Skessuhorn - 04.05.2016, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 201638
Hver er uppáhalds
fiskurinn þinn?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Grundarfirði)
Rebekka Heimisdóttir:
Grillaður lax.
Heiðdís Björk Jónsdóttir:
Soðin ýsa með kartöflum og
smjöri.
Guðrún Margrét Hjaltadóttir:
Grillaður silungur úr Gíslholts-
vatni.
Kristján Guðmundsson:
Pönnusteiktur silungur að hætti
konunnar.
Uppskeruhátíð Körfuknattleiks-
deildar Skallagríms var haldin síð-
astliðinn laugardag í Félagsheimili
Skugga í Borgarnesi. Voru þar sam-
an komnir meistaraflokkar Skalla-
gríms, drengja- og unglingaflokk-
ur ásamt starfsmönnum og velunn-
urum félagsins til að fagna því að
bæði meistaraflokkslið væru komin
í Domino‘s deildina. Boðið var upp
á borgfirskt lambalæri ásamt með-
læti og sultu Eðvarðs Sveinsson-
ar. „Einnig voru fluttar ódauðlegar
ræður um árangur vetrarins og rifj-
aðir upp gamlir tímar,“ segir í til-
kynningu frá kkd. Skallagríms. Að
endingu voru veittar viðurkenning-
ar þeim sem þykja hafa skarað fram
úr á undangengnu tímabili.
Meistaraflokkur karla
Besti leikmaður:
Sigtryggur Arnar Björnsson
Besti varnarmaður: J. R. Cadet
Efnilegasti leikmaður:
Kristófer Gíslason
Mestu framfarir:
Bjarni Guðmann Jónsson
Meistaraflokkur kvenna
Besti leikmaður:
Kristrún Sigurjónsdóttir
Besti varnarmaður:
Guðrún Ámundadóttir
Efnilegasti leikmaður:
Sólrún Sæmundsdóttir
Mestu framfarir:
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Unglingaflokkur
Besti leikmaður:
Kristófer Gíslason
Mestu framfarir:
Sumarliði Sigurbergsson
Drengjaflokkur
Besti leikmaður:
Bjarni Guðmann Jónsson
Mestu framfarir:
Einar Benedikt Jónsson
„Margir hafa lagt hönd á plóg í
að vinna að þessum árangri og vill
stjórn Skallagríms koma kæru þakk-
læti til allra í stóru körfuboltafjöl-
skyldunni okkar, þetta væri aldrei
hægt nema að hafa allt þetta fólk
með í þessu,“ segir í tilkynningu.
kgk
Viðurkenningar á uppskeruhátíð Skallagríms
Leikmenn Skallagríms sem veittu viðurkenningum viðtöku á uppskeruhátíðinni. F.v. Kristrún Sigurjónsdóttir, Sigurbjörg
Sigurðardóttir, Guðrún Ósk Ámundadóttir, Sólrún Sæmundsdóttir, J.R. Cadet, Bjarni Guðmann Jónsson, Kristófer Már
Gíslason, Sigtryggur Arnar Björnsson og Einar Benedikt Jónsson.
Leikmenn og þjálfarar meistara-
flokka Snæfells tóku sig til og völdu
mikilvægustu leikmenn, bestu varn-
armenn og bestu ungu leikmenn
tímabilsins. Tilefnið var lokahóf
körfuknattleiksdeildar Snæfells
sem haldið var á dögunum. Greidd
voru atkvæði um nafnbæturnarnar
og útnefningarnar má lesa hér að
neðan:
Meistaraflokkur kvenna
Mikilvægasti leikmaðurinn:
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Besti varnarmaðurinn:
Alda Leif Jónsdóttir
Besti ungi leikmaðurinn:
Rebekka Rán Karlsdóttir
Meistaraflokkur karla
Mikilvægasti leikmaðurinn:
Sigurður Á. Þorvaldsson
Besti varnarmaðurinn:
Óli Ragnar Alexandersson
Besti ungi leikmaðurinn:
Viktor Marínó Alexandersson
„Stjórn kkd. Snæfells óskar öllum
leikmönnum og stuðningsmönnum
Snæfells til hamingju með frábæran
árangur í vetur,“ segir á heimasíðu
Snæfells. kgk/ Ljósm. Snæfell.
Bestu leikmenn
Snæfells útnefndir
Viktor Marínó Alexandersson var valinn besti ungi leikmaður meistaraflokks
karla. Hér er hann ásamt Inga Þór Steindórssyni þjálfara og Gunnlaugi Smárasyni
aðstoðarþjálfara.
Rebekka Rán Karlsdóttir var valin besti ungi leikmaður meistaraflokks kvenna.
Hér er hún ásamt þjálfara sínum og aðstoðarþjálfara, Inga Þór og Baldri Þorleifs-
syni.
Nú er vorið klárlega komið og
sumarið rétt handan við hornið. Þá
fara fyrstu fótboltamótin að detta
í gang. Snæfellsnessamstarfið hef-
ur undanfarnar tvær helgar sent lið
á TM mót Stjörnunnar í Garðabæ
og hafa liðin staðið sig vel og gleðin
verið í fyrirrúmi. Þessir kátu dreng-
ir voru að ljúka keppni um hádeg-
isbil síðastliðinn sunnudag þegar
ljósmyndari kíkti á þá og það var
ljóst að gleðin var í fyrirrúmi hjá
þeim.
tkf
Knattspyrnusumarið hafið
hjá yngri flokkunum
Vesturlandsmótið í loftgreinum
í skotíþróttum fór fram í inniað-
stöðu Skotíþróttafélags Vestur-
lands í Brákarey 20. apríl síðastlið-
inn. Þetta mót var samvinnuverk-
efni Skotíþróttafélags Akraness og
Skotíþróttafélags Vesturlands. Alls
voru 20 þátttakkendur frá fimm fé-
lögum; SKV, SKA, SR, SK og SFK.
Vöflur með rjóma og sultu voru
bakaðar fyrir keppendur sem aðra
og sá Eygló Sigurðsdóttir um veit-
ingarnar. Mótsstjóri var Ólafur K
Kristjánsson og dómari Guðmund-
ur Kr Gíslasson. Auk þess ver keppt
um titilinn Vesturlandsmeistari í
öllum greinum. Úrslit voru eins og
hér segir:
Vesturlandsmeistari karla loft-
skammbyssa: Kristján V Pálsson,
SKV
Vesturlandsmeistari kvenna loft-
skammbyssa: Berglind Björgvins-
sdóttir, SKA
Vesturlandsmeistari karla loftriff-
ill: Stefán Gísli Örlygsson, SKA.
Vesturlandsmeistari kvenna loft-
rifflill: Sonja L Eyglóardóttir, SKV.
mm/ebm
Opna Vesturlandsmótið
í loftgreinum