Skessuhorn - 04.05.2016, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 20166
Kveikt í sinu og
svölum
BORGARFJ: Lögreglan á Vest-
urlandi hefur jafnan ólík mál til
meðhöndlunar. Í vikunni sem
leið hafði hún afskipti af um 20
ökumönnum vegna skoðunar-
mála. Voru skráningarnúmer
klippt af nokkrum ökutækjum
og aðrir boðaðir með bílana í
skoðun. Einn ökumaður var tek-
inn grunaður um akstur undir
áhrifum fíkniefna í umdæminu.
Minniháttar bruni varð þegar
eldur kviknaði í plastkassa út frá
sígarettuglóð á svölum á nýrri
íbúð í gamla bæjarhlutanum í
Borgarnesi á þriðjudagskvöldið.
Húsráðendur náðu með aðstoð
nágranna að slökkva eldinn en
reykræsta þurfti íbúðina. Nokkr-
ar skemmdir urðu á timburverki
við svalirnar. Um 500 hraðakst-
ursmál fóru í gegnum mynda-
vélakerfi LVL. Þar af voru um
70 ökumenn myndaðir fyrir of
hraðan akstur við Fiskilæk sunn-
an Hafnarfjalls. Lögreglumenn
tóku rúmlega 20 ökumenn fyr-
ir of hraðan akstur í vikunni. Þar
af nokkra innanbæjar í Borgar-
nesi þar sem er 50 km hámarks-
hraði. Loks má bóndi í Borgar-
firði búast við kæru og sekt eftir
að hafa kveikt í sinu án leyfis nú
skömmu fyrir mánaðamótin.
-mm
Ragnheiður
vann brons
AKRANES:
Hópur ungra
og efnilegra
s u n d m a n n a
úr Sundfélagi
Akraness hélt
utan um liðna
helgi. Keppt
var á Farum
Cup, sem haldið er í bænum
Farum á Sjálandi í Danmörku.
Krakkarnir stóðu sig allir með
prýði og syntu vel. Bestum ár-
angri náði Ragnheiður Karen
Ólafsdóttir sem hafnaði í þriðja
sæti í 200m bringusundi meyja á
nýju Akranesmeti.
-kgk
Jón ráðinn
þjóðgarðsvörður
SNÆFELLNES: Jón Björns-
son hefur verið ráðinn þjóð-
garðsvörður í Þjóðgarðinn Snæ-
fellsjökul. Á vef Umhverfisstofn-
unar kemur frma að Jón er með
BSc próf í náttúru- og umhverf-
isfræði frá Landbúnaðarháskóla
Íslands. Hann hefur starfað við
landvörslu í Hornstrandarfrið-
landinu frá 2000 og sem sérfræð-
ingur Hornstrandarfriðlandsins
2008-2015. Undanfarið rúmt ár
hefur hann unnið sem sérfræð-
ingur á Suðurlandi og Friðlandi
að Fjallabaki og mun gera þar til
hann tekur við starfi þjóðgarð-
svarðar í sumar. Á þriðja tug um-
sækjenda var um starfið.
-mm
Sluppu betur
en á horfðist
DALIR: Aðeins urðu tvö um-
ferðaróhöpp í umdæmi Lög-
relgunnar á Vesturlandi í liðinni
viku. Annað minniháttar á Akra-
nesi en hitt varð á Laxárdals-
heiði í Dölum um hádegisbilið
sl. föstudag. Þar misstu erlend-
ir ferðamenn bílaleigubíl sinn
út af í lausamöl á malarvegi og
valt bíllinn í vegkantinum. Tveir
voru í bílnum og voru þeir báðir
fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús í
Reykjavík. Nú hefur komið í ljós
að meiðsl þeirra voru minni en
talið var í fyrstu. -mm
Metinn sakhæfur
fyrir morð
DÓMUR: Héraðsdómur Vest-
urlands kvað á föstudaginn upp
dóm í morðmáli sem höfðað
var gegn Gunnari Erni Arnar-
syni. Var hann dæmdur til 16 ár
fangelsisvistar fyrir manndráp
að yfirlögðu ráði. Fórnarlamb
hans hét Karl Birgir Þórðar-
son, fæddur 1957. Taldist Gunn-
ar Örn saknæmur og jafnframt
kom fram í dómsgögnum að
ekkert mælti gegn því að refsing
gæti borið árangur. Gunnar Örn
neitaði sök í málinu en vörn hans
þótti ekki standast. Tilræðið átti
sér stað í heimahúsi á Akranesi
2. október 2015. Gunnar Örn er
dæmdur fyrir að hafa með kyrk-
ingu hert að hálsi fórnarlambs-
ins fyrst með höndum en einn-
ig með því að bregða beltisól og
fatareim um háls hans og herða
að. Batt hann auk þess hnút á
reimina svo hún losnaði ekki frá
hálsinum og stuttu síðar, með
því að bregða reiminni að nýju
um hálsinn á fórnarlambi sínu og
hert að eftir að endurlífgunartil-
raunir voru hafnar. Þetta hafði
þær afleiðingar að fórnarlamb-
ið hlaut alvarlegan heilaskaða og
lést fimm dögum síðar á sjúkra-
húsi. Ákærða var gert að greiða
sambýliskonu fórnarlambsins
800 þúsund krónur í miskabætur
auk annars kostnaðar. Frá refsi-
vist ákærða dregst gæsluvarð-
haldsvist frá 3. október.
-mm
Á Umhverfisþingi í síðustu viku
lýsti Sigrún Magnúsdóttir um-
hverfisráðherra því yfir að ákveð-
ið hafi verið að hefja byggingu
Þjóðgarðsmiðstöðvar á Snæfells-
nesi. Fimmtíu milljónir verða
lagðar í verkið fyrst í stað en áætl-
að er að miðstöðin kosti fullbúin
um 300 milljónir króna. Bygging
miðstöðvarinnar á sér langan að-
draganda. Árið 2006 ákvað Snæ-
fellsbær og Umhverfisstofnun að
efna til samkeppni um hönnun
þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðs-
ins Snæfellsjökuls á Hellissandi og
fór samkeppnin fram samkvæmt
reglum Arkitektafélags Íslands.
Miðstöðin skyldi rísa á lóð við Út-
nesveg þar sem bærinn Hjarðar-
holt stóð á árum áður, ekki fjarri
Sjómannagarðinum á Hellissandi.
Um þremur árum síðar kom fram
í fréttum Skessuhorns að Teikni-
stofan Arkís ehf hefði orðið hlut-
skörpust í samkeppni um hönnun
hússins og voru þá kynntar hug-
myndir um byggingu Jökulhöfða á
Hellissandi. Við gjaldþrot íslensku
bankanna og þrengingar í ríkis-
fjármálum fór málið hins vegar í
bið, en nú hefur ráðherra ákveð-
ið að hafist verði handa. Notað-
ar verða teikningar sem legið hafa
fyrir. Kristinn Jónasson bæjarstjóri
í Snæfellsbæ fagnar mjög þess-
ari ákvörðun Sigrúnar Magnús-
dóttur umhverfisráðherra. „Þetta
eru gríðarlega jákvæð tíðindi fyr-
ir samfélagið hérna og fyrir Snæ-
fellsnes allt. Því fagna ég mjög að
ráðherra hafi stigið þetta skref,“
segir Kristinn í samtali við Skessu-
horn.
Ekki aðeins bygging
Húsið Jökulhöfði kemur til með
að þjóna hlutverki þjóðgarðsmið-
stöðvar, sem móttökustaður fyr-
ir ferðamenn og verður jafnframt
starfsmannaaðstaða þjóðgarðsins.
„Jökulhöfðinn verður ekki aðeins
bygging. Hann verður gönguleið,
útsýnisstaður og iðandi miðpunkt-
ur menningar- og útilífs. Hvað
form, lögun og nýtingu varðar þá
sækir hann innblástur í dýraríkið,
mannlífið og landslagið og er ætl-
að að styrkja þau hughrif sem gest-
ir upplifa við dvöl sína á staðnum,“
sagði í frétt Skessuhorns um nið-
urstöðu samkeppninnar árið 2009.
Byggingin verður um 765 fer-
metrar að flatarmáli, byggð úr
tré og stálgrind og að forminu til
skiptist hún í þrennt. Í fyrsta lagi
er það Fiskbeinið sem verður klætt
lerki og hýsir meðal annars skrif-
stofur starfsfólks. Í öðru lagi er
það Þjóðvegurinn sem er göngu-
leið upp á bygginguna að útsýn-
ishöfða með sjónskífu þaðan sem
sýn verður óskert til jökuls, lands
og hafs. Einnig liggur Þjóðvegur-
inn sem gönguleið í gegnum bygg-
inguna sjálfa. Þriðji hlutinn er Jök-
ulhöfðinn sem er klæddur Corten
stáli sem er þeim eiginleika gætt að
það ryðgar aðeins lítillega og skap-
ar þau áhrif að samhljómur mynd-
ast með árstíðunum og litaafbrigð-
um.
mm
Framúrstefnuleg hönnun þjóðgarðsmiðstöðvarinnar Jökulhöfða.
Ráðherra boðar byggingu
þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi