Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 23
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
HD 10/25-4 S
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Kristvin Ómar Jónsson lögreglu-
varðstjóri hjá Lögreglunni á Vestur-
landi stóð sína síðustu vakt á föstu-
daginn eftir 37 ára starf í lögreglunni
og hættir störfum 65 ára. Ómar hef-
ur starfað að löggæslumálum í Borg-
arnesi og héraðinu allan þann tíma.
Í tilefni dagsins var honum haldið
kaffisamsæti og hann leystur út með
gjöfum og góðum óskum. Á mynd-
inni með honum er Theodór Kr.
Þórðarson yfirlögregluþjónn (t.h.)
og samstarfsfélagi til áratuga.
mm/ Ljósm. Lögreglan á Vestur-
landi
Ómar hættir í lögreglunni eftir 37 ár
Fyrir nokkru heimilaði Póst- og
fjarskiptastofnun Íslandspósti ohf,
ÍSP, fækkun útburðardaga í dreif-
býli. Í framhaldi af því sendi ÍSP út
tilkynningu um breytingu á útburði
og sendi síðan út dreifingardaga-
tal. Þar kemur fram á hvaða dögum
póstdreifing fer fram til viðkomandi
bæja og býla. Þar stendur líka skýrt
og greinilega „dreift heim til þín.“
Ég set ekki út á fækkun dreifing-
ardaga vegna þess að ég geri ráð fyr-
ir því að Póst- og fjarskiptastofnun
hafi tekið beiðni ÍSP til rækilegr-
ar skoðunar og heimilað síðan ÍSP
fækkun útburðardaga. Hins vegar
set ég út á það að í kjölfar fækkun-
ar útburðardaga hefur ÍSP hætt að
bera til mín póst. ÍSP hefur sett upp
annan póstkassa fjarri heimilinu og
skilur póstinn eftir þar.
Fyrir nokkrum árum sendi ÍSP út
tilkynningu um að nú ætti að færa
alla póstkassa samkvæmt útgefinni
reglugerð ráðherra. Þeirri aðgerð
var harðlega mótmælt með bréfi til
forstjóra ÍSP og einnig með bréfi til
Póst- og fjarskiptastofnunar.
Póst- og fjarskiptastofnun hef-
ur heimilað ÍSP færslu póstkassa frá
bæjum og býlum í nokkrum tilfellum
af ýmsum ástæðum m.a. vegna fjar-
lægðar, vegasambands o.fl. Ég veit
ekki til þess að Póst- og fjarskipta-
stofnun hafi heimilað ÍSP færslu
póstkassa hvorki hjá mér né öðrum
þar sem aðstæður gefa ekki tilefni til
þess og ég hef heldur ekki séð nein-
ar heimildir frá Póst- og fjarskipta-
stofnun til handa ÍSP að brjóta lög
um póstþjónustu.
Í lögum um póstþjónustu stendur:
„Póstsendingu skal dreift til eða af-
hent þeim aðila sem hún er stíluð á
eða hefur umboð til viðtöku hennar,
í bréfakassa eða pósthólf viðtakanda
eða þangað sem utanáskrift seg-
ir að öðru leyti til um. Póstrekend-
um er heimilt að endursenda póst-
sendingar ef bréfarifur og bréfakass-
ar viðtakanda eru ekki í samræmi við
ákvæði byggingarreglugerðar. Póst-
sending telst vera í vörslu póstrek-
anda og á ábyrgð hans frá móttöku
og þar til að hún hefur verið afhent á
tilgreindum ákvörðunarstað. Send-
andi telst eigandi póstsendingar sem
hann hefur afhent póstrekanda þar
til hún hefur verið afhent viðtak-
anda. Sendandi hefur jafnframt ráð-
stöfunarrétt yfir sendingunni og er
heimilt að gefa póstrekanda ný fyr-
irmæli um póstmeðferð þar til hún
hefur verið afhent tilgreindum við-
takanda. Póstrekanda er heimilt að
innheimta aukagjald vegna kostnað-
ar sem hlýst af nýjum fyrirmælum.“
Að framansögðu krefst ég þess
nú þegar að Íslandspóstur skili af sér
póstsendingum, bréfum og blöðum,
í minn heimilispóstkassa líkt og ver-
ið hefur undanfarin ár.
Georg Magnússon, Norðtunga 3,
311 Borgarnes.
Krefst þess að Íslandspóstur
skili af sér póstsendingum
Pennagrein
Blóðbankabíllinn kemur reglu-
lega á Vesturland eins og lesendur
Skessuhorns hafa orðið varir við. Í
þessum ferðum er safnað blóði úr
landsmönnum og komið til móts
við þá sem ekki hafa tök á að heim-
sækja höfuðstöðvar Blóðbankans
í Reykjavík. Bíllinn var staddur í
Grundarfirði í síðustu viku til blóð-
söfnunar eins og hann gerir tvisvar
á ári. Hrafnhildur Hallvarðsdótt-
ir skólameistari Fjölbrautaskóla
Snæfellinga sýndi gott fordæmi og
hvatti nemendur og starfsfólk skól-
ans til að fjölmenna í bílinn til að
láta gott af sér leiða. Hrafnhildur
reið á vaðið og fjölmargir nemend-
ur fóru að hennar fordæmi og gáfu
blóð en ansi margir voru að mæta í
fyrsta skipti.
Þess má geta að Blóðbankinn
þarf um 70 blóðgjafa á dag til að
viðhalda lágmarksbirgðum. Slíkar
blóðgjafir eru því jafnframt lífgjafir
þegar fólk þarf að þiggja blóð eftir
slys eða í aðgerðum. tfk
Skólameistarinn sýndi fordæmi
og hvatti aðra til blóðgjafar