Skessuhorn - 04.05.2016, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 201632
Kristófer Gíslason er tæplega tví-
tugur, búsettur í Borgarnesi og
leikur körfuknattleik með Skalla-
grími. Kristófer hefur í vetur, líkt
og margir ungir og efnilegir leik-
menn, verið rulluspilari í liði sínu.
Í úrslitaviðureigninni gegn Fjölni
fékk Kristófer aukið hlutverk í liði
Skallagríms. Í oddaleiknum spilaði
hann tæpar 27 mínútur, varð stiga-
hæsti leikmaður vallarins með 24
stig. Kristófer toppaði heldur betur
á réttum tíma, en hann hefur aldrei
skorað jafn mörg stig fyrir meist-
araflokk. Hann setti niður mikil-
væg skot í lokin og átti stóran þátt
í sigri Skallagríms. „Þetta var nú
bara nokkuð óvænt,“ segir Krist-
ófer, hógværðin uppmáluð. „En
ég var tilbúinn í slaginn. Stemn-
ingin í hópnum fyrir leik var æðis-
leg. Finnur hélt smá ræðu yfir okk-
ur. Hún var mjög stutt og endaði á:
„Við ætlum að vinna þennan leik,“
og það vissu allir sem voru í klefan-
um,“ segir Kristófer.
Þegar lokamínúturnar runnu
upp var leikurinn búinn að vera
í járnum frá fyrstu mínútu. Mik-
il spenna var meðal áhorfenda en
Kristófer segist hafa reynt að halda
ró sinni. „Það fór ekkert í gegnum
huga minn þarna, ég reyndi bara
að vera rólegur,“ segir hann. „Þeg-
ar boltinn síðan barst til mín var ég
miklu opnari en ég bjóst við. Vissu-
lega var verið að dekka bæði Cadot
og Sigtrygg Arnar vel. En þegar
það er gert hlýtur einhver að opn-
ast. Í þetta skipti var það ég og þá
tekur maður bara af skarið,“ segir
Kristófer.
Syfjaður í vinnunni
Þegar lokaflautan gall hafði Skalla-
grímur 91 stig gegn 75 stigum
heimamanna og Borgnesingar á
leið í Domino‘s deildina. Áhorf-
endur þustu inn á völlinn og Krist-
ófer segir stemninguna eftir leik
hafa verið ótrúlega. „Að komast
í úrvalsdeild er tilfinning sem ég
gleymi aldrei,“ segir hann ánægð-
ur. „Ég hef aldrei upplifað aðra
eins stemningu á leik. Áhorfend-
urnir voru frábærir, það var troð-
fullt hús og heyrðist miklu meira
í Fjósamönnum en öðrum. Þeir
sungu allan tímann,“ segir Krist-
ófer og er stuðningnum mjög
þakklátur. „Einnig langar mig
að þakka kærustunni minni allan
þann stuðning sem hún hefur veitt
mér,“ bætir hann ánægður við.
Þegar heim í Borgarnes var
komið fengu Skallagrímsmenn
höfðinglegar móttökur þar sem
slegið var upp veislu í Englend-
ingavík. Fögnuðu leikmenn og
stuðningsmenn úrvalsdeildarsæt-
inu fram á nótt. En var ekkert erf-
itt að mæta til vinnu daginn eftir?
Kristófer hlær við og viðurkennir
að örlað hafi á þreytu þegar hann
mætti til vinnu á Landnámssetrinu
um morguninn. „Það var vissulega
meiri þreyta en vanalega. Ég mætti
óvenju syfjaður en það sýndu því
allir skilning,“ segir hann léttur í
bragði.
Aðspurður um framtíðina kveðst
Kristófer munu flytjast búferl-
um á næstunni. „Ég er að flytja til
Reykjavíkur og byrja í námi í Há-
skóla Íslands í haust,“ segir hann.
En mun hann áfram að leika með
Skallagrími? „Það er enn óákveðið
en eins og staðan er í dag tel ég það
samt alveg líklegt,“ segir Kristófer
að lokum. kgk
„Að komast í úrvalsdeild er tilfinning sem ég gleymi aldrei“
Kristófer Gíslason mætti galvaskur til vinnu í Landnámssetrinu morguninn eftir
að Skallagrímur tryggði sér úrvalsdeildarsætið, þrátt fyrir að hafa fagnað með
félögum sínum fram á nótt. Ljósm. hlh.
Kristófer galopinn efst á lyklinum í oddaleiknum gegn Fjölni. Skotið fór niður, eins
og meirihluti skota hans þetta kvöld. Ljósm. Skallagrímur.
Það var glaðbeittur hópur Borgnes-
inga og annarra stuðningsmanna
sem tók fagnandi á móti karla-
liði Skallagríms þegar það mætti í
Englendingavík seint á þriðjudags-
kvöldið í síðustu viku. Liðið vann
eins og áður hefur komið fram sigur
á Fjölni í oddaleik sem spilaður var
í Dalhúsum í Grafarvogi. Þar með
er ljóst að bæði karla- og kvennalið
Skallagríms spila í Dominosdeild-
inni næsta haust. Konurnar í fyrsta
skipti en karlarnir eftir árs veru í
1. deild. Nokkur hundruð manns
mættu í Englendingavík þar sem
veitingastaðurinn var um leið opn-
aður sérstaklega fyrir þessa stund
(formleg opnun Englendingavíkur
verður fimmtudaginn 5. maí). Með-
fylgjandi myndir sýna stuðnings-
menn og leikmenn Skallagríms við
komuna í Borgarnes. Boðið var upp
pizzur í tilefni dagsins.
mm
Fögnuður með úrvalsdeildarsætið