Skessuhorn - 04.05.2016, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 29
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
3
2
4
8
Lj
ós
m
yn
d:
H
er
m
an
n
Sn
or
ri
H
o
rit
z
TIL HAMINGJU SNÆFELL!
VIÐ VITUM HVAÐ
MEISTARAR
SKIPTA MIKLU MÁLI
„Það var hrikalega góð tilfinning að
lyfta bikarnum,“ segir Gunnhild-
ur Gunnarsdóttir fyrirliði og tel-
ur lið sitt vel að Íslandsmeistaratitl-
inum komið. „Mér finnst við vera
búnar að vinna okkur þetta inn. Við
vorum búnar að spila heilt yfir mjög
vel í deildinni í vetur og síðan í þess-
um hörkurimmum sem við lentum
í bæði í undanúrslitum og úrslitum.
Mér fannst við betri í úrslitunum,
eiga skilið að vinna og ég var ofboðs-
lega stolt þegar bikarinn fór á loft,“
bætir hún við.
Undanfarin tvö ár hefur Snæfell
unnið úrslitaviðureignina með þrem-
ur sigrum gegn engum. Þetta var því
í fyrsta skipti sem liðið hampar Ís-
landsmeistaratitlinum eftir oddaleik.
„Það er dálítið sérstök tilfinning að
byrja leikinn og vita að það er allt
undir. Ef þú tapar þá er þetta búið
og þú færð bara silfur, en ef þú vinn-
ur þá færðu gull og bikar,“ segir hún
og bætir því við að því hafi stemn-
ingin fyrir leik minnt örlítið á stemn-
inguna sem myndast fyrir bikarleiki.
Hún telur víst að það hafi frekar
hjálpað liðinu heldur en hitt að vita
til þess að allt væri undir. „Viljinn til
að vinna var klárlega fyrir hendi og
við höfðum allar trú á verkefninu.
Við vissum að ef við myndum spila
góða vörn í 40 mínútur þá myndum
við vinna,“ segir Gunnhildur.
Eigum bestu stuðnings-
menn í heimi
Snæfell lenti tvisvar undir í úrslita-
rimmunni en Gunnhildur segir að
liðið hafi aldrei haft áhyggjur af því.
„Við töpuðum tveimur leikjum á Ás-
völlum í úrslitarimmunni; öðrum
með einu stigi og hinum eftir fram-
lengingu. En við áttum alltaf heima-
leikina eftir þegar við lentum und-
ir og vissum að þær myndu ekkert
koma á okkar heimavöll og slá okk-
ur út,“ segir Gunnhildur. „Við erum
mjög sterkar heima og vorum aldrei
að fara að tapa þar í fyrsta skipti í tvö
eða þrjú ár. Ég man ekki einu sinni
hvenær við töpuðum síðast á heima-
velli,“ bætir hún við. Það eina sem
Snæfell átti því eftir var að vinna
leik á Ásvöllum og þar með var Ís-
landsmeistaratitillinn í höfn. „Eft-
ir á að hyggja var voða sætt að klára
rimmuna á útivelli,“ segir Gunnhild-
ur en bætir því við að varla hafi ver-
ið hægt að tala um útileik síðastlið-
inn þriðjudag. Tæplega 1700 manns
mættu á völlinn og hafa aldrei verið
fleiri í úrslitakeppni kvenna. Meiri-
hluti þeirra studdi Snæfell. „Við eig-
um bestu stuðningsmenn í heimi, ég
ætla ekkert að skafa neitt utan af því.
Við áttum salinn og stúkan var frá-
bær. Það mættu að ég held hátt í þús-
und manns sem studdu okkur og létu
vel í sér heyra. Þeir sem komust ekki
úr Hólminum voru heima að horfa,“
segir Gunnhildur ánægð.
„Við erum töffarar“
Leikmenn Snæfells stjórnuðu gangi
mála stærstan hluta oddaleiksins. Var
það ekki síst gríðarsterkur varnar-
leikur sem lagði grunn að sigrinum.
Haukar náðu þó að minnka muninn í
aðeins fjögur stig með tveimur ótrú-
legum körfum með stuttu millibili
seint í leiknum. „Vissulega fundum
við fyrir aukinni pressu á þeim tíma-
punkti en við erum töffarar og svör-
uðum fyrir okkur,“ segir Gunnhild-
ur og hlær við. „Mér fannst tíminn
líða ofboðslega hægt þarna í lokin.
En á móti svona góðu liði þá hætt-
irðu ekkert. Það skein úr augunum á
öllum liðsfélögum mínum að við ætl-
uðum að ná í sigur,“ segir hún. Snæ-
fell svaraði strax. Berglind Gunnars-
dóttir keyrði að körfunni, setti nið-
ur sniðskot og fékk vítaskot að auki
þegar hálf mínúta lifði leiks. „Mér
fannst það slökkva síðasta vonar-
neista Haukana, það var gríðarlega
mikilvæg karfa,“ segir Gunnhildur.
Verður áfram
hjá Snæfelli
Aðspurð um framtíðina kveðst
Gunnhildur ætla að vera áfram í
Hólminum og spila fyrir Snæfell.
„Ég er samningslaus í sumar en ég
ætla að vera áfram. Mér finnst best
að vera heima. Hér líður mér vel, við
erum að koma okkur fyrir í Hólmin-
um og það er ótrúlega ljúft að spila
fyrir Snæfell. Við erum með flott-
an hóp, þjálfara, stjórn og geggjaða
stuðningsmenn,“ segir Gunnhildur
ánægð.
Næstu dagar segir hún að muni
hins vegar aðeins fara í að átta sig
betur á því að hafa unnið Íslands-
meistaratitilinn. Stemningin í bæn-
um sé góð og hún ætli að njóta þess.
„Hér er gleðin ríkjandi og allir voða
kátir og ánægðir,“ segir fyrirliðinn að
lokum.
kgk
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrirliði Snæfells:
„Ég var ofboðslega stolt þegar bikarinn fór á loft“
Með bikarana eftir leik. Gunnhildur Gunnarsdóttir ásamt Berglindi systur sinni og
foreldrum þeirra, Gunnari Svanlaugssyni og Láru Guðmundsdóttur. Ljósm. þe.
Gunnhildur fyrirliði fagnar gangi mála
í oddaleiknum á móti Haukum. Hún
kveðst mjög ánægð að spila fyrir Snæfell
og hyggst endurnýja samning sinn við
liðið. Ljósm. sá.