagerðargjöld og fleira við fyrir- tækið Hús og Lóðir ehf. sem er að hefja byggingaframkvæmdir á Borg- arbraut 57-59, samanber fréttina hér að ofan. Í samningnum er m.a. kveð- ið á um byggingarmagn og gatna- gerðargjöld sem eru um 65 milljónir króna. Jafnframt er ákvæði í samn- ingnum um að Borgarbyggð skuld- bindi sig til að kaupa eða leigja tvær íbúðir í húsinu þegar þær verða full- búnar. Jafnframt skuldbindur sveit- arfélagið sig til að kanna hvort flytja megi starfsemi á vegum þess í þjón- ustuhluta hússins. Á fundi byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag bókaði Guðveig Eygló- ardóttir oddviti minnihlutans at- hugasemdir vegna samningsins. Í bókun hennar segir m.a.: „Kveðið er á um að Borgarbyggð skuldbindi sig til að kaupa eða leigja tvær íbúð- ir í húsinu þegar þær verða fullbún- ar. Ekki er kveðið á um kaupverð og eða leiguverð og eða nánari tíma- setningu t.d. hvað varðar leigutíma. Gera má ráð fyrir að þarna sé um að ræða tugmilljóna króna skuld- bindingu á næstu árum sem mun hafa áhrif á fyrirliggjandi fjárhags- áætlun. Ekki kemur fram hvernig gert sé ráð fyrir að fjármagna fyrir- huguð kaup þannig að ekki sé vik- ið frá markmiðum um fjárhag sveit- arfélagsins, hvort gert sé ráð fyr- ir að fresta byggingaframkvæmd- um við skólahúsnæði sveitarfélags- ins, taka lán og eða nýta söluhagn- að eigna. Þá kemur einnig fram að Borgarbyggð muni kanna með að sveitarfélagið flytji starfsemi á sín- um vegum í þjónustuhluta hússins. Ekki er tilgreint nánar hvaða starf- semi þarna gæti verið um að ræða.“ Guðveig bendir á að á sama tíma sé starfandi vinnuhópur sem eigi að auka nýtingu á húsnæði í eigu sveit- arfélagsins í Hjálmakletti. Í lok bók- unar sinnar segir Guðveig: „Und- irrituð telur framangreindar skuld- bindingar við Hús og lóðir ógagn- sæjar og óásættanlegt með öllu að skuldbinda sveitarfélagið með þess- um hætti.“ mm Gerir athugasemdir við skuld- bindingar í lóðarsamningi Horft yfir lóðirnar Borgarbraut 59 og 57 var sem byggingarnar munu rísa. Síðastliðinn miðvikudag var fyrsta skóflustungan tekin að stórhýsi sem reisa á við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi, beint á móti verslun- armiðstöðinni Hyrnutorgi. Fyrir- tæki Snorra Hjaltasonar bygginga- meistara, Hús og lóðir ehf., heldur utan um framkvæmdina en SÓ Hús- byggingar verður framkvæmdaraðili og mun m.a. sjá um samskipti við undirverktaka. Að sögn Jóhannesar Freys Stefánssonar, framkvæmda- stjóra SÓ Húsbygginga, verður þetta stærsta verkefni fyrirtækisins frá upphafi, ef undan er skilin bygg- ing Reykholtskirkju og Snorrastofu sem tók að vísu 12 ár. Um tvö sam- byggð hús verður að ræða í miðbæ Borgarness. Annars vegar sjö hæða blokk með 28 íbúðum auk þjón- ustukjarna á jarðhæð, en hins veg- ar fimm hæða, 85 herbergja fjög- urra stjörnu hótel. 600 fermetra bílakjallari verður undir húsinu. Byggingarnar verða alls 8-9 þús- und fermetrar og áætlað að verkið kosti um tvo milljarða króna. Hús- in verða reist úr forsteyptum ein- ingum og hafa samningar náðs við Smellinn á Akranesi um framleiðslu og reisingu þeirra. Fjölmargir und- irverktakar koma auk þess við sögu. Alls mun verktíminn verða 18 mán- uðir en hótelhlutinn á að verða til- búinn fyrr, eða eftir rúmt ár. „Hót- elið verður tilbúið fyrsta föstudag í júní árið 2017, klukkan 15:30,“ eins og Snorri Hjaltason verktaki hafði á orði þegar skóflustungan var tekin. Byggingarnar rísa á lóð þar sem eitt sinn stóð Essóstöðin, smurstöð og JS Nesbæ. Þau hús hafa öll ver- ið rifin og búið er að jarðvegsskipta þeim hluta lóðarinnar þar sem JS Nesbæ var. Nú tekur Borgarverk ehf. við að aka burtu jarðvegi og fylla með möl í grunn fyrir húsin. Framkvæmdir fara síðan á fulla ferð strax í vor. Verkefni þetta er fjármagnað með lánsfé og hlutafé. Snorri Hjalta- son byggingameistari segir að til greina komi að fara í samstarf við Íbúðalánasjóð um leigu á hluta íbúðanna en þær eru engu að síður ætlaðar fyrir eldri borgara sem meta kosti búsetu miðsvæðis og í ná- grenni þjónustu og verslunar. Með slíkri ráðstöfun íbúðanna gæti far- ið af stað keðjuverkun á fasteigna- markaði í Borgarnesi þar sem stærri eignir munu losna fyrir barnafólk. Skortur er á íbúðarhúsnæði í bæjar- félaginu sem lýsir sér m.a. með því að um þessar mundir eru sömu fjár- festar að ljúka framkvæmdum við nýja 16 íbúða blokk við Arnarklett. Jóhannes Freyr Stefánsson segir að eftirspurn eftir þeim íbúðum hafi verið slík að þeir hefðu geta leigt all- ar íbúðirnar tvisvar. Í hótelhluta byggingarinnar verða 85 vel búin herbergi eins og fyrr segir og ekkert til sparað í gæð- um og aðbúnaði. Af þessum her- bergjafjölda eru nokkrar 35-50 fer- metra svítur á efstu hæð. Við hönn- un hússins er lögð áhersla á að gott útsýni verður úr öllum herbergjum. Á næstu dögum eða vikum lýkur samningum við fyrirtæki sem tekur við rekstri hótelsins. Leitað í smiðju gömlu meistaranna Sigursteinn Sigurðsson arkitekt hjá Gjafa vinnur nú hörðum höndum að hönnun húsanna sem reisa á. Í samtali við Skessuhorn sagði Sigur- steinn að við hönnun hafi hann leit- að í smiðju gömlu arkitektanna eins og Halldórs Jónssonar sem hannaði m.a. Borgarneskirkju, Hótel Sögu og fleiri þekkt hús. „Ég lít til góðra verka eldri manna en nútímavæði að sjálfsögðu ýmislegt við hönnun þess- ara húsa. Okkur finnst mikilvægt að vel takist til því við erum þarna að hanna nýja þungamiðju í miðbæ Borgarness. Varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu og fyrir íbúana hér í Borgarnesi leggjum við metnað í að þessar byggingar eiga að verða lyfti- stöng fyrir samfélagið.“ Sigursteinn segir að á jarðhæð, undir þessum 28 íbúðum, verði þjónustukjarni með verslunum, líkamsrækt, veitingastað og boltakrá. Bílakjallari verður und- ir húsinu. mm Framkvæmdir hafnar við stórhýsi í Borgarnesi Hótelið á að verða fullbúið eftir rúmt ár en íbúðahlutinn eftir 18 mánuði Útilitsteikning Gjafa að húsinu. Útlit á eftir að taka breytingum. Þrjá konur tóku að sér að taka fyrstu skóflustungu að húsinu og nutu leiðsagnar Jóa frá Borgarverki. Þetta voru þær Geirlaug Jóhannsdóttir, Brynhildur Sigur- steinsdóttir og Jónína Erna Arnardóttir. Snorri Hjaltason og Jóhannes Freyr Stefánsson eru í forsvari fyrir framkvæmdina sem áætlað er að kosti um tvo milljarða króna. Farfuglaheimilið í Borgarnesi hef- ur verið starfandi við Borgarbraut 13 frá 2009 og hefur gistináttafjöld- inn farið stöðugt vaxandi í húsinu. Að sama skapi hefur vægi þess innan Far- fuglaheimilakeðjunnar vaxið þar sem heimilið er vel staðsett á gatnamót- um Vesturlands, Vestfjarða og Norð- urlands. Nú hafa orðið eigendaskipti á Farfuglaheimilinu. Gylfi Árnason stofnandi og rekstrarstjóri heimilis- ins er á förum erlendis til langdvalar og hafa Farfuglar keypt reksturinn af Gylfa. „Með þessu munum við tryggja áframhaldandi rekstur öflugs Far- fuglaheimilis á þessum mikilvæga stað og Farfuglar munu nýta reynslu sína og þekkingu til áframhaldandi upp- byggingar,“ segir Markús Einarsson framkvæmdastjóri Farfugla. mm Farfuglar taka yfir reksturinn í Borgarnesi Það varð uppi fótur og fit í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga síðastliðinn föstudag þegar hópur af grængulum drekum yfirtók skólahaldið. Þarna voru væntanlegir útskriftarnemendur skólans á ferð er þau voru að dimmitera. Hópurinn fór með nokkur skemmtiatriði fyrir samnemendur sína og enduðu svo á að sýna myndband frá því fyrr um morguninn þegar hópurinn fór mikinn um bæinn og vakti kennara og starfsfólk skólans með látum. Þetta þótti bráðfyndið þó að starfsfólkinu hafi ekki verið hlátur í huga á meðan upptökur fóru fram. Kennarar tóku þó undir með nemendum í hlátrasköllum þegar myndbandið var sýnt. tfk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.